Víkurfréttir - 07.11.2019, Page 6
Silja Dögg Gunnarsdóttir var kosin forseti Norðurlandaráðs fyrir árið 2020 en Ísland
tekur þá við formennskunni af Svíþjóð. Næsta Norðurlandaráðsþing fer því fram í
Reykjavík í lok október næsta árs. Oddný Harðardóttir var kosin varaforseti Norður-
landaráðs.
Silja kjörin forseti
Norðurlandaráðs og
Oddný varaforseti
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs er æðsta ákvörðunar-
valdið milli hinna árlegu þinga og stýrir og samræmir
starf allra nefnda og ráða ráðsins. Nefndin ber einnig
ábyrgð á umfangsmiklum pólitískum og stjórnsýslu-
legum málum, gerir framkvæmdaáætlun og fjárhagsá-
ætlun og fer með ábyrgð á umfangsmiklum málefnum
sem snerta utanríkis- og varnarmál.
Norðurlandaráðsþingið fór fram dagana 29. – 31. októ-
ber þar sem stjórnmálafólk frá öllum Norðurlöndunum
kom saman í þinghúsi Svíþjóðar í Stokkhólmi. Lofts-
lagsmál, sjálfbærni og þátttaka ungs fólk var meðal
annars á dagskrá.
Í ræðu sinni á þinginu þakkaði Silja fyrir traustið sem
henni og Oddnýju Harðardóttur var sýnt með því að
kjósa þær forseta og varaforseta Norðurlandaráðs. Í
ræðu sinni sagði hún m.a.:
„Við ætlum jafnframt að beina sjónum að líffræði-
legri fjölbreytni í hafi, en það er svið sem hefur fengið
öllu minni athygli en þróunin á landi. Við ætlum að
standa vörð um lýðræðið með því að berjast gegn
upplýsingaóreiðu og falsfréttum. Líklegt er að þetta
málefni verði mjög í sviðsljósinu á næsta ári þegar for-
setakosningarnar fara fram í Bandaríkjunum.
Töluvert hefur verið gert til að kortleggja vandann en við
ætlum fyrst og fremst að skoða leiðir til að vinna bug á
honum, til dæmis með því að efla fjölmiðlalæsi og með
því að styrkja stöðu fjölmiðla sem vinna á grundvelli
hefðbundinna blaðamennskugilda um trúverðugleika
og traust sem mótvægi við falsfréttum. Norrænu löndin
hafa öll beint sjónum að þessu málefni og sérstaklega
standa Finnar framarlega og við vonumst auðvitað
eftir góðu samstarfi við finnsku landsdeildina og við
ykkur öll.
Silja sagði að í formennskutíð Íslands í ráðinu 2020
verði m.a. lögð áhersla á:
að standa vörð um lýðræðið með því að berjast gegn
upplýsingaóreiðu og falsfréttum sem grafa undan því,
að standa vörð um líffræðilegan fjölbreytileika sem ógnað
er af loftslagsbreytingum, mengun og fleiri þáttum sem
rekja má til starfsemi manna,
að treysta böndin milli Norðurlandabúa með því að efla
tungumálakunnáttu innan Norðurlanda til að stuðla
að því að þeir geti í sameiningu tekist á við þessi stóru
verkefni.
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Söngkonan og lagasmiðurinn Jón-
ína Aradóttir verður með tónleika á
Bryggjunni í Grindavík fimmtudaginn
7. nóvember ásamt hljómsveit.
Tónleikarnir eru þeir síðustu á tón-
leikaferð hennar um landið og mun
Jónína deila með gestum nokkrum vel
völdum lögum úr eigin safni í bland
við falleg íslensk dægurlög.
Jónína hefur spilað og komið fram
víða á Íslandi, sem og í Danmörku og
Bandaríkjunum. Hún sundaði nám
við Musicians Institute í Los Angeles
þar sem hún lauk Associate in Art
and Performance gráðu árið 2013.
Jónína gaf þar út sína fyrstu EP plötu,
Jónína Aradóttir. Og haustið 2017 gaf
Jónína út sína fyrstu 10 laga plötu,
Remember.
Tónleikar í Grindavík
MÁNUDAGA KL. 21:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Nýr samstarfsaðili Heklu hf. í Reykjanesbæ hefur tekið að störfum. Nýsprautun og tengdir
aðilar hafa keypt húsnæði Heklu í Reykjanesbæ. Starfsemi fyrirtækisins verður því áfram til
húsa að Njarðarbraut 13 í Reykjanesbæ þar sem Hekla hefur verið með umboð og verkstæði
síðustu 20 ár.
Í húsnæðinu að Njarðarbraut er öll aðstaða til
fyrirmyndar en nýlega var verkstæðið uppfært
með nýjum lyftum og verkfærum sem nýtast
atvinnubílum sérstaklega vel. Eftir sem áður
verður hægt að nálgast þjónustu fyrir öll vöru-
merki Heklu, Audi, Volkswagen, Skoda og Mit-
subishi. Einnig mun sami aðili sjá um sölu nýrra
bíla frá Heklu auk þess sem fjölbreytt úrval
notaðra bíla verður á staðnum. Afgreiðslutími
er alla virka daga frá kl. 08:00 – 17:00. Nú þegar
geta eigendur Heklu bíla bókað tíma í þjónustu
í síma: 421 2999.
„Það er okkur sönn ánægja að kynna nýjan
samstarfsaðila í Reykjanesbæ og þá sérstaklega
þegar viðskiptavinir Heklu geta áfram leitað á
sama stað. Við hlökkum til samstarfsins, einnig
er vert að minnast á að samstarfsaðilar okkar
geta nýtt sérþekkingu okkar tæknimanna sem
og bifvélavirkja sem og reglulega eru gerðar
úttektir til að passa upp á alla staðla“, segir
Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu.
„Við erum mjög ánægð með kaup okkar á hús-
næði Heklu í Reykjanesbæ en ljóst er að hús-
næðið er til fyrirmyndar sem og öll aðstaða. Við
munum þjónusta vörumerki Heklu með natni
og vonandi verður samstarfssamningur til þess
að gleðja þá sem áður hafa leitað til Heklu í
Reykjanesbæ. Einnig er gaman að segja frá því
að við höfum fengið til liðs við okkur Erling
R. Hannesson sem sölustjóra og er það mikill
fengur fyrir okkur að fá eins reyndan mann
og hann til þess að leiða söluna“, segir Sverrir
Gunnarsson, framkvæmdarstjóri.
Nýr samstarfsaðili Heklu í Reykjanesbæ
6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.