Vesturbæjarblaðið - jul. 2015, Síða 12
12 Vesturbæjarblaðið JÚLÍ 2015
Ég er fæddur austan Lækjar
árið 1941 en leið mín lá fljótt í
Vesturbæinn. Ágúst faðir minn
var bakari og starfaði í Alþýðu-
brauðgerðinni þegar ég fæddist.
Móðir mín lést af barnsförum
við fæðingu mína. Við mæðginin
vorum sitt í hvorum blóðflokk
og líkleg skýring er að þessir
tveir blóðflokkar hafi ekki gengið
nægilega vel saman og kekkir
myndast í blóði móðurinnar
en ekki náð til barnsins. Þessi
atburður varð til þess að ég
var tekinn í fóstur til þeirra
heiðurshjóna Guðmundar
R. Oddssonar og konu hans
Oddfríðar Jóhannesdóttur.
Guðmundur hafði misst föður
sinn í sjóskaða við Borgarnes
1904 og fór því snemma að
vinna. Hann var kominn til starfa
í Sveinsbakaríi aðeins 14 ára að
aldri. Hann var síðan forstjóri
Alþýðubrauðgerðarinnar um
1930 eftir Jón Baldvinsson sem
var einn af forystumönnum jaf-
naðarmanna á sinni tíð og tók
þá við starfi framkvæmdastjóra
Alþýðusambands Ís lands.
Þau bjuggu á Brekkustíg 8 en
byggði þriggja hæða hús við
Öldugötuna 1954.
Úrvals kennarar við
Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar
Eftir barnaskóla fór ég í Gag-
nfræðaskóla Vesturbæjar og
þegar ég lít til baka til þeirra
ára er mér efst í huga hversu
góður skóli þetta var. Þar voru
afburða kennarar að störfum
við skólann. Eiginlega landslið
kennarastéttarinnar og lögðu
grunn að framtíð margra
ungmenna. Á meðal þeirra
sem kenndu við skólanna voru
Guðni Jónsson magister og
skólastjóri sem var faðir Bergs
Guðnasonar lögfræðings og afi
Guðna Bergssonar knattspyr-
numanns. Sagnfræðingarnir
Björn Þorsteinsson og Sverrir
Kristjánsson kenndu báðir
við skólann. Heimir Áskelsson
var enskukennari, Haraldur
Magnússon kenndi dönsku
og Már Ársælsson og Sverrir
Arngrímsson kenndu stærðfræði
a u k Ó l a f s M a g n ú s s o n a r
f rá Tungunesi sem varð
skólastjóri á meðan ég var í
skólanum. Þegar skólagöngun-
ni í Vesturbænum lauk tók ég
inntökupróf í annan bekk Ver-
slunarskólans haustið 1962 og
útskrifaðist þaðan vorið 1963.
Ég lauk síðan laganámi árið
1970. Ég fann mína heittelskuðu
líka á þessum árum. Árið 1963.
Hún heitir Hervör Jónasdóttir
og er ættuð frá Akureyri. Er
fæddur Þorpari eins og þeir
voru gjarnan kallaðir sem áttu
heima í Glerárhverfinu norðan
Glerárinnar á þeim tíma. Ég
sótti hana þó ekki norður og
heldur ekki austur fyrir Læk.
Hún var þá komin suður og við
hittumst á Hótel Borg. Jónas
faðir hennar var um margt
merkilegur maður. Vel lesinn og
einstakur ljóðaunnandi. Kunni
heilu kvæðabálkana utan að,
þekkti Íslendingarsögurnar
mjög vel og eins Eddu og svo
sinnti hann leik- og sönglistinni
nokkuð. Hann starfaði með
Leikfélagi Akureyrar og söng
með Karlakórnum Geysi á
sínum tíma en flutti síðar til
Reykjavíkur. Hann lést 89 ára
gamall og hafði þá flutt mér
Álfadansinn eftir Grím Thomsen
fjórum dögum fyrr.
Vann við að byggja
Vesturbæjarlaugina
Ég var í sumarvinnu sumrin
1958 og 1959. Í byrjun með
haka og skóflu til að grafa fyrir
sundlaug Vesturbæjar. Þarna
vann ég með ágætum mönnum.
Þeirra á meðal voru Sveinn
Jónsson, Hörður Felixson, Ásgeir
Thoroddsen, Sveinn Björnsson
síðar sendiherra og fleiri. Eftir
gröftinn urðum við járnamenn.
Störfuðum við járnabindingar
við byggingu Vesturbæjar-
laugarinnar. Þar var um mikla
vinnu að ræða því mjög miklar
járnalagnir og bindingar voru í
steinsteypunni í lauginni. Næstu
sumur vann ég í Landsbanka-
num og var næstum orðinn
bankamaður en lífið átti eftir að
taka aðra stefnu. Ég vann einnig
í versluninni Geysi á Vesturgö-
tunni um jólin. Ég átti alltaf
heima í gamla Vesturbænum
og vinahópurinn var af þeim
slóðum. Jón Otti Ólafsson
prentari var með mér í körfunni
og ég get einnig nefnt Halldór
Sigurðsson er lengi starfaði að
Bernskuminningar úr Vesturbænum
Ég verð alltaf Vesturbæingur
og KR-ingur
Myndin er tekin að loknum leik við úrvalslið varnarliðsmanna sumarið 1964. KR tók forystuna strax
í upphafi leiks og er 10 mínútur voru tril leiksloka var staðan 80 – 40 okkur KR-ingum í vil. Robinson
sagði þá að hætta „fast break“ og „don´t force the shots“ og „not beat them badly“ svo lokastaðan
var 91 – 54 fyrir KR.
Helgi Ágústsson fyrrum sendiherra lítur til baka með Vesturbæjarblaðinu að þessu sinni.
Að loknu námi í lögfræði átti hann vísa vinnu í dómsmálaráðuneytinu en frétti af tilviljun að
ráða ætti tvo menn til starfa í utanríkisráðuneytinu. Hann ákvað að spyrjast fyrir um starf og
var byrjaður að vinna þar skömmu síðar og gegndi ýmsum störfum þar á starfsævi sinni.
Þar á meðal starfi ráðuneytisstjóra um tíma og sendiherrastörfum. Helgi spilaði lengi
körfubolta með KR. Hann var leiðandi í stjórn körfuknattleiksdeildarinnar og er enn virkur
í starfi eldri félaganna.
Karfan átti hug og hjörtu margra KR-inga þá sem nú.