Fréttablaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 2
Veður
Minnkandi norðanátt og léttir smám
saman til í dag, en stöku skúrir eða él
við norðausturströndina fram eftir
degi. Einnig stöku skúrir sunnanlands
síðdegis. Heldur hlýnandi veður.
sjá síðu 50
Fyrirhugaðri gjaldtöku á bílastæðum í Þingvallaþjóðgarði sem hefjast átti 1. maí verður frestað til 16. maí. Fyrirtækið Bergrisi setti í gær upp fyrsta
gjaldstaurinn af fimm á Hakinu við Þingvallaþjóðgarð. Staurar verða á fleiri stöðum í þjóðgarðinum.Samkvæmt gjaldskránni er gjald fyrir hvern
einkabíl fimm hundruð krónur. Gert er ráð fyrir að heildartekjur þjóðgarðsins verði um 40 til 50 milljónir króna á ári. Fréttablaðið/Pjetur
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
BUMBAN
BURT! Prógastró, öflugi asídófílusinn, getur hjálpað þér!
Tvö hylki
á dag hjálpa
meltingunni!
stjórnsýsla Dregist hefur að ráða
í stöðu skólameistara Borgarholts-
skóla, en fyrrverandi skólameistari
lét af störfum fyrir rúmum mánuði.
Einn kennara segir að kurr sé kom-
inn í kennarahópinn, sem finnst
þeir lítilsvirtir af stjórnvöldum.
„Umsóknarferlið er löngu búið
og það er búið að liggja fyrir að fyrr-
verandi skólameistari yrði sjötugur í
mars. Þannig að það er ekkert þarna
sem kemur fólki á óvart. Og við
kennarar erum að upplifa svolítið
virðingarleysi af hálfu stjórnvalda
og svona ákveðna hunsun. Skiptir
starf skólameistara þá ekki meira
máli en það að það sé hægt að draga
það mánuð eftir mánuð að ráða?
spyr Hanna Björg Vilhjálmsdóttir,
kennari við skólann.
„Þetta er lítilsvirðandi fram-
koma stjórnvalda við okkur. Það er
það sem við upplifun. Og við erum
eiginlega bara steinhissa og ég held
að það séu allir steinhissa á þessu
máli,“ bætir hún við.
Það sem flækir málið er að á
meðal umsækjenda um starfið er
starfsmaður mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytisins, Ársæll
Guðmundsson. Af þeirri ástæðu
var ákveðið að Illugi Gunnarsson,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, myndi ekki ráða í starfið
heldur yrði Ólöfu Nordal innan-
ríkisráðherra falið það.
„Þetta er orðin eins og heit kart-
afla og komið í innanríkisráðuneyt-
ið þar sem við vitum að ráðherrann
hefur verið í veikindaleyfi,“ segir
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir.
Ingi Bogi Bogason, aðstoðar-
skólameistari og einn umsækjenda
um stafið, tekur þó ekki eins djúpt í
árinni og Hanna Björg.
„Ég vil nú ekki segja að það sé
kurr. En menn bíða eftir þessu og
skilja ekki hvað tefur. Það er búið að
fullvissa mig um að þetta muni skýr-
ast innan tíðar og í sjálfu sér hefur
þetta ekki stór áhrif á starfsemina.
Við erum hérna á tiltekinni siglingu
sem er samkvæmt skipulagi ársins
forákvörðuð og það gengur vel,“
segir hann.
Samkvæmt auglýsingu átti að
vera búið að ráða í starfið 1. apríl
síðastliðinn en Bryndís Sigurjóns-
dóttir, fyrrverandi skólameistari,
lét af störfum um mánaðamótin
mars/apríl. Hefur aðstoðarskóla-
meistari gegnt stöðu skólameistara
frá þeim tíma. Umsóknarfrestur um
stöðuna rann út 2. febrúar og sóttu
tíu manns um, þrjár konur og sjö
karlar. jonhakon@frettabladid.is
Kurr í Borgarholtsskóla
Dregist hefur að ráða nýjan skólameistara. Umsóknarfrestur rann út fyrir þrem-
ur mánuðum. Kennurum skólans finnst þeir lítilsvirtir af stjórnvöldum.
ráða átti í starf skólameistarans frá og með 1. apríl en enn hefur ekkert gerst í
stöðunni. Fréttablaðið/Pjetur
Hanna björg
Vilhjálmsdóttir
ingi bogi
bogason
Gjaldmælarnir í gang á Þingvöllum
stjórnmál Árni Páll Árnason, for-
maður Samfylkingarinnar, greindi
þingflokki sínum ekki frá þeirri
ákvörðun sinni að hætta við að
bjóða sig fram til formanns flokks-
ins áður en hann sendi bréf þess
efnis á flokksmenn í gær. Þetta
staðfestir Oddný Harðardóttir,
þingmaður og frambjóðandi til for-
manns, í samtali við Fréttablaðið.
Árni sendi bréf á flokksmenn í
gær, föstudag, átta dögum eftir að
hann tilkynnti um framboð, og dró
framboðið til baka. Í yfirlýsingunni
segir: „Staða flokksins er óásættan-
leg. Sem fyrr vara ég flokksfólk við
að halda að á henni séu einfaldar
lausnir.“
Þingmennirnir Helgi Hjörvar og
Oddný Harðardóttir eru í framboði
til formanns, þá er varaþingmaður-
inn Magnús Orri Schram í framboði
og Guðmundur Ari Sigurjónsson,
bæjarfulltrúi flokksins á Seltjarnar-
nesi. – snæ
Þingflokkur í
myrkrinu um
ákvörðun Árna
Árni Páll Árnason er hættur við for-
mannsframboð. Fréttablaðið/VilHelm
Bandaríkin Lögreglumaður var
handtekinn í gær í Marylandfylki
í Bandaríkjunum grunaður um
að hafa skotið fyrrverandi eigin-
konu sína til bana á fimmtudaginn
fyrir utan skóla barna þeirra þegar
konan var að sækja börnin.
Lögreglumaðurinn lét aftur til
skarar skríða í gær og skaut aðra
manneskju til bana og særði þrjá
í verslunarmiðstöð í Maryland.
Skólum og spítölum var lokað tíma-
bundið á meðan lögreglan leitaði
árásarmannsins.
Lögreglumaðurinn, Eulalio Tor-
dil, er 62 ára. Hann starfaði aðallega
við að vakta opinberar byggingar í
eigu ríkisins.
Tordil gafst upp á vettvangi, í
verslunarmiðstöðinni, án þess að
til átaka kæmi. – srs
Lögreglumaður
gafst upp eftir
tvær skotárásir
Staða flokksins er
óásættanleg. Sem
fyrr vara ég flokksfólk við að
halda að á henni séu ein-
faldar lausnir.
Árni Páll Árnason
7 . m a í 2 0 1 6 l a u G a r d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð