Vesturbæjarblaðið - jul 2015, Qupperneq 11
11VesturbæjarblaðiðJÚLÍ 2015
Á bakkanum austan við
Sjóminjasafnið við vesturhöf-
nina í Reykjavík er búið að
gera óvenju skemmtilega
hugmynd að veruleika. Þar
hefur verið opnaður sannur
Fish and Chips veitingastaður.
Það sem einkennir staðinn
frá öðrum veitingastöðum í
Reykjavík er að hann er undir
berum himni. Þær Margrét
Þorvaldsdóttir, Elsa Þórisdóttir
og Sif Haraldsdóttir hafa gert
þessa hugmynd að veruleika en
þær eru vel kunnugar þessar
hefðbundnu matarmenningu
Breta frá því þær bjuggu í Hull
ásamt eiginmönnum sínum
sem störfuðu þar við sölu á
íslenskum sjávarafurðum. Þeir
eru Höskuldur Ásgeirsson,
Pétur Björnsson og Benedikt
Sveinsson.
Þessi þrenn hjón réðust á liðnu
vori í að flytja sérhannað Fish
and Chips eldhús á hjólum frá
Bretlandi og fengu pláss fyrir það
í Vesturhöfninni. Fish and Chips
réttirnir eru afgreiddur út um
glugga eða lúgu á byggingunni
sem frekar mætti ef til vill kalla
hjólhýsi eða eldhús á hjólum.
Fyrir utan hafa þær vinkonurnar
komið fyrir nokkrum borðum
þar sem viðskiptavinir geta tyllt
sér en einnig er mikið um að fólk
taki matinn með sér. Maturinn
er unninn eftir breskum venjum
þótt hráefnið komi annars
staðar frá. Fiskurinn er veiddur
um borð í togaranum Arnari
frá Skagaströnd og frystur um
leið og hann kemur um borð –
reyndar ekki fyrsti fiskurinn af
Íslandsmiðum sem fær þessa
matreiðslu því mikið af þeim fiski
sem við höfum selt til Bretlands
í gegnum tíðina hefur endað sem
Fish and Chips. Kartöflurnar sem
þær bjóða með fiskinum koma
frá Hollandi og steikningarefnin
koma að sjálfsögðu frá Bretlandi
til að fá rétta bragðið. Þær eru af
heppilegri stærð en þær íslensku
til þess að búa kartöflurnar til.
Með réttinum bjóða þær sósu
og einnig baunamauk sem er sér
enskt og Englendingar borða með
fiskinum – aldeilis bragðgóða.
Eru þið ekki með
klippikort
„Við áttum heima í Bretlandi
á níunda og tíunda áratugnum
þ a r s e m e i g i n m e n n i r n i r
störfuðu allir við fisksölu,“ segir
Margrét í spjalli við Vesturbæ-
jarblaðið. „Þetta hefur trúlega
legið einhvers staðar baka til í
hugskotum okkar því í maí í vor
ákváðum við í sameiningu að gera
þessa hugmynd að veruleika. Við
útveguðum vagninn frá Bretlandi
til þess að ná sem bestri og
raunverulegastri stemningu og
hafa eins „breskt“ og hægt er hér
á landi. Við fórum af stað með
þetta sem hobby en frá því að
við opnuðum hefur verið fullt
að gera – stanslaus straumur
af fólki og við sem ætluðum í
fyrstu að standa í þessu sjálfar
höfum nú þurft að ráð starfsfólk.
Viðtökurnar hafa orðið mun
kröftugri en við gerðum nokkru
sinni ráð fyrir. Fólk kemur aftur
og aftur og jafnvel er farið að
spyrja hvort við séum ekki með
klippikort – og fá tíundu hverja
máltíð ókeypis eins og gerist með
kaffibollana á sumum kaffihúsum.
Nú þegar erum við orðnar meira
á bakvaktinni.“
Gamlir sjómenn fá vatn í
munninn
Margrét segir að margir
ferðamenn komi en Íslendingar
hafi líka tekið við sér. „Það starfar
margt fólk á Grandanum og
sumir skreppa hingað í hádeginu.
Ég hef orðið vör við að margt
af því fólki sem vinnur hjá CCP
leggur leið sína hingað enda ekki
langt að fara auk annarra sem
starfa í nágrenninu – ekki síst
gamlir sjómenn sem kynntust
Fish and Chips í siglingum með
íslenskum skipum til Hull og
Grimsby. Íslensk matarmenning
var ekki fjölbreytt á fyrri tíð og
þessi eldamennska Bretanna var
nýstárleg og þótti góð í augum og
munni Íslendinganna.“
Ánægð íslensk- amerísk
fjölskylda
F i s h a n d C h i p s þ e i r r a
vinkvennanna vekur athygli
fleiri en CCP fólksins og gamalla
sjómanna. Á meðan tíðindamaður
staldrar við á bekk hjá þeim
kemur fjölskylda. Íslenskur
matreiðslumaður sem býr og
stýrir nokkrum veitingastöðum
í Kaliforníu, þarlend eiginkona
hans og tvær dætur. Hann
hælir matnum og þegar þau
stóðu upp kvaddi konan með
orðinu „delicious“ en alls óvön
kræsingum af þeirri gerð sem
þeim bauðst þarna við vagninn.
Opið fram á haust –
spurning um veturinn
Já – það er nóg að gera og
fólkið streymir að þótt hádegið
sé rétt af staðið. „Við erum
með opið alla daga frá klukkan
11 á morgnana til níu á kvöldin.
Við ætlum að hafa opið fram á
haustið eins lengi og við getum
en þetta er í sjálfu sér ekki
aðstaða til þess að reka staðinn
yfir háveturinn. En í ljósi þess
að viðtökurnar hafa verið
miklu betri en við þorðum að
gera okkur vonir – raunar með
ólíkindum verðum við að huga að
framhaldinu. Ég held að Fish and
Chips sé alveg komið til að vera,“
segir Margrét.
www.borgarblod.is
Nesstofa
- Hús og saga -
Ný sýning í Nesstofu sem fjallar
um húsið og landlæknisembættið
sem stofnað var árið 1760.
Skemmtileg verkefni í boði fyrir
fjölskyldur og frístundahópa.
Opið alla daga nema mánudaga
frá 13. júní - 31. ágúst
kl. 13-17,
ókeypis aðgangur.
Nesstofa er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.
Nánari upplýsingar:
í síma 595 9100 eða 530 2200
www.thjodminjasafn.is
Skemmtilegur útiveitingastaður
við Vesturhöfnina
... ekta Fish and Chips á boðstólum
Margrét, Elsa og Sif fyrir utan Fish and Chips vagninn.