Fréttablaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 67
| ATVINNA | LAUGARDAGUR 7. maí 2016 21
Almennar hæfniskröfur:
• Vilja til að læra og nema nýja þekkingu
• Almennur hressleiki er skilyrði.
• Metnaður til að standa sig vel í starfi.
• Hafa áhuga á góðum mat og drykk.
• Vera snyrtilegur, stundvís og jákvæður einstaklingur.
Ef þú telur þig hafa það
sem til þarf, sendu þá
umsókn ásamt ferilskrá
með mynd á
ari@matarkjallarinn.is
Simi: 866-7366
Fullum trúnaði er heitið.
Matarkjallarinn er nýr og
spennandi veitingastaður
sem opnar í byrjun maí.
Ef þú býrð yfir metnaði til að læra á nýjum og spennandi
veitingastað í miðbæ Reykjavíkur þá er Matarkjallarinn
að bæta við sig starfsfólki í eldhúsið. Við erum að leita af
matreiðslunemum og starfsfólki með reynslu i eldamensku,
þar sem metnaður og fagmenska er í fyrirrúmi.
MEÐFERÐARHEIMILIÐ Í KRÝSUVÍK
Óskar eftir að ráða smið í glerjun og gluggavinnu.
50-100 % starf.
Upplýsingar á netfanginu toggio@simnet.is
SPENNANDI STÖRF
HJÁ TÖLVULISTANUM
SÖLUFULLTRÚAR Í FULLT STARF OG SUMARSTÖRF
Í verslun okkar í Reykjavík vinnur skemmtilegur hópur sölumanna. Leitum að
liprum og þjónustulunduðum starfsmönnum til að til að bætast í hópinn. Mestu
máli skiptir jákvætt hugarfar, þægilegt viðmót og hæfileikar í mannlegum
samskiptum. Mikilvægt er að umsækjendur séu áreiðanlegir, stundvísir og
samviskusamir og geti bæði unnið sjálfstætt og í góðri samvinnu við aðra.
INNKAUPASTJÓRI
Tölvulistinn er einn stærsti innkaupaaðili tölvubúnaðar á landinu með mörg
þúsund tölvuvörur á lager. Leitum að starfsmanni til að bætast í sterkan hóp
innkaupastjóra sem sjá um birgðastýringu og samskipti við erlenda samstarfsaðila.
Reynsla af innkaupum og birgðaumsjón æskileg. Mikilvægt að umsækjendur séu
skipulagðir og áreiðanlegir. Spennandi starf fyrir metnaðarfulla umsækjendur
með áhuga á tölvum og tækni.
Hvetjum áhugasama af báðum
kynjum til að sækja um rafrænt á tl.is
REYKJAVÍK AKUREYRI HÚSAVÍK EGILSSTAÐIR SELFOSSKEFLAVÍK AKRANES
Bílstjórar
Gámaþjónustan hf óskar eftir meiraprófsbílstjórum til
starfa hjá fyrirtækinu við akstur gámabíla og annarra bíla
fyrirtækisins.
Hæfniskröfur:
o Meirapróf
o Vagnréttindi kostur
o ADR réttindi kostur
o Gott vald á íslenskri tungu.
Vinnutími er virka daga 07:00 – 18:00
og eina helgi í mánuði.
Leitað er að heilsuhraustum einstaklingum
sem eru ekki yngri en 20 ára.
Um framtíðarstörf er að ræða.
Nánari upplýsingar veitir hannes@gamar.is
KRANAMAÐUR
Óskum eftir að ráða vanan mann til starfa
á byggingarkrönum.
Meirapróf er kostur.
Framtíðarvinna.
Upplýsingar veitir Hörður í síma 693-7320
og hordur@bygg.is
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
Okkur vantar kennara í eftirtaldar námsgreinar
fyrir skólaárið 2016-2017.
Þverflauta. Starfshlutfall 40%
Saxófónn. Starfshlutfall 40%. Æskilegt er að
viðkomandi geti að auki tekið að sér nokkra
tíma í klarínettukennslu sem nemur um 20%
starfi. Það er þó ekki skilyrði.
Píanó rytmískrar deildar. Starfshlutfall 30%
Rafgítar. Starfshlutfall 75%. Viðkomandi þarf
að vera tilbúinn til að taka að sér samspil innan
rytmískrar deildar.
Sótt skal um á vef Reykjanesbæjar,
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Umsóknarfrestur er til 22.05. n.k. Umsækjendur
þurfa að vera reiðubúnir til að veita skólastjóra
heimild til þess að afla upplýsinga úr sakaskrá.
skv. lögum nr. 91/2008
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Árni
Haraldsson, skólastjóri í síma 420-1400 eða
863-7071 eða Karen Janine Sturlaugsson,
aðstoðarskólastjóri, í síma 420-1400 eða 867-
9738.
Ertu góður sölumaður
með heillandi framkomu?
Langar þig að vinna við selja Canada Goose, Casall,
Asics eða Kari Traa ásamt fullt af öðrum hágæða
vörum?
Við hjá Sportís erum að leita að sölumanni
í 100% starf í verslun okkar.
Allar umsóknir sendast á johann@sportis.is fyrir 15. maí
Ertu að leita
að talent?
Við finnum
starfsmanninn fyrir þig
lind@talent.is
bryndis@talent.is www.talent.is | talent@talent.is