Fréttablaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 112
Lífið
Gengið af
göflunum
allar helgar
í sumar
Við fyrsta lóukvak hendast allir upp úr sóf-
unum og upp í hlíðar. Bílaplan Esjunnar er
þéttskipað allan sólarhringinn. Enn eru þó
einhverjar sófakartöflur eftir sem dauðlangar
að bætast í hópinn. Hér eru nokkur góð ráð
fyrir þær frá þaulreyndum fjallageitum.
Einar Skúlason hefur verið áhuga-
maður um sögutengda útivist í fjöl-
mörg ár og stofnaði gönguklúbbinn
Vesen og vergang árið 2011.
Uppáhaldsgöngu-
leið: „Þetta er erfið
spurning en Víkna-
slóðir í Borgarfirði
eystri er magnað
svæði. Ég hef
farið nokkrum
sinnum, man
ekki hve oft.
Maður getur
nefnilega alltaf
farið nýjar leiðir.“
Hvenær byrjaðir
þú að stunda sportið?
„Ég byrjaði að ganga með
ömmu, þá fimm ára gamall.
Aðallega í Hvalfirði og í fjörunum og
svo færði ég mig aðeins upp í fjall.
Smátt og smátt fór ég svo að komast
hærra en hún og þá fór ég mikið
einn sem unglingur. Þegar strákarnir
mínir urðu eldri fórum við að fara
mikið saman og í fyrra tókum við
Laugaveginn og Fimmvörðuháls til
dæmis.“
Ætla aldrei að fylla út í buxurnar
„Mér finnst aðalmálið að byrja ekki
of skart og ætla sér ekki um of. Fólk
verður að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Góðir skór skipta eiginlega mestu
máli og menn geta alveg verið í því
sem til er heima, það þarf ekki að
dressa sig upp í nýjasta nýtt úr úti-
vistarbúðunum. Fínt að finna gamlar
ullarpeysur uppi í skáp.
Sjálfur gekk ég lengi í
jakkafatabuxum af
pabba. Svona buxur
eru oft úr ullar-
blöndu. Þessar
voru dálítið
útvíðar, en þá
gyrðir maður
bara sokkana
yfir. Ég notaði
svo snæri til að
halda þeim uppi,
mittið var alltof vítt.
Markmiðið er að ná
aldrei að fylla út í þær.“
Varist og gerið
l Ekki byrja of skart
l Góðir skór skipta öllu
l Óþarfi að húrra sér út í næstu
útvistarbúð og splæsa í heildress,
nota það sem til er í skápunum
l Forðast bómullarföt
l Skilja gallabuxurnar eftir heima
l Drekka vökva
l Hafa með sér nasl, hnetur og
súkkulaði, harðfisku, sviðasultu
l Ekki fara út í óbyggðir í einhverja
megrunarferð. Eitt epli er ekki nóg.
Kjöraðstæður: Hægviðri.
Slæmar aðstæður: Rok og rigning.
Í sparibuxum af pabba með snæri um sig miðjan
Hugrún Halldórsdóttir dagskrár-
gerðarkona
Uppáhalds;
„Að ganga á
Snæfellsjök-
ul á bjartri
sumarnóttu
er eitt það
magnaðasta
sem ég hef gert
á ævinni. Ég fór í mína fyrstu ferð á
jökulinn síðasta sumar, í kringum
sumarsólstöður og það þurfti nánast
að draga mig niður. Mér fannst ég
vera á annarri plánetu og get ekki
beðið eftir að fara aftur, sem verður
vonandi síðar í þessum mánuði.
Ætli ég hafi ekki farið að ganga á
fjöll um fimm ára aldurinn. Ég á samt
ekki flekklausan feril að baki þar sem
ég fékk vænan skammt af unglinga-
veikinni og var svo illa haldin að
ég faldi mig í miðri Esjugöngu með
skólanum til að komast hjá því að
ganga upp á topp. Ég óx sem betur
fer upp úr því og fór aftur af stað um
tvítugt.
Góðir gönguskór eru númer eitt,
tvö og þrjú. Þeir geta verið dýrir en
þeir endast lengi og mér finnst það
í raun fjárfesting í göngugleðinni. En
það er líklega fátt sem dregur jafn
mikið úr manni og sárir fætur. Annars
er drífandi göngufélagi gríðarlega
mikilvægur. Ég er sjálf svolítil B-
manneskja og myndi örugglega liggja
oftar í leti ef ég ætti mína ekki að.
Þeir sem eru að leita geta til dæmis
skellt sér í göngu með hópnum Ves-
eni og vergangi sem er öllum opinn
og auðfundinn á Facebook. Svo
finnst mér alltaf mikilvægt að þjóta
ekki milli staða. Göngur eru frábær
líkamsrækt en ekki síður góðar fyrir
andlegu hliðina. Þá þarf að staldra
svolítið við, njóta náttúrunnar og
hreina fjallaloftsins í góðum félags-
skap hefur leyst margar flækjurnar í
kollinum á mér.“
Ráð Hugrúnar
l Góðir gönguskór
l Drífandi göngufélagi
l Gott að vera í gönguklúbbi
l Ekki æða áfram milli staða
l Njóta náttúrunnar
góðir skór eru fjár-
festing Í göngugleði Friðrika Hjördís Geirsdóttir, dag-
skrárgerðarkona og útivistarfíkill
„Ég elska fjallgöngur og væri helst
til í að vera með bakpoka á fjöllum
alla daga, eða allavega flesta. Það
er eitthvað töfrandi við að sigrast á
fjalli. Ég er uppalin undir Esjunni og
byrjaði frekar snemma að lesa fjöll
og ganga á þau, en byrjaði svo sem
ekki fyrir alvöru fyrr en eftir að ég
eignaðist börnin mín. Síðan hef ég
ekki getað hætt.“
Uppáhaldsgönguleiðin: „Ég á
mér margar uppáhalds, en Esjan
á alveg heima í þeim hópi. Hún er
svo margbreytileg. Annars er ég
mjög hrifin af Vestfjörðum og svo
svæðinu kringum Landmanna-
laugar. Skemmtilegast þykir mér
samt að ganga jökla, ég er dálítið
jöklasjúk.
Öllu máli skiptir að byrja smátt
og vera vel búinn. Góðir skór skipta
höfuðmáli. Þegar færið er gott á
fjöllunum í kringum Reykjavík finnst
mér best að fara í utanvegahlaupa-
skóm en fer svo í stífari skó þegar
ég fer í jöklaferðir. Góður fatnaður
er lykilatriði og mér finnst best að
klæða mig í nokkur lög svo hægt sé
að fækka fötum þegar á líður eða
hlaða á sig ef veðrið versnar. Svo er
nauðsynlegt að vera búinn að kynna
sér gönguleiðina vel áður en farið
er af stað og láta alltaf vita af sér.
Maður veit aldrei hvað getur komið
upp á. En ráð númer eitt er að byrja.
Hamingjan hefst á einu skrefi.“
Ráð Rikku:
l Að láta vaða og byrja
l Góðir skór
l Klæða sig í lögum
l Kynna sér gönguleiðina vel
l Láta vita af ferðum sínum
Hamingjan Hefst á einu skrefi
l Esjan
l Heiðmörk
l Elliðaárdalur
l Viðey
l Hengilssvæðið
l Búrfellsgjá
l Öskjuhlíð
l Elliðavatn
Nokkrar Góðar í
reykjavík oG
NáGreNNi
l Rúsínur
l Hnetur
l Súkkulaði
l Harð-
fiskur
l Bananar
l Sviðasulta
l Drekka nóg
af vatni. Um að
gera að nota það sem finnst í
náttúrunni.
l Heitt kakó
l Kex
l Flatkökur eða gróft brauð
Nokkrar huGmyNdir
að léttu Nesti
THE DAISY
COLLECTION
Laugavegi 15 - 101 Reykjavík
sími 511 1900 - www.michelsen.is
Endalaust
ENDALAUST
NET
1817 365.is
7 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R64 L í f i ð ∙ f R É T T a B L a ð i ð