Vesturbæjarblaðið - jul 2015, Qupperneq 8
8 Vesturbæjarblaðið JÚLÍ 2015
Bankaráð Landsbankans hef ur
tekið ákvörðun um að ráðast í
ný bygg ingu við Austurhöfin í
Reykja vík og er bygg ing unni
ætlað að hýsa alla miðlæga
starf semi bank ans. Áætlan ir
gera ráð fyr ir að ár leg ur rekstr
ar kostnaður vegna hús næðis
lækki um 700 milljón ir króna og
að fjár fest ing in borgi sig upp á
um tíu árum.
Í dag fer starf semi Lands
bank ans fram í mörg um hús um
í borg inni. Flest þeirra eru
leiguhúsnæði og leigu samn ing
ar til skamms tíma. Lands bank
inn rek ur starf semi á tæp lega 29
þúsund fer metr um á höfuðborg
ar svæðinu en ný bygg ing in verður
um 14.500 fermetrar auk 2.000
fermetra rýmis í kjall ara. Gert er
ráð fyrir að nán ast öll starfsemi
bankans verði færð und ir eitt
þak í nýrri bygg ingu og með því
fækk i þeir fer metr um sem notaðir
verða fyrir starf semi bank ans
á þessu svæði um allt að 46%.
Áætlað er að ár leg ur rekstr ar
kostnaður hús næðis bankans
lækki um 700 milljónir króna og
að fjár fest ing vegna ný bygg ing ar
borgi sig upp á um einum áratug.
Í ág úst mun Lands bank inn kynn a
sam keppni í sam vinnu við Arki
tekta fé lag Íslands um hönn un
ný bygg ing ar inn ar áhersla er á
að hanna, hagkvæma bygg ingu
sem hægt verður að þróa í takt
við breyt ing ar á starf semi og
um svif um bank ans.
Gagnrýni gætir
Nokkurrar gagnrýni hefur
gætt vegna byggingaráforma
Landsbankans . E l ín Hirst
þingkona Sjálfstæðisflokksins
sagði í pistl i á Eyjunni á
dögunum að það væri í raun
móðgun við viðskiptavini sem
fá lága innlánsvexti en borga
háa útlánsvexti og ýmis konar
þjónustugjöld. Elín benti á að
Landsbankinn sé að stórum hluta
í eigu ríkisins eftir fjármálahrunið
og út í hött að verið sé að ræða
slíkar framkvæmdir, á dýrasta
stað í bænum á sama tíma
og fé skorti til að byggja nýjan
Landspítala. Guðlaugur Þór
Þórðarson alþingismaður og
varaformaður fjárlaganefndar
Alþingis sagði í fréttum nýlega
að illa væri farið með peninga
skattgreiðenda með því að byggja
höfuðstöðvar Landsbankans á
dýrasta stað á landinu. Andri Geir
Arinbjarnarson verkfræðingur og
höfundur pistla á Eyjunni meðan
bankar á Wall Street séu að færa
starfsemi sína frá miðborg New
York til að auka samkeppnishæfni
sé íslenski r íkisbankinn á
tímaflakki til fortíðar.
Landsbankinn
miðbæjarfyrirtæki
Hjálmar Sveinsson formaður
umhverfis og skipulagsráðs
Reykjavíkur telur höfuðstöðvar
Landsbankans betri kost á
Austurhöfn heldur en aðra
hótelbyggingu og Krist ján
Kristjáns son upp lýs inga full trúi
Lands bank ans seg ir að bank inn
sé skilgreindur sem miðbæj ar
fyr ir tæki. Höfuðstöðvar bank ans
hafa verið við Aust ur stræti í
hjarta miðbæj ar ins síðan fyr ir
alda mót in 1900 og með þessari
ákvörðun bankaráðsins er verið
að festa þann skilning í sessi.
Steinþór Pálsson bankastjóri
Landsbankans hefur sagt í
fréttum að bankinn búi við
óviðeigandi aðstæður. Hann sé
á mörgum stöðum í Kvosinni
og borgi víða háa leigu. Hann
hefur sagst vilja sjá bankann þar
sem verslun og viðskipti eigi sér
stað. Ýmsir kostir hafa verið
skoðaða og lóðin við Austurhöfn
hafi fengist á góðu verði.
Landsbankinn
á Hörpureitinn
Teikning sem sýnir staðsetningu fyrirhugaðs Landsbankahúss á
Hörpureitnum og afstöðu þess ti l ; Hörpu, væntanlegrar
hótelbyggingar, væntanlegs verslunar og þjónustuhúss og til
Seðlabankans.
Gamli Landsbankinn við Austurstræti. Bankinn hefur verið í
miðborginni í á annað hundrað ár og er Landsbankahúsið hluti af
byggingarsögu Íslands. Stjórnendur bankans hafa áhuga á að húsið
fái hlutverk í almannaþágu til framtíðar og hefur verið opnuð gátt á
vefsíðu bankans þar sem fólki gefst kostur á að tjá hugmyndir sínar
um framtíðarhlutverk hússins.
Önnumst alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Útfarar-
og lögfræði-
þjónusta
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Hugrún Jónsdóttir
útfararstjóri
Rósa Kristjánsdóttir
útfararstjóri
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Snævar Jón Andrésson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Katla Þorsteinsdóttir
lögfræðiþjónusta
Gestur Hreinsson
útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Sumarhátíð og
gleði í Vesturborg
Sumarhátíð Vesturborgar
var haldin 25. júní sl. fyrir
hátíðina höfðu börnin útbúið
sumarkórónur og svo fengu þau
sem vildu andlitsmálningu áður
en lagt var af stað í skrúðgöngu
um nágrennið. Skrúðgangan
var leidd af blásarasveitinni
Ventus Brass og að henni
lokinni var slegin upp veisla í
garðinum hjá Vesturborg. Pylsur
voru grillaðar og hápunktur
hátíðarinnar var þegar Lína
langsokkur mætti á svæðið.
Við í Vesturborg viljum þakka
öllum sem að hátíðinni komu
kærlega fyrir einstaklega vel
heppnaðan dag. Leikskólinn
Vesturborg og foreldrafélag
Vesturborgar hlutu tilnefningu
til foreldraverðlauna Heimilis
og skóla 2015 fyrir tiltektar og
framkvæmdadag á Vesturborg.
Við erum mjög stolt og
þökkum okkar frábæra foreldra
félagi fyrir mikið og gott starf.
Svo má bæta við að Ellan okkar
Elín Árnadóttir aðstoðarleik
skólastjóri átti fyrr í mánuðinum
20 ára starfsafmæli á Vesturborg.
Henni eru þökkuð vel unnin störf.
Vesturborgarkrakkarnir voru í sólar og sumarskapi á sumarhátíðinni.
Elín Árnadóttir
aðstoðarleikskólastjóri
Fóru á Austurvöll
á kvennadaginn
Elstu börnin af nokkrum
leikskólum í Vesturbænum;
Mýri, Tjörn, Drafnarsteini,
Ægisborg, Vesturborg og
Sæborg fóru á Austurvöll
þann 19. júní síðastliðinn til
að fagna þeim tímamótum
að 100 ár eru liðin frá því að
konur fengu kosningarétt.
Börnin sungu saman Áfram
stelpur og Öxar við ánna.
Börnin komu með heimatilbúna
íslenska fána sem þau höfðu
búið til og sett á prik. Nokkur
báru spjöld þar sem á stóð
100 ár frá kosningarétti kvenna
á Íslandi.
Börnin lituðu fána og aðrar myndir og sungu Áfram stelpur á
leiðinni á Austurvöll.