Vesturbæjarblaðið - Aug 2015, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið ÁGÚST 2015
Líf og fjör var á Stýriman-
nastígnum einn fagran dag
í sumar. Þá fögnuðu íbúar,
nágrannar og gestir sumrinu
og góðu samfélagi við þessa
fallegu götu. Hátíðin hófst
með því að ungir piltar gengu
niður stíginn og slógu í gong.
Jóhanna Kristjánsdóttir sagði
frá merkri sögu fólksins síns á
Stýrimannastíg 7 og fleiri sögðu
sögur úr hverfinu.
Ragna Árnadóttir fyrrum
d ó m s m á l a r á ð h e r r a v a r
veislustjóri og færði hún Hildi
Pálsdóttur veglegan blómvönd
frá íbúunum. Hildur er elsti
íbúinn við Stýrimannastíginn
og mun fagna 99 árunum í
vetrarbyrjun. Hildur f lutt i
hingað á stíginn fyrir rúmlega
hálfri öld með manni sínum
heitnum, Halldóri Þorbjörnssyni
hæstaréttardómara og Unni
dóttur sinni. Ragna sagði að
íbúana langaði með þessu
að þakka Hildi fyrir allt. Hún
væri leiftrandi skemmtileg,
jákvæð og dugleg. Engin elli
kerling þar á bæ. Það er lýsandi
fyrir Hildi að það var hún sem
bauð nágrönnunum inn til
sín í eftirveislu. Það urðu svo
fagnaðarfundir þegar Pétur
Emilsson, fyrrverandi kaupmaður
í Pétursbúð á Ægisgötunni
kom við og heilsaði upp á
fyrrverandi viðskiptavini sína. Á
Stýrimannastígnum er sannarlega
gott samfélag – eiginlega eins og
stórfjölskylda.
Gleði og góðviðri á
Stýrimannastígnum
Nesvegur 100
Símar 562-1070, 896-4243
Opið virka daga kl. 10 - 18:30
MIKIÐ ÚRVAL SPENNANDI FISKRÉTTA
VERIÐ VELKOMIN
FERSKUR FISKUR
DAGLEGA
Jón Gunnar Schram skálar við nokkra gesti á Stýrimannstígnum.
Veglegt veisluborð á Stýrimannastígnum.
Ragna Árnadóttir fyrrverandi
ráðherra og Hildur Pálsdóttur
elsti íbúi götunnar 99 ára.
Allt að fara á fullt
á Aflagranda
Nú dregur að hausti og íbúar
Vesturbæjar fara að huga
að viðfangsefnum vetrarins.
Félagsmiðstöðin Vesturreitir,
Aflagranda 40 er í óða önn
að búa sig undir vetrarstarfið
og þar gefur að líta fjölbreytt
úrval náms- og afþreyingaref-
nis að venju. Megináher -
sla starfsins verður eins og
áður á að búa sem flestum
eftirsóknarvert úrval af við-
fangsefnum; skapa umhverfi
og aðstæður þar sem íbúum
hverfisins gefst kostur á að
njóta samvista, fræðast, syngja,
dansa, ekki síst að skapa og eiga
ánægjustundir af öllu tagi.
Sem dæmi má nefna að
í hverri viku má velja um
bingó, félagsvist, gönguhópa,
vatnsleikfimi, jóga, morgunleik-
fimi, myndlist, postulínsmálun,
pr jónakaf f i , söngstund v ið
píanóið, bókaspjall Guðna Th.
Jóhannessonar, bókmenntaklúbb,
útskurð, tálgun, tölvufærni
og fleira. Ferðalög, leikhúsfer-
ðir og ýmsar fleiri uppákomur,
námskeið og skemmtanir eru á
dagskrá vetrarins.
Dagskráin er á lokastigi
u n d i r b ú n i n g s o g v e r ð u r
aðgengi leg í september á
Vesturbæjarvefnum, á Facebook-
síðu Vesturreita og í prentuðu
formi á skrifstofunni. Einnig er
hver dagur auglýstur í Morgun-
blaðinu. Starfsfólkinu er líka
sönn ánægja að svara fyrirspur-
num, skrá þátttöku á námskeið
og leiðbeina gestum okkar á
alla lund, hvort sem þeir koma
til okkar eða hringja. Ljóst er
að af mörgu verður að taka og
eftir föngum reynt að hafa
nokkuð fyrir sem flesta. Aldri
verður of oft kveðin sú vísa að
þótt fólk á miðum aldri og eldra
nýti sér félagsstarfið meira en
yngra fólk þá er það fyrir alla
og á síðasta vetur komu ungar
mæður í fæðingarorlofi gjarnan
á Aflagrandann með börnin sín.
Starfsfólkið á Aflagrandi hlakkar
til samverunnar með sem flestu
fólki í vetur og hvetur sem
flesta Vesturbæinga til að koma
og njóta daganna. Bara að hafa
samband við Guðbjörgu og
Stefaníu í síma 411 2702.
Úr félagsmiðstöðinni á Aflagranda.
Heimilisaðstoð/
liðveisla
Tek að mér létt heimilisverk,
aðstoð við útréttingar og
liðveislu ýmis konar.
Hef meðmæli. S: 788 8951. María www.borgarblod.is