Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.2019, Page 12

Víkurfréttir - 07.11.2019, Page 12
Reykjanesbær blæs í annað sinn til pólskrar menningar- hátíðar í samstarfi við hóp íbúa af pólskum uppruna. Hátíðin verður haldin á Nesvöllum laugardaginn 9. nóvember 2019 klukkan 13 - 16. Hátíðin mun gleðja augu, eyru og maga gesta. Áhersla ársins eru persónulegar sögur íbúa Reykjanes- bæjar af pólskum uppruna og verður sett upp listsýning tengd áherslunni. Pólskur „street food“ markaður verður á hátíðarsvæðinu, tónlistaratriði frá Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar og pólski þjóðdansinn Polonez stiginn. Fluttar verða hátíðarræður og ýmis afþreying verður í boði. Hátíðinni lýkur með rokkuðu ívafi hljóm- sveitarinnar Demo. Að undirbúningi og skipulagningu hátíðarinnar kemur hópur fólks, bæði starfsmanna og sjálfboðaliða. Fjöldi sjálfboðaliða hefur boðist til þess að gera mat fyrir pólskan fingramat eða „street food“ markað sem settur verður upp. Fallegt af Íslendingum að búa til pólska hátíð segir Katarzyna Pozezinska, hundasnyrtir og matgæðingur. RÍKAR MATAR- HEFÐIR Í PÓLLANDI Katarzyna Pozezinska er aðalkonan á bak við matargerðina á pólsku há- tíðinni í Reykjanesbæ en hún gerði pottréttinn Bigos í fyrra sem rann ljúft ofan í maga gesta hátíðarinnar. Hún mun endurtaka eldamennskuna í ár en fleiri koma að matargerðinni svo í boði verða ýmsir réttir. Við kíktum í heimsókn til Katarzynu á hundasnyrtistofuna hennar og for- vitnuðumst um matinn sem hún ætlar að bjóða gestum og gangandi upp á næstkomandi laugardag. „Ætlar þú að taka viðtal við mig,“ spyr Katarzyna blaðakonu sem jánkar „en ég hef aldrei farið í blaðaviðtal,“ segir hún og heldur áfram að klippa lítinn sætan kjölturakka á meðan blaðakona heldur áfram að spyrja út í pólsku menningarhátíðina. Katarzyna Pozezinska rekur vinsæla hundasnyrtistofu í Reykjanesbæ og hefur gert í mörg ár. Hún er menntuð í faginu og lærði upphaflega í Póllandi en viðbótarnám hefur hún tekið í Eng- landi, Svíþjóð og Þýskalandi. „Já, ég gerði „street food“ í fyrsta skipti í fyrra fyrir svona marga, það gekk mjög vel. Í Póllandi elda allar konur matinn heima. Þar er mikil matarhefð og ömmur kenna mæðrum og mæður kenna dætrum sínum. Það er hefð að konur í pólskum fjölskyldum kenna hver annarri. Bigos er mjög vinsæll matur í Póllandi, yfir 300 ára gamall réttur og allar fjölskyldur eiga sína útgáfu af þessum rétti. Ég mun gefa fólki að smakka ættaruppskrift mína. Það verður allskonar annar matur í boði til dæmis, pierogi, súpa, barszcz czerwony og zurek, allt mjög vinsæll matur í Póllandi. Það var mjög gaman að gefa gestum í fyrra að smakka þessa pólsku rétti og ég vona að það komi margir gestir núna líka til að borða matinn,“ segir Katarzyna sem margir Íslendingar þekkja undir nafninu Kata. Nú eigum við heima á Íslandi „Mér finnst mjög fallegt af Íslend- ingum að leyfa Pólverjum að búa til sína eigin hátíð hér á landi. Ég fer líka á hátíðir sem Íslendingar halda, til dæmis 17. júní og Ljósanótt í Reykja- nesbæ. Auðvitað vil ég einnig kynnast menningu Íslands því ég elska Ísland og er mjög ánægð hér. Við hjónin, Jaroslaw og ég, fluttum hingað fyrir tólf árum og höfum eignast börnin okkar tvö hér sem heita Patrycja 11 ára gömul og Ólaf sem er 9 ára gamall. Hann var skírður íslensku nafni sem er líka hægt að segja á pólsku. Börnin okkar tala mjög flotta íslensku og gengur vel á íslenskuprófum í skól- anum. Þau tala bæði góða íslensku og góða pólsku. Nú eigum við heima á Íslandi en förum yfirleitt einu sinni á ári í heimsókn til Póllands. Foreldrar okkar hafa komið hingað en mamma mín hefur komið oftast,“ segir Kata á annars ágætri íslensku en hún hefur lagt sig fram um að læra málið en er stundum feimin að tala það. Blaða- kona skilur það vel enda hefur hún sjálf upplifað að búa sem útlendingur í öðru landi og þá fannst henni hún sjálf stundum hljóma kjánalega þegar hún var að tala tungumál heimamanna. Best er samt að halda áfram að æfa sig, því æfingin skapar meistarann. Íslendingar sýna því fullan skilning og það gleður þá þegar einhver hefur áhuga á að læra þetta forna tungumál, sem íslenskan er. Vonar að það komi margir gestir Kata hefur gaman af starfi sínu sem hundasnyrtir. „Mér finnst mjög gaman að klippa hunda, þeir eru svo mikið krútt og með svo fallegt hjarta. Mér finnst ég aldrei vera að mæta í vinnuna þegar ég kem á stofuna mína, þetta er frekar eins og hobbý því það er svo gaman að hitta allskonar hunda og allskonar foreldra þeirra,“ segir hún og bætir við þegar blaðakona spyr hana um lokaorð; „Vonandi koma margir að prófa og skoða pólska hátíð um helgina. Allar þjóðir þurfa að gera eitt- hvað saman og kynnast betur svoleiðis. Við sýnum okkar bestu hliðar. Það eru allir velkomnir, það kostar ekkert, bara brosa og hafa gaman með okkur.“ Mar ta Eiríksdóttir marta@vf.is VIÐTAL Páll Ketilsson pket@vf.is VIÐTAL Daría Luczkow segist elska Ísland en hún hefur verið á Íslandi í tólf ár. Hún flutti til Ólafsvíkur og ætlaði bara að vera í eitt ár og safna sér peningum en Daríu leið strax vel á Íslandi og þremur árum síðar lá leið hennar til Reykjanesbæjar. „Ég kom svo hingað að læra og svo að kenna íslensku,“ segir Daría sem fór í Háskóla Íslands og lærði íslensku og rússensku. Núna kennir hún tungumál í Reykjanesbæ, Pólverjum og fleiri innflytjendum, á íslenskan unnusta og lítið tíu mánaða barn. Og þú ert ekki á leiðinni heim? „Nei, ég ætlaði að fara nokkrum sinnum en ákvað að vera áfram á Íslandi og búa hér af því ég elska Ísland. Það er svo gott að búa hér, það er svo þægilegt og rólegt. Ég er örugg hér.“ Daría er kennari og mjög ánægð í starfinu. „Ég er að kenna Pólverjum íslensku og Ís- lendingum pólsku. Við erum líka með Krakka- akademíu sem er móðurmálskennsla. Við kennum krökkum af pólskum uppruna pólsku sem móðurmálskennsla. Það voru nokkrir foreldrar sem spurðu hvort einhverjir væru til í að kenna þeim pólsku. Svo komu fleiri vinir og ættingjar og núna erum við með 40 krakka sem læra pólsku.“ Er það betra fyrir þau? Eru þau að læra bæði málin? „Það er gott fyrir þau að læra móðurmálið til að verða betri í íslensku og svo vilja þau læra meira um Pólland, menningu og sögu landsins.“ Nú eru margir Pólverjar á Suðurnesjum. Heldurðu að þau séu öll jafn ánægð og þú að vera hér? „Vonandi, ég veit það ekki. Það eru margir mjög ánægðir og eru ekki að hugsa um að flytja aftur til Póllands. En ég held að ef þau tala íslensku og skilja Íslendinga þá gengur þeim betur.“ Heldurðu að það séu mjög margir Pólverjar sem vilja setjast að hér á Íslandi til lang- frama? „Já, ég held það. Pólskir menn segja oft að þeir séu að hugsa um að fara aftur til Póllands en þeim finnst svo rólegt hérna. Krakkar eru öruggir og þau nenna ekki að pæla í því að flytja aftur til Póllands.“ Hver er þín tilfinning, verandi kennari, hvað eru margir Pólverjar sem vilja læra íslensku? „Já, það eru alltaf fleiri og fleiri. Fyrst þegar ég byrjaði að kenna þá kom fólk sem var búið að vera hér í fimm, sex ár, og byrjaði svo að læra íslensku. En núna kemur fólk frá Pól- landi og byrjar strax að læra íslensku tveimur mánuðum seinna.“ Nú eru mörg pólsk börn fædd á Íslandi og þau í rauninni verða bara Íslendingar. „Já en þau vilja líka tala við fjölskylduna sína í Póllandi, senda þeim skilaboð á pólsku, lesa fréttir á pólsku og lesa og fræðast um Pólland.“ Þegar Daría er spurð hvort Pólverjar séu dug- legir að sækja viðburði og taka þátt í samfélag- inu á Suðurnesjum með Íslendingum segist hún ekki vita það nógu vel. En hvernig er best að nálgast heimalanda hennar í þeim tilgangi? „Það væri gott að hafa einhverjar íþróttir fyrir fólk eins og til dæmis hlaup. Það er pólskt hlaup núna 10. nóvember í Reykjavík og það eru 300-400 Pólverjar sem ætla að taka þátt í því.“ En vilja Pólverjar ekki sækja það sem er í gangi hér og sameinast heimamönnum á viðburðum? „Jú en það er þessi tungumálakunnátta. Þeir vita að þeir þurfa fyrst að læra íslensku og eru kannski feimnir við að tala ensku eða bara pólsku.“ Eru Pólverjar ekki öruggari með að fá störf ef þeir kunna íslensku? Geta þeir fengið betri störf? „Jú en kannski ekki hér í Reykjanesbæ því við erum með flugstöðina og þar er töluð enska númer eitt.“ Þannig þeir þurfa að læra ensku líka? Já, við erum að kenna ensku líka. Það eru margir Pólverjar sem koma og læra ensku til að fá betri vinnu eins og í flugstöðinni.“ Nú var haldin pólsk hátíð í Reykjanesbæ í fyrra og er aftur núna. Hvernig lýst þér á það? „Mér finnst það mjög flott. Ég gat ekki hjálpað í fyrra, ég var í fæðingarorlofi en ég kom samt með strákinn. Það var svo gaman að hitta alla Pólverja og tala við fólk.“ Daría segir að Pólverjar séu þokkalega ánægðir með matinn á Íslandi, en vilja helst borða pólskan mat? „Ég held að flestir borði ennþá pólskan mat. Svo var að opna pólskur veitingastaður, þar sem hægt er að fá pólskan mat. Ég held að Pólverjar sakni matarins frá Póllandi.“ Eru þeir ekki ánægðir með íslenska lamba- kjötið og fiskinn? „Jú (hlær) en þeir eru ekki hrifnir af því að borða sæta kartöflur eða lifrapylsu.“ En þú? „Ég borða ekki kjöt. Ég borða bara grænmeti og laxinn sem mér finnst mjög góður.“ ÁNÆGÐIR MEÐ ÖRYGGIÐ Á ÍSLANDI Daría varð ástfanginn af landinu og kennir nú íslensku og pólsku 12 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.