Vesturbæjarblaðið - júl. 2015, Blaðsíða 5
bara í augnablikinu. Það er margt
sem getur gerst þegar við erum
að æfa lögin og þróa sönginn en
þá er bara að bregðast við því og
vinna úr aðstæðunum.
Sumar, söngur og
matarlist
Hugmyndin um að tengja
söng og matarlist saman sem
þeir Olgufélagar ætla að gera í
Iðnó í sumar er óvenjuleg.
Hvernig varð hún ti l . „Sú
hugmynd fæddist í Haarlem í
Hollandi þar sem Olga hefur
haldið nokkra tónleika af þessu
tagi í heimahúsi - húsi foreldra
Jonathans sem er annar tenór í
hópnum. Þetta áhugaverða form
þar sem blandað er saman tónlist
og mat hefur vakið mikla lukku
í Hollandi. Strákarnir í Olgu eru
spenntir að kynna þessa upplifun
fyrir Íslendingum í sumar.
Boðið verður uppá fjögurra
rétta matseðil ásamt dúndrandi
söng inn á milli. Olga tekur að
sjálfsögðu þátt í að bera fram
matinn. Við erum líka að túra um
Ísland í sumar. Viljum hafa þetta
skemmtilega blöndu af sumri,
söng og matarmenningu.“
Ætla að kynna evrópsk
þjóðlög vestra
Og nú stefna þeir félagarnir
til Bandaríkjanna. „Já – það er
rétt. Við stefnum í vesturveg.
Haft var samband við okkur að
vestan af aðila sem kemur frá
umboðsskrifstofu þar. Hann hafði
heyrt í okkur á netinu og fannst
að tónlistarflutningur okkar gæti
passað við Bandaríkjamarkað.
Hann var ekki með í huga að við
myndum flytja bandarísk lög
heldur fyrst og fremst evrópsk
þjóðlög. Leyfa íbúum Vesturálfu
að heyra eitthvað nýtt.“ Pétur
segir spennandi tíma fram undan
hjá þeim. „Nú er þessi aðili að
selja okkur -meðal annars í
leikhús og kirkjur. Við höfum
gert talsvert af því að syngja
í kirkjum – einkum vegna þess
hversu góður hljómburður
er í mörgum þeirra þótt það
sé alls ekki algilt,“ segir þessi
söngglaði Vesturbæingur sem
er ásamt félögum sínu að
kynna Íslendingum nýjungar í
tónlistarflutningi bæði er varðar
tónlistina sjálfa og einnig að
blanda matarmenningu við
tónheyrnina.
5VesturbæjarblaðiðJÚLÍ 2015
Félagarnir í Olga Vocal Ensemble leggja mikið upp úr að syngja í kirkjum vegna þess hversu góður
hljómburður er í mörgum þeirra.
Rúnstykki á 80 krónur
Alla daga!
Opið virka daga frá 07:30 til 18:00
og um helgar frá 08:00 til 17:00Bernhöftsbakarí ehf. | Bergstaðarstræti 13 | Sími: 551-3083
• Ódýr veitingastaður/
bar og kaffihús
• Vespuleiga
• Laundromat
• Sjálfsþjónustu viðgerðaraðstaða
fyrir hjól af öllum gerðum
Opið alla daga 8-23
Bike Cave
Einarsnesi 36 • 101 RVK
www.bikecave.is
Erum á Facebook
Símar 770-3113 og 666-6136www.borgarblod.is