Víkurfréttir - 07.11.2019, Síða 20
Einstakt tækifæri
Guðjónína Sæmundsdóttir, er for-
stöðumaður Miðstöðvar símenntunar
á Suðurnesjum. Við hittum hana að
máli og forvitnuðumst um þessar
aðgerðir stjórnvalda fyrir íbúa Suður-
nesja.
„Leiðsögunámið var eitt af úrræðum
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins. Námið sem fór af stað í
haustbyrjun, var einstakt tækifæri
fyrir fólk sem hafði dreymt um að
fara í leiðsögunám. Við komum með
tillögur sem yfirvöld samþykktu og
eitt af því var þetta nám. Leiðsög-
unámið hefur það að markmiði að
nemendur öðlist sérmenntun á sviði
leiðsagnar og hafi færni og hæfni til
þess að standast kröfur ferðaþjón-
ustunnar hverju sinni um áreiðan-
leika og fagleg vinnubrögð. Að auki
mæltum við með íslenskunámskeiði,
náms-og starfsráðgjöf, starfsþróunar-
námskeiði og frumkvöðlanámskeiði.
Öll námskeiðin fara fram á íslensku
og nokkur á ensku og pólsku. Enn-
fremur erum við með Menntastoðir,
Skrifstofuskóla 1 og 2. Síðan erum
við með Stökkpall sem er námsleið
fyrir ungt fólk. Þá bjóðum við upp
Ókeypis leiðsögunám
fyrir tilstuðlan yfirvalda
Með falli WOW air varð til aðgerðaráætlun Mennta- og menningarmálaráðuneytis fyrir Suður-
nesin sem snýr að hagnýtingu tækifæra. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, lagði meðal annars
til að svæðisbundið leiðsögunám yrði styrkt í þeim aðgerðum yfirvalda. Markmið með aðgerðinni
var að efla ferðaþjónustu á svæðinu og auka tækifæri til nýrra atvinnutækifæra. Styrkur Mennta-
og menningarmálaráðuneytisins í haustbyrjun gerði það að verkum að unnt var að bjóða Leið-
sögunám hjá MSS án skólagjalda og þurftu þátttakendur því eingöngu að greiða fyrir inntökupróf
í erlendu tungumáli. Teknir voru inn þrjátíu nemendur sem er jafnframt stærsti einstaki hópur
sem hefur skráð sig í leiðsögunámið hjá MSS. Með náminu eflist þekking á meðal þátttakenda á
Reykjanesskaga og gefur þeim möguleika til að skapa ný atvinnutækifæri, sem getur leitt til aukins
ferðamannastraums og lengingu dvalar ferðamanna á svæðinu.
Miðað við aðsóknina í námið sáum
við að margir höfðu látið sig dreyma
um þetta nám en því miður var ekki
pláss fyrir alla. Þetta er heilmikið nám
sem gengur ekki bara út á göngu-
ferðir og útiveru. Við erum í sam-
starfi við Menntaskólann í Kópavogi
sem útskrifa með okkur. Við kennum
námið á einu ári og þeir sem vilja
bæta við sig geta tekið eitt ár í MK.
Það er hægt að sérhæfa sig í fjallaleið-
sögn, gönguleiðsögn og rútuleiðsögn
fyrir allt landið. Hver leiðsögumaður
hefur tækifæri til að skapa sitt eigið
vörumerki og höfum við flott dæmi
um það eins og Nanný með göngu-
ferðirnar, Reynir sem tekur á móti
fjölmörgum hópum og Helga Ingi-
mundar. Þeir sem skapa sér sérstöðu
geta fengið ágætar tekjur úr þessu.
Atvinnumöguleikar ráðast af fólkinu
sjálfu og áhuga þeirra. Leigubílstjórar
geta til dæmis haft mikla möguleika
sem leiðsögumenn og einnig rútubíl-
stjórar sem vilja sameina þessi störf
sín við leiðsögn. Svo eru þeir sem eru
hættir að vinna, komnir á eftirlaun
en hafa gaman af til dæmis sögum
sem hægt er að tengja við landssvæði.
Þetta fólk velur oft rútuleiðsögn eða
léttari gönguferðir. Mér finnst per-
sónulega skemmtilegast að fara um
náttúruna enda er hún einstök hér og
mikil jarðfræði og sögur sem tengjast
náttúrunni“ segir Guðjónína.
Leiðsögunámið er kennt á haustönn
2019 og vorönn 2020. Kennt er tvö
kvöld í viku og einstaka helgar verða
vettvangs- og æfingarferðir. Námið
veitir rétt til inngöngu í Félag leið-
sögumanna.
Viljum hjálpa fólki af stað með
hugmyndir sínar
Það hafa margir nemendur hjá MSS
öðlast sjálfstraust og hugrekki til að
fara af stað út í lífið og látið drauma
sína rætast í framhaldinu.
„Okkar hlutverk er að vera til staðar
fyrir einstaklinga sem vilja bæta líf
sitt, vilja mennta sig, einstaklinga sem
eru með hugmyndir og langar til að
koma þeim af stað. Við bjóðum alla
velkomna, þá sem vilja bæta við sig
kunnáttu, vilja efla sig sjálf, þá sem
vantar ráðgjöf, þá sem eru skapandi,
svo dæmi séu tekin. MSS hefur yfir að
ráða hæfu og metnaðarfullu starfsfólki
sem er tilbúið að aðstoða alla. Það er
bara að líta við,“ segir hún að lokum.
Þrjátíu nemendur sóttu leiðsögunám hjá Miðstöð símenntunar:
á kvennasmiðju og karlasmiðju en
þar erum við að vinna með sjálfsupp-
byggingu og frumkvæði,“ segir hún.
Getur opnar ýmsar dyr
„Ég kláraði sjálf leiðsögunámið árið
2017 og veit af eigin raun að þetta er
mjög áhugavert nám. Ég er ferðamála-
fræðingur í grunninn og átti þann
draum að fara í leiðsögumanninn en
hafði sjálf ekki tækifæri til þess fyrr
en börnin mín voru orðin eldri. Ég
elska útiveru og geng mikið á fjöll.
Ég er ekki mikið í leiðsögn í dag en
geri það stundum. Það var kapps-
mál mitt að koma leiðsögunáminu á
koppinn hjá MSS á sínum tíma. Það
tókst ekki alveg strax í byrjun þegar
við vildum bjóða upp á þetta nám
fyrst en tókst svo árið 2004 en ég
hafði brennandi áhuga og vissi að
námið myndi gagnast svæðinu því
hér eru svo margir möguleikar á sviði
ferðaþjónustu. Þegar maður hefur trú
á einhverju þá getur svo margt gerst,
maður finnur ákveðnar lausnir. Í dag
erum við að uppskera og útskrifa
leiðsögumenn frá MSS. Viðfangsefni
leiðsögunámsins eru margvísleg en
farið er yfir sögu Íslands, jarðfræði,
gróðurfar, mannlíf, tengingu við þjóð-
sögur og bókmenntir, auk hagnýtra
atriða varðandi skipulag ferða, leið-
sögutækni, samskipti og margt fleira.
Hluti af náminu er svokallað svæðis-
bundið leiðsögunám þar sem áhersla
er lögð á Reykjanesskaga. Inntöku-
kröfur í leiðsögunámið er stúdents-
próf eða sambærilegt, 21. árs og eldri.
Atvinnumöguleikar ráðast
af fólkinu sjálfu og áhuga
þeirra. Leigubílstjórar geta
til dæmis haft mikla mögu-
leika sem leiðsögumenn og
einnig rútubílstjórar sem
vilja sameina þessi störf sín
við leiðsögn. Svo eru þeir
sem eru hættir að vinna,
komnir á eftirlaun en hafa
gaman af til dæmis sögum
sem hægt er að tengja við
landssvæði
Bæjarbúar voru margir í hræðilegu skapi á hrekkjavöku eins og sjá mátti víða. Mörg heimili og hús voru skreytt
og krakkar gengu á milli húsa og sögðu „gott eða grikk“ sem er góð íslensk setning þegar hrekkjarvaka er í
gangi. Meðfylgjandi myndir eru lítið dæmi um stemmninguna sem sjá mátti víða um Suðurnesin í síðustu viku.
Myndirnar fékk VF frá Sigríði Sigurðardóttur.
Gott eða grikk?
Innri-Njarðvíkurbyggð nær inn á Stapa inn undir Ytri Skor. Hér áður var farið
á Stapann og niður Ytri Skor til að skoða dót, sem þar var hent. Smábörn fóru
þar ekki, það var of langt en nú er þarna byggð. Sama má segja um Bergið.
Börnum er hætt þarna, eltandi hvolpa og ketti til dæmis.
Ég vil gera það að tillögu, að girða Stapann og friða fyrir fugl og hafa jafnvel
lúpínu upp að girðingunni, börn hafa ekki tilhneigingu að ganga í lúpínuna.
Þarna er gönguleið og það er hægt að gera tröppur niður Ytri Skor og pall til að
kasta út fyrir fisk. Kanarnir komu þarna mikið í gamla daga með veiðistangir.
Okkur þótti það ómerkilegt að vera að reita upp eitt og eitt kolakvikindi.
En fyrir túrista að ganga niður fyrir björg niður í náttúrulegt flæðarmál,
það þykir þeim athyglisvert, sem okkur dettur ekki hug. Svo eru sett spjöld
við göngustígana með myndum af fuglum, mink, ref. selum og hvölum. Þá
verður þetta félagslega virkt svæði. Við svæðið þarf smápalla með handriði
fyrir “selfí” eða sjálfmynd með bakgrunn. En börnin ganga fyrir, hitt er til
að þetta borgi sig sjálft fjárhagslega fyrir samfélagið.
Þorsteinn Hákonarson.
Lesendur senda, skrifa eða hringja:
Gera tröppur niður Ytri Skor
og pall til að kasta út fyrir fisk
Vantar stóla í Listasafnið
Eldri kona hringdi til Víkurfrétta og sagði að það mætti huga betur að aðstöðu
fyrir eldri borgara og fótafúna sem sækja Listasafnið í Reykjanesbæ. Þar
væru glæsilegar sýningar en leiðinlegt ef ekki væri hægt að njóta þeirra. Það
mætti setja fjóra stóla inn í stóra salinn svo hægt sé að setjast og njóta lista-
verkanna, ekki síst fyrir eldri borgara sem eiga kannski erfitt með að standa
lengi og þurfa að tylla sér og eflaust vildu fleiri geta sest niður en bara þeir.
Guðjónína Sæmundsdóttir á Sveinstindi.
Heyrnarmælingar, ráðgjöf og heyrnartækjaþjónusta
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Vantar þig heyrnartæki?
Opn S eru ný tegund heyrnartækja frá Oticon sem hjálpa þér að
heyra margfalt betur í fjölmenni og klið. Þú getur fengið Opn S
með endurhlaðanlegum rafhlöðum. Árni Hafstað heyrnarfræðingur
verður í Reykjanesbæ í nóvember.
Reykjanesbær
19. nóvember
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
20 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.