Fréttablaðið - 07.12.2015, Síða 2

Fréttablaðið - 07.12.2015, Síða 2
SKREYTUM HÚS 45% AFSLÁTTUR SÁ ALLRA VINSÆLASTI TIL JÓLA Soffía Dögg hjá Skreytum hús valdi litinn Fæst einungis í Slippfélaginu Borgartúni 22 Rvk. Dugguvogi 4 Rvk. Gleráreyrum 2 Ak. Dalshrauni 11 Hfj. S ími : 5 8 8 8000 s l ipp fe l ag id . i s FRÍAR LITAPRUFUR Það er engin tilviljun að Skreytum hús liturinn okkar er einn sá allra vinsælasti. SamfélagSmál Kvenkyns fórnarlömb mansals eiga kost á öruggri neyðar- dvöl á vegum velferðarráðuneytisins í Kvennaathvarfinu, segir Eygló Harðar- dóttir, félags- og húsnæðismálaráð- herra. Engin sérútbúin úrræði eru hins vegar til fyrir karlmenn og börn. Þurfi karl á húsnæðisúrræði að halda er leyst úr því með dvöl á gisti- heimili sem félagsþjónusta sveitarfé- lags sér um eða með öðrum tryggum hætti í samráði við lögregluyfirvöld. Þetta kemur fram í svari Eyglóar á Alþingi við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, þingmanni Framsóknarflokks, um eftirfylgni áætl- unar um aðgerðir gegn mansali. Í áætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn mansali 2013-2016 er velferðarráðuneytið skráð fyrir þrem- ur þáttum. Í fyrsta lagi að tryggja að öllum fórnarlömbum mansals standi til boða líkamleg, félagsleg og sálræn aðstoð. Í öðru lagi að tryggja öruggt húsnæði fyrir öll fórnarlömb mansals og í þriðja lagi að skoða möguleika á að þróa úrræði til að bæta félagslega færni og andlega líðan þeirra. Eygló segir dæmi um að fórnar- lömb mansals hafi leitað til heilsu- gæslustöðva og Landspítalans þar sem þau hafi eftir atvikum notið þjónustu neyðarmóttöku, geðsviðs og fæðingar- deildar, en þau eigi aðeins rétt á heil- brigðisþjónustu í neyðartilvikum. Þá segir Eygló ráðuneytið endur- greiða félagslega ráðgjöf og fjárhagsað- stoð fyrir brýnustu nauðsynjum. Á vegum velferðarráðuneytis starfa tvö teymi sem vinna í samræmi við framangreindar þrjár aðgerðir. Annað teymið er samráðs- og samhæfingar- teymi, en hitt er framkvæmdateymi sem tekur einstök mál til meðferðar. Síðustu tvö ár hefur verið lögð áhersla á fræðslu um mansal vegna þess að ekkert fjármagn fylgdi aðgerðaáætlun ríkisstjórnar gegn mansali. Í skýrslu bandaríska utan- ríkisráðuneytisins frá því í sumar er aðgerðaleysi stjórnvalda gagnrýnt. Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, segir ekki koma til greina hjá athvarfinu að taka á móti karlmönnum eða börnum. Mæður geta þó dvalið með börnum sínum í athvarfinu en þá eru börnin á ábyrgð mæðra sinna. „Við getum ekki tekið ábyrgð á börn- um, við höfum ekki til þess leyfi og það samræmist ekki okkar starfsemi. Það vantar góð úrræði fyrir karla og börn.“ Aðeins ein kona hefur dvalið í Kvennaathvarfinu á vegum velferðar- ráðuneytisins síðan það gerði sam- starfssamning við Kvennaathvarfið. „Árinu áður dvöldu hér margar konur sem voru grunuð mansalsfórnarlömb og þurftu margar á mikilli þjónustu að halda.“ Sigþrúður segir margt óljóst þótt nú hafi verið ákveðið að þegar grun- ur vakni um mansal sé sett af stað neyðar teymi sem hugi að þörfum fórnarlambsins. „Það eru engir skýrir verkferlar til. Það er ekki hægt að útskýra fyrir grunuðu fórnarlambi mansals hvað bíður þess ákveði það að segja sögu sína,“ segir hún og segir með því hvatann til að greina frá man- sali lítinn. kristjanabjorg@frettabladid.is Bara eitt fórnarlamb í athvarfinu síðustu 2 ár Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra segir velferðarráðuneytið veita kven- kyns fórnarlömbum mansals örugga neyðardvöl í Kvennaathvarfinu. Fyrir karla og börn sem eru fórnarlömb mansals eru engin úrræði. Eygló Harðardóttir greinir frá því að vel- ferðarráðuneytið endurgreiði kostnað sveitarfélaga af nauðsynlegri þjónustu til fórnarlamba mansals. Fréttablaðið/Ernir Við getum ekki tekið ábyrgð á börnum, við höfum ekki til þess leyfi og það samræmist ekki okkar starf- semi. Það vantar góð úrræði fyrir karla og börn. Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins Vaxandi austanátt, fyrst sunnan til á landinu. Mjög hvasst og fer að snjóa sunnanlands síðdegis. Annað kvöld er spáð ofsaveðri eða fárviðri víða á landinu og þá er best að halda sig innandyra! Óveðrinu fylgir snjókoma, en talsverð slydda eða rigning á Suður- og Suðausturlandi. Sjá Síðu 20 Veður Lognið á undan storminum Í gær lögðu margir leið sína í Ártúnsbrekku í Reykjavík til að nýta snjóinn í skíðaiðkun. Jafnt ungir sem aldnir höfðu gaman af hreyfingunni eins og sjá má þrátt fyrir að kuldinn færi niður í sjö gráðu frost. Hlíðarfjalli var hins vegar lokað í gær og voru margir ósáttir við þá ákvörðun. Fréttablaðið/VilHElm finnland Finnska ríkisstjórnin legg- ur um þessar mundir drög að innleið- ingu grunnframfærslu sem nemur 800 evrum, jafnvirði 113 þúsu"nd íslenskra króna, skattfrjálst til allra í hverjum mánuði. Í staðinn verða allar bætur lagðar niður. Samkvæmt könnun sem gerð var af finnsku félagstryggingastofnuninni sem fer með málið studdu 69 prósent tillöguna. Samkvæmt Bloomberg nemur kostnaðurinn af þessu á ári 52,2 milljörðum evra, jafnvirði 7.400 milljarða íslenskra króna. Lokatil- laga verður ekki kynnt fyrir finnska þinginu fyrr en í nóvember á næsta ári. Hér hafa þingmenn Pírata lagt fram þingsályktunartillögu um borg- aralaun, eða skilyrðislausa grunn- framfærslu. Hugmyndin er að leysa almannatryggingakerfið að langmestu af hólmi. Lagt var til að félagsmálaráð- herra yrði falið að skipa starfshóp til að kortleggja leiðir til að tryggja öllum borgurum landsins skilyrðislausa grunnframfærslu með það að mark- miði að styrkja efnahagsleg og félags- leg réttindi fólks og útrýma fátækt. – sg Finnar leggja til laun fyrir borgarana RúSSland Kirsan Iljúmtsjínov, forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE), hefur ákveðið að stíga tíma- bundið til hliðar. Georgios Makro- poulos gegnir embættinu á meðan. Ástæðan er refsiaðgerðir Banda- ríkjanna gagnvart Iljúmtsjínov. Tengsl hans við Sýrland eru afar náin en honum er gefið að sök að hafa aðstoðað Assad Sýrlandsforseta og Seðlabanka Sýrlands við að flytja fjár- magn til og frá Sýrlandi. Iljúmtsjínov á sér skrautlega fortíð, en hann naut áhrifa í gegn um KGB, leyniþjónustu Sovétríkjanna, var góð- vinur Muammars Gaddafi, fyrrverandi leiðtoga Líbíu, og trúir staðfastlega á tilvist geimvera og telur sig hafa verið numinn á brott af þeim árið 1997. – srs Forseti FIDE stígur til hliðar BRetland Yfir þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á Bret- landi vegna stormsins Desmond síðustu daga. Mikið hvassviðri með úrkomu hefur gengið yfir England norðvestanvert og austurströnd Skotlands. Flóð vegna veðursins eru sögð þau mestu í manna minnum. Í gær voru um 55 þúsund heimili án raf- magns. Breski herinn aðstoðar íbúa. Tilkynnt hefur verið um eitt dauðs- fall af völdum flóðanna. – gló Þúsund þurft að flýja heimili sín 7 . d e S e m B e R 2 0 1 5 m á n u d a g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.