Fréttablaðið - 07.05.2016, Síða 26
Læknum jafnvel hótað
Eitthvað er um að læknum og jafn-
vel fjölskyldum þeirra sé beinlínis
hótað, skrifi þeir ekki upp á lyf. Ólaf-
ur kannast við slík mál. „Við höfum
heyrt dæmi þess að verið sé að hóta
læknum, já.“
En hafa margir læknar misst leyfið
fyrir að skrifa upp á óeðlilegt magn
ávanabindandi lyfja?
„Það eru dæmi um lækna sem hafa
misst læknaleyfið og eins leyfið til að
ávísa ávanabindandi lyfjum.“
Hann vill þó ekki gefa upp hversu
margir læknar hafi misst leyfið. „Við
teljum óréttlátt að fara að birta það.
Læknirinn getur verið að missa leyfið
því hann er að ávísa á sjálfan sig, aðra
einstaklinga eða hefur gerst sekur um
annað en það sem viðkemur ávís-
unum lyfja. Þá eru einnig dæmi um
lækna sem leggja inn leyfið sjálfir.“
Séu þessar sölusíður skoðaðar kemur í ljós að þar eru flestir notendur undir einhvers konar
dulnefnum. Sölumennirnir leggja
mismikið upp
úr auglýsingun-
um en í sumum
tilvikum eru
jafnvel búnar
t i l s é r st a ka r
a u g l ý s i n g a r
með slagorð-
um á borð við:
„Bleika þruman –
verður skemmti-
lega ruglaður á
þessum.“ Önnur
auglýsing hljómar svona: Alvöru
keyrsla, pólska krítin! Ég nota þetta
sjálfur og er búinn að gera lengi.
Mikil virkni, hressir þig við og
heldur þér endalaust gangandi! Er
oftast vakandi á næturnar og alltaf
vakandi um helgar frá föstudegi
til sunnudags …“ skrifar einn sölu-
maðurinn á síðunni.
„Sala fer ekki alfarið fram þarna
en slatti af þessari smásölu fer
fram á Facebook,“
segir Runólfur
Þórhallsson, yfir-
maður fíkniefna-
deildar lögreglunn-
ar. „Við höfum farið
í svona átak þar sem
við höfum tekið 1-2
mánuði og gert rassíur
í þessu. Við verðum að
forgangsraða í þessu eins og öllu
öðru,“ segir Runólfur.
Taka reglulega rassíur
Yfirleitt sé um að ræða litla
skammta sem enda sjaldnast með
dómi heldur frekar sektum. „Þeir
læra fljótt á hvernig við fylgjumst
með og bregðumst við. Símanúm-
erin sem eru auglýst eru allt óskráð
frelsisnúmer sem jafnvel ganga
kaupum og sölum. Við erum að ná
litlu magni í einu þannig að það
er talsverð vinna fyrir litla upp-
skeru en við fylgjumst með þessum
síðum og tökum reglulega rassíur,“
segir Runólfur. Hann segir reglulega
koma tilkynningar um slíkar síður.
Þegar síðunum er lokað spretta
fljótt upp nýjar og erfitt er að koma
í veg fyrir það. Hóparnir eru oft
lokaðir og þarf sérstaklega að láta
bjóða sér til þess að komast inn í þá.
Talsvert magn lyfseðilsskyldra
lyfja er að finna á þessum síðum.
„Það eru lyf þarna bæði frá þeim
sem eru að fá lyf á réttmætan hátt
en eru kannski að
fá of mikið og svo
líka eins frá þeim
sem eru að falsa
lyfseðla.“
Neyslutengt
vændi
„V i ð h ey r u m
ekki af mörgum
t i l fel lum, en
þ e tt a e r a ð
gerast og hefur
verið að gerast. Oft eru þetta
ungir krakkar, sumir strokukrakk-
ar sem leiðast út í fíkniefnaneyslu.
Búnir að brenna allar brýr að baki
sér fjárhagslega og þurfa að finna
leiðir til að fjármagna neysluna,“
segir Snorri Birgisson lögreglu-
fulltrúi sem sér um þau mál sem
snúa að mansali og vændi. Hann
segir ákveðinn hóp auglýsa vændi á
Facebook, það sé þó
aðallega neyslutengt.
„Þetta er innan fíkni-
efnaheimsins. Fólk
í neyslu er að nýta
sér þessa þjón-
ustu,“ segir Snorri.
„Það eru bæði
skipti á lyfjum og
dópi og líka pening-
ar sem þessir einstaklingar fá í
hönd. Þetta er neyslutengt.“
Snorri segir lögregluna fá margar
ábendingar um slíkar síður. „Við
höfum látið loka slatta af síðum,
sérstaklega með íslenska notendur,
þar sem er augljóst vændi. Facebook
hefur tekið til skoðunar og lokað
óhikað ef fyrirtækið er sammála en
það þarf að vera áberandi að þetta
sé vændissíða.“
Það er hins vegar ekki alltaf aug-
ljóst að verið sé að auglýsa vændi.
Sumir auglýsa eftir hitting fyrir $
eða nota svokallað peningamerki
til þess að skilgreina hvers konar
þjónustu sé um að ræða.
Gögn sem Fréttablaðið hefur
undir höndum og sýna samskipti
ungrar konu sem glímt hefur við
fíknivanda, á Facebook, sýna að fjöl-
margir vilja kaupa vændi í skiptum
fyrir peninga eða fíkniefni. Konan
setti inn auglýsingu og fékk yfir 100
skilaboð á nokkurra daga tímabili
þar sem menn vildu kaupa þjónustu
Það eru bæði skipti á
lyfjum og dópi og líka
peningar sem Þessir
einstaklingar fá í
hönd. Þetta er
neyslutengt.
Snorri Birgisson,
lögreglufulltrúi
Við erum að ná litlu
magni í einu Þannig að
Það er talsVerð Vinna
fyrir litla uppskeru en
Við fylgjumst með
Þessum síðum og tökum
reglulega rassíur.
Runólfur
Þórhallsson,
yfirmaður
fíkniefnadeildar
Vændi er auglýst á Facebook. Ungir fíklar selja sig á þessum síðum til þess að eiga
fyrir næsta skammti.
Flugsæti til Frankfurt
á góðu verði í sumar
Eigum nokkur flugsæti laus til Frankfurt í maí og júní
með þýsk um samstarfsaðilum. Flogið er frá Íslandi
tvisvar í viku; á sunnu dögum og fimmtudögum.
Flogið er með flugfélaginu Lufthansa. Innifalin er 20kg
farangursheimild ásamt flugmáltíð og drykkjum.
Verð með
sköttum:
Önnur leið frá kr.
13.999
Nánari upplýsingar á
skrifstofutíma í síma
588 8660
Langholtsveg 109 · 104 Reykjavík · Sími 588 8660 · flug@snaeland.is
Lyfjateymi Embættis landlæknis sér um reglubundið eftirlit með ávísunum á ávanabindandi lyf.
„Við skoðum öll ávanabindandi lyf
og þá hvort einhverjir eru að fá lyfin
í miklum mæli eða frá mörgum
læknum á sama tíma, þá skoðum við
einnig sjálfsávísanir lækna. Þetta eru
um 130 lyfjaheitisnúmer sem eru til
skoðunar,“ segir Ólafur B. Einarsson,
verkefnisstjóri lyfjamála hjá Embætti
landlæknis. „Við fylgjumst mjög
grannt með þessu og erum í miklum
samskiptum við lækna. Í þessum
úttektum sjáum við fólk sem er að fá
gríðarlega mikið magn lyfja ávísað.
Oftast eru þetta einstaklingar sem
eru að glíma við mjög erfið veikindi.“
Í frétt Morgunblaðsins frá því
á fimmtudag segir að komið hafi
upp dæmi um að fólk sé að nýta sér
kennitölur annarra til að leysa út lyf.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins hefur það færst í aukana að fólk
sem ásælist svokallað ,,læknadóp“
eða ávanabindandi lyf, skrái sig inn í
Facebook-hópa ætlaða sem stuðning
við þá sem glíma við ýmis veikindi
og þurfa lyf við sínum kvillum. Þar
inni deili fólk persónulegum upp-
lýsingum um sig. Kennitölum þeirra
sé stolið og lyf leyst út á nöfnum
þeirra. Ólafur kannast við þessa teg-
und mála. „Við höfum fengið svona
ábendingar á okkar borð. Ef verið er
að taka út lyf í nafni einhvers, án þess
að viðkomandi viti af því, þá getur sá
einstaklingur látið loka fyrir úttektir,
þannig að hann einn sé sá sem geti
leyst út lyfin í apótekum.“
Stórt vandamál á Íslandi
Ólafur segist hafa fengið ábendingar
um Facebook-síður þar sem verið er
að selja lyfseðilsskyld lyf. „Á tímabili
vorum við að fá mikið af ábending-
um um slíkt. Þar voru upplýsingar
um símanúmer og nöfn einstaklinga,
en svo allt í einu datt það upp fyrir og
við hættum að fá slíkar ábendingar.
Þá virðist þetta hafa farið inn í lok-
aðar grúppur sem er erfiðara að hafa
aðgang að.“
Hann segir sína tilfinningu vera
þá að fólk sem glími við lyfjafíkn
hafi nægan aðgang að lyfjum en
það er erfitt að koma í veg fyrir mis-
notkun þegar aðrir fá lyfin ávísuð.
Vandamálið er því bæði fíknivandi
fólks og einstaklingar sem gera sér
upp veikindi til að geta grætt á sölu
lyfja sem það fær ávísuð. Þessir ein-
staklingar gefa eða selja lyf beint til
fíkla eða til milliliða, sem skaffa svo
fíklum lyf gegn háu gjaldi. „Það er
eitthvert svona form á þessu. Það er
stórt vandamál á Íslandi, hvað mikið
af læknalyfjum er notað af öðrum en
þeim sem fá þau ávísuð. Við höfum
litlar vísbendingar fengið um að
verið sé að flytja þetta inn til landsins
eftir öðrum leiðum. Þannig að þetta
virðist allt komið úr apótekum hér-
lendis.“
Lyf úr íslenskum apótekum
Þetta Virðist allt
komið úr apótekum
hérlendis.
Ólafur B. Einarsson
Það er mjög mikið
af sölusíðum á
facebook Þar sem
allt Virðist Vera til
sölu. fíkniefni, Vændi,
Þýfi og önnur lyf.
Guðmundur Fylkis-
son lögreglumaður
og það spretta upp nýjar síður en
við eigum ekki að lúta í lægra haldi
fyrir þessum hluta samfélagsins sem
er þarna að brjóta af sér.“
Guðmundur vill þó taka fram að
þetta sé ekki stór hópur sem noti sér
þessar síður. „Þetta er veru-
leiki en ég get ekki
sagt þetta sé margir
tugir einstaklinga
sem ég verð
var við en því
miður á þetta
sér stað.“
Hann segist
líka vita til
þess að vændi sé boðið til sölu á
þessum síðum. Hann viti til þess
að fíklar skipti á kynlífi fyrir næsta
skammt. „Vissulega verður maður
var við það að vændi er í boði.“
Ýmislegt þýfi er einnig boðið í
skiptum fyrir fíkniefni eða lyf. Til
dæmis hefur borið á að fólk sé að
stela kjöti í skiptum fyrir fíkni-
efni eða peninga. „Það virðist vera
algengt að menn séu að fara inn
í verslanir að stela kjöti. Þau eru
að stela þessu og selja síðan eða
skipta fyrir efni.“ Hann nefnir líka
66°Norður úlpur sem dæmi um þýfi
sem sé algengt.
hennar og vissu í flestum tilvikum af
fíknivanda hennar. Margir buðu lyf
í skiptum fyrir kynlíf. Snorri segir
bæði stelpur og stráka vera á þess-
ari síðu að selja sig fyrir fíkniefni
eða lyf.
Þýfi og vændi
Guðmundur Fylkis-
son fer fyrir sérstöku
verkefni hjá lögregl-
unni sem snýr að því
a ð f i n n a
strokubörn.
Su m þ e ss -
a r a b a r n a
eru í neyslu
og hefur hann því í gegnum starf
sitt kynnst svartamarkaðnum á
Face book. „Það er mjög mikið af
sölusíðum á Facebook þar sem
allt virðist vera til sölu. Fíkniefni,
vændi, þýfi og önnur lyf,“ segir Guð-
mundur sem hefur orðið var við
að sumir skjólstæðinga hans nota
þessar síður. „Mitt ráð til foreldra
þessara krakka er að ef þau rekast
á svona síður eða einstaklinga sem
eru að selja þá eiga þau að nota til-
kynningarhnappinn á Facebook.
Það getur verið að þeir hunsi þig í
fyrstu 1-2 skiptin sem þú tilkynnir
Vímuefni, lyfseðilsskyld lyf og vændi
7 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R26 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð