Vesturbæjarblaðið - jul. 2015, Side 10
10 Vesturbæjarblaðið JÚLÍ 2015
Gómsæti í göngufæri
Geirsgata 1 • Sími 511 1888
Eru tryggingarnar þínar í lagi?
Kristinn Rúnar Kjartansson
kristinnk@vis.is
Sími 560 5155 | GSM 820 0762
VÍS – þar sem tryggingar snúast um fólk
Býð faglega tryggingaráðgjöf og tilboð í tryggingar fyrir
bæði einstaklinga og fyrirtæki.
Það er mikilvægt að tryggingarnar séu í takt við þarfir
þínar eða fyrirtækis þíns hverju sinni.
Hafðu samband og ég fer yfir málin með þér.
AUGLÝSINGASÍMI
511 1188
Jóhanna verðlaunuð
sem sjósundsgarpur
Um síðustu mánaðamót var
ákveðið að verðlauna Jóhönnu
Haraldsdóttur en hún er ein
úr hópnum sem hefur stundað
sjósundið af kappi í vetur.
Jóhanna er 68 ára og starfar á
þjónustumiðstöð Vesturbæjar.
Hún ákvað að prufa sjósundið
og fór varlega í sakirnar í upphafi
og gaf sér góðan tíma til að
venjast hitabreytingunni. Hún
hefur ná góðum tökum á þessari
íþrótt og synti 250 metra nýlega.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
mætti í Nauthólsvíkina 30. Júní
sl. til þess að heiðra Jóhönnu og
afhenti henni viðurkenningarskjal
fyrir góðan árangur. Ragnheiður
Va l g a r ð s d ó t t i r, f o r m a ð u r
Sjósunds- og sjóbaðsfélags Reyk-
javíkur afhenti Jóhönnu gjafakort
í Nauthólsvík til eins árs. Jóhanna
var að vonum kát og þakkaði
kærlega fyrir hún sagðist ákveðin
í að halda sjósundinu áfram sem
hún sagði vera allra meina bót.
Ragnheiður Valgarðsdóttir, formaður Sjósundfélags Reykjavíkur og
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenda Jóhönnu viðurkenningu og
árskort í Nauthólsvík.
Margt hefur verið um að
vera í sumarstarfi Frostaskjóls
og Frostheima í sumar.
Í fyrstu viku sumarstar fs
Frostheima var slökkviliðið
heimsótt, krakkarnir reyndu
fyrir sér í krakkahreysti -
braut Garðbæinga, klifruðu
í klifurturninn í Gufunesbæ.
Ævintýraferðir voru farnar í
Öskjuhlíðna og Elliðaárdalinn
og skolað af sér í sundlaugum
Reykjavíkur og nágrannabæjum.
Í annarri viku var varið í
Vatnsstríð í Frostheimum, blautur
og sleipur sápubolti var notaður
og einnig var kafað í öldunum í
Álftaneslauginni. Farið til Viðeyjar
og margt fleira skemmtilegt með
vatnsblöðrum og fjöri alla daga.
Þarnæsta vika sumarstarfsins
var einkum tileinkuð hjólreiðum.
Hjólað var alla vikuna meðal
annars farið á reiðhjólum í Nau-
thólsvíkina og Laugardalinn.
Hjólin voru einnig þvegin og
yfirfarin og krökkunum kennt
hvernig laga á keðjuna, bremsur
og fleira.
Í b y r j u n j ú l í m á n a ð a r
var sérstök t i lraunavika í
Frostheimum þar sem krakkarnir
gerðust vísindamenn og konur
og geru ýmsar tilraunir. Þau
heimsóttu Dominos og geru
undarlegar pizzur, fóru í vísin-
datjaldið í Húsdýragarðinum og
heimsóttum vísindasmiðju HÍ.
Eftir sumarhlé verður tekið
til að nýju í Frostheimum og 7.
ágúst koma krakkarnir saman að
nýju og taka fyrst til við ýmislegt
tengt vatni. Farið verður í
vatnsbyssu- og vatnsblöðrustríð
við starfsmenn. Sápuboltakeppni
verður á Vesturbæjarlaugartúni
og sullstuð verður í Nauthóls-
víkinn svo nokkurs sé getið.
Sumrinu í Frostheimum lýkur
síðan með að farið verður á
Esjuna, leitað að Maríuhellunum
í Heiðmörk, farið í fjöruferð á
Langasand og sund á Akranesi.
Þetta verður vika fyrir garpa
svona til að enda sumarið
með stæl og mæta eldhress og
endurnærð í skólann eftir frábært
sumar í Frostheimum.
Fjölbreytt sumar
í Frostheimum
Magnað stelpulið Frostheima á góðri sumarstund.
Ýmislegt er brallað í Frostaheimum.
Þótt gaman sé
í Frostheimum
er einnig tekist á í
Sumarseli Frostaskjóls.