Fréttablaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 44
Ókeypis myndasögudag
urinn er haldinn í dag,
laugardag, í versluninni
Nexus í Reykjavík. Þetta
er fimmtánda árið í röð
sem dagurinn er haldinn
en rúmlega 2.300 mynda
sagnaverslanir um allan
heim taka þátt og gefa
um leið gestum sérútgefin
myndasögublöð frá ýmsum
útgefendum.
Nexus hefur tekið þátt frá
upphafi og segist Þórhallur
Björgvinsson, deildarstjóri
myndasögudeildar verslunar
innar, búast við rúmlega þús
und manns eins og undanfar
in ár. „Yfirleitt er komin ógnar
löng röð þegar við byrjum að
gefa myndasögur og það mynd
ast alltaf góð stemming á meðan
beðið er. Þeir sem eiga bún
inga, hvort sem það er
mangaáhugafólk eða
ofurhetjunördar, eru
hvattir til að mæta í þeim
enda er þetta einn uppá
haldsdagur ársins hjá
þeim sem virkilega unna
myndasögum.“
Enginn tómhEntur
hEim
Dagskráin byrjar kl. 13 og
er fyrirkomulagið einfalt
að sögn Þórhalls. „Á slag
inu kl. 13 hleypum við fólki
inn og leyfum jafnan hverjum
og einum að velja sér nokk
ur blöð á meðan birgðir end
ast. Enginn ætti að fara tóm
hentur heim en reynslan sýnir
þó að það er gott að mæta tím
anlega. Um 50 titlar eru í boði,
allir bandarískir, nema ÓkeiPiss
sem Nexus og Ókei bækur gefa
út nú sjötta árið í röð. ÓkeiPiss er
hugar fóstur Hugleiks Dagssonar
og eins konar yfirlitsblað yfir ís
lenska myndasöguflóru. Hugleik
ur velur úr innsendum myndasög
um íslenskra höfunda og teiknara
og birtir það besta. Um er að ræða
stuttar sögur en hver þeirra er ein
eða tvær síður.“
Dagurinn, sem er alþjóðlegur
og nefnist Free comic book day,
er alltaf haldinn fyrsta laugar
dag í maí en þá er yfirleitt frum
sýnd stór ofurhetjumynd á heims
vísu. „Markmið skipuleggjenda
dagsins var að há
marka sýnileika myndasögunnar
og því er þessi tími ársins valinn.
Í ár er það myndin Captain Amer
ica: Civil War sem var frumsýnd
og getum við mælt heilshugar með
henni.“
höfðar til fjöldans
Margir tengja myndasögur ein
göngu við börn og unglinga en
þær hafa alltaf höfðað til ákveð
ins hóps fullorðinna. „Myndasögu
formið býður upp á svo marga
möguleika. Það eru til sögur sem
maður sér einfaldlega ekki fyrir
sér jafn áhrifamiklar sem prósa
eða myndefni einvörðungu. Gildir
þá einu hvort um er að ræða góða
Batmansögu eða fréttaskýring
ar Joe Sacco frá Palestínu.
Þannig myndar sam
spil mynda og texta
eina órjúfanlega heild.“
Hann segir l íka
myndasöguna vera tján
ingarmiðil sem virki
jafnt til hreinnar afþrey
ingar og um leið til um
fjöllunar um viðkvæm og
erfið samfélagsmál. „Það
er erfitt að ímynda sér að
nokkur leggi t.d. ósnortinn
frá sér Pulitzerverðlauna
myndasögu Art Spiegelman
um helförina eða myndasögu
Bryans Talbot um afleiðingar
kynferðisofbeldis. Myndasag
an veitir okkur líka sýn inn í
ólíka menningarheima því það
er vandfundið það land sem
ekki á einvern vísi að mynda
sögumenningu. Þegar al
vörunni sleppir eru síðan
fá ævintýri jafn góð fyrir
andann og klassísku anda
sögurnar um Jóakim og
félaga eftir meistara Carl
Barks.“
Vaxandi hlutur
kVEnna
Sjálfur byrjaði Þórhallur að
lesa myndasögur þegar hann
var sjö ára og hefur ekki
hætt síðan þótt hann safni
þeim ekki lengur. „Í grunn
skóla áttu ofurhetjur allan
hug minn en á unglingsárunum
hreifst ég af höfundum á borð
við Alan Moore, Hernandez
bræðurna og Neil Gaiman, en
þessir höfundar brutu upp form
ið og sýndu möguleika myndasög
unnar sem þroskaðs tjáningarmið
ils. Í dag er ég alæta á myndasög
ur, eins og annan skáldskap en í
sérstöku uppáhaldi eru rökkur
krimmar Jasons Aaron, geimóper
an Saga, feminíska satíran Bitch
Planet og ævintýri Íkornastúlk
unnar ósigrandi frá Marvel. Auk
þess finnst mér óhemju gaman að
fylgjast með sívaxandi hlut kven
höfunda og teiknara í myndasögu
heiminum í dag og um leið hversu
margir nýir viðskiptavina okkar
eru kvenmenn.“
Nánari upplýsingar um Ókeypis
myndasögudaginn má finna á
Facebook.
Þroskaður miðill
Árlegur Ókeypis myndasögudagurinn verður haldinn um allan heim í
dag. Verslunin Nexus í Reykjavík heldur upp á hann fimmtánda árið í
röð og gefur m.a. sérvalin myndasögublöð.
Myndasagan er tjáningarmiðill sem virkar jafnt til hreinnar afþreyingar og um leið til umfjöllunar um viðkvæm og erfið sam-
félagsmál að sögn Þórhalls Björgvinssonar, deildarstjóra myndasögudeildar Nexus. MYND/VILHELM
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Með hækkandi sól
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-15
Stretchbuxur
á 13.900 kr.
- 16 litir
- str. 34 - 54
- háar í mittið
- 7/8 sídd
Helga Björg Þórólfsdóttir
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
7 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R4 F ó L k ∙ k y n n i n G a R b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a R b L a ð ∙ h e L G i n