Vesturbæjarblaðið - Jul 2015, Page 1
Gamall og mjög heillegur
hafnargarður hefur komið í ljós
við uppgröft við Austurbakka
við Reykjavíkurhöfn þar sem
Landstólpi þróunarfélag hyggst
ráðast í stærsta byggingarverk-
efni sem fram til þessa verður
ráðist í á Miðborgarsvæðinu.
Samkvæmt deiliskipulagi má
byggja húsnæði á reitum eitt
og tvö við Austurbakka allt
að 21.400 fermetra ofanjarðar
auk bílakjallara. Svo virðist
sem ekki hafi verið vitað um
tilvist hafnargarðsins við gerð
deiliskipulags svæðisins eða
við ákvarðanatöku bygginga-
fulltrúa og forsvarsmanna
þróunarfélagsins.
Eftir að gröftur var hafin með
vinnuvélum á hinu fyrirhugaða
byggingarsvæði kom garðurinn í
ljós og athygli vakti hversu langur
og heillegur hann er. Spurningar
hafa vaknað hvort Minjastofnun
muni leggja til að varðveita eigi
garðinn eða hluta af honum.
Pétur Ármannsson arkitekt og
sviðsstjóri Minjastofnunar hefur
lýst vilja til þess hluti af hafnar-
garðinum verði varðveittur í borg-
arumhverfinu og að betra hefði
verið að rannsaka svæðið áður
en bundnir voru samningar um
að fara í umfangsmiklar bygg-
ingaframkvæmdir. Leyfi þurfi frá
Minjastofnun til þess að breyta
honum eða fjarlægja hluta af
honum eða garðinn með öllu. En
kemur þessu fundur til þess að
breyta áformum um bygginguna
á Austurbakka. Of snemmt er að
segja til um það þar sem viðræður
við Minjastofnun eiga efttir að fara
fram og ákvörðun hennar liggur
ekki fyrir. Pétur Ármannsson telur
að þar sem búið sé að ganga frá
samningum um framkvæmdir
á svæðinu geti fundur garðsins
skapað vandræðaástand. Líkur er
til að varðveita verði að minnsta
kosti hluta garðsins sem getur
sett ákveðin strik í áform bygg-
ingaraðilans. Spurning er um
hvort minnka þurfi bílakjallara
sem á að vera undir húsinu. Þá er
einnig spurning um hvort byggja
verður yfir garðinn eða þann hluta
hans sem nauðsynlegt verður
talið að varðveita.
7. tbl. 18. árg.
JÚLÍ 2015Dreift frítt í öll hús í póstnúmer 101 og 107
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Afgreiðslutími:
Virka daga: kl. 9-18:30
Laugardaga: kl. 10-16Í gamla Héðinshúsinu, Seljavegi 2
Góð þjónusta – Hagstætt verð
Vesturbæjarútibú við Hagatorg
Fyrir heimili - húsfélög - fyrirtæki
Úrval slökkvitækja. Leitið tilboða!
OPIÐ
allan sólarhringinn
á Eiðistorgi
- bls. 4-5
Fjölþjóðlegur
sönghópur gerir
víðreist
- bls. 12-13
Bernskuminningar
Helga Ágústssonar
fv. sendiherra
PANTAÐU Á
DOMINO’S APP SÍMI 58 12345
Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930
Í ALFARALEIÐ Getur gamli hafnargarðurinn tafið
framkvæmdir á Austurbakka?
Þessar þrjá stúlkur léku tónlist fyrir vegfarendur á Laugaveginum síðast liðinn föstudag. Götutónlist er
nýlegt fyrirbæri hér á landi en hér njóta stúlkurnar sem skipa tríó þess að Laugavegurinn er Sumargata –
það er að vera göngugata á sumrin. Margir stöldruðu við til að hlíða á flutning þeirra.
Hagamel 39 - Sími 551-0224
Kjöt á grillið!
Opið til kl. 20.00 öll kvöld
- helgartilboð úr kjötborðinu
Nýupptekið íslenskt grænmeti
Svínahnakki 1498
Lambafile 4138
Krydduð læri 1798