Víkurfréttir - 07.11.2019, Qupperneq 21
TILLAGA AÐ VERNDARSVÆÐI
Í BYGGÐ – ÚTGARÐUR
Kynning á auglýsingartíma
Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum 29.
ágúst sl. að kynna íbúum á umræddu svæði og öðrum bæjarbúum og hags-
munaaðilum drög unnin af Kanon arkitektum, að tillögu að verndarsvæði í
byggð í Útgarði. Kynningar- og samráðsfundur var haldinn í Gerðaskóla 19.
september sl. Á fundi í framkvæmda- og skipulagsráði 17. október sl. var sam-
þykkt að framlögð greinargerð og tillaga Kanon arkitekta að verndarsvæði
í byggð í Útgarði dags. október 2019 yrði auglýst og kynnt og undir það tók
bæjarráð á fundi sínum 30. október 2019 og bókaði m.a. að:.. „þannig væri
þeim aðilum sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að kynna
sér efni skýrslu tillögunnar, ásamt húsakönnun og fornleifaskráningu og koma
með ábendingar og athugasemdir“.
Sjálf skýrslan með greinargerð tillögunnar ásamt húsakönnun og
fornleifaskráningu og kynningarefni frá íbúafundi liggur frammi á
bæjarskrifstofum og er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins. Í kynningarefni
er fjallað stuttlega um lögin, markmið og aðferð ásamt mati á varðveislugildi
byggðarinnar sem byggir einkum á húsakönnun og fornleifaskráningu sem
eru veigamikill þáttur greinargerðar, ásamt skilmálum fyrir uppbyggingu.
Unnið er samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð sem tóku gildi árið
2015, með það að markmiði að vernda sögulega byggð.
Tillagan og fylgigögn eru í auglýsingu til
13. desember nk. Íbúar og aðrir áhugasamir eru
hvattir til kynna sér gögnin og koma með upplýsingar
og ábendingar, sé tilefni til.
Ábendingar og athugasemdir
berist til einar@sudurnesjabaer.is
Afmörkun svæðis
Á dögunum hlaut Heilsuleikskólinn
Skógarás verðlaun fyrir besta eTwinn-
ing verkefni síðasta skólaárs en það
heitir „Litli vistfræðingurinn“ (The
Little Ecologist). Verðlaunin voru
veitt af landsskrifstofu Erasmus+ á
Íslandi (Rannís) við hátíðlega athöfn.
Að sögn Þóru Sigrúnar Hjaltadóttur,
skólastjóra er verkefnið hluti af „Eco
Tweet“ en það er Erasmus+ verkefni
skólans. Um er að ræða umhverfis-
verndarverkefni þar sem nemendur
læra um leiðir til þess að gæta að um-
hverfinu og taka ákvarðanir þar að
lútandi. Í verkefninu læra börnin m.a.
um vistfræði, verndun dýra, gróður-
setningu, tré, kryddplöntur, vatn og
endurvinnslu svo eitthvað sé nefnt.
Helgi Arnarson fræðslustjóri Reykja-
nesbæjar og Ingibjörg Bryndís Hilm-
arsdóttir leikskólafulltrúi Reykja-
nesbæjar heimsóttu skólan af þessu
tilefni og færðu honum bókagjöf í
tilefni þessarar viðurkenningar.
Fjallað er um málið í Suðurnesjama-
gasíni vikunnar sem frumsýndur er
á fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Fékk viðurkenn-
ingu fyrir umhverfis-
verndarverkefni
Leikskólinn Skógarás á Ásbrú er í
skemmtilegum verkefnum:
„ Það var mikill heiður að vera hluti af þessari ráðstefnu þar sem við hjá
GeoSilica leggjum áherslu á að auka nýtingu þeirra auðlinda sem við höfum
hér á Íslandi með því að framleiða hágæða steinefni unnið úr jarðhitavatni
Hellisheiðavirkjunar,“ segir Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica
en síðasta fimmtudag flutti hún erindi á ráðstefnu í Hellisheiðarvirkun um
beina nýtingu jarðvarma. Meðal gesta voru margir af forstjórum stærstu
orkufyrirtækja heims og frá stjórnvöldum.
Gestirnir á ráðstefnunni fræddust
um beina nýtingu á jarðvarma og þá
sérstaklega um starfssemi GeoSilica.
Fida Abu Libdeh, framkvæmdastýra
GeoSilica, flutti erindi fyrir gesti og
vakti það athygli hjá gestunum en
ekki síst sú verðmætasköpun sem
á sér stað hjá GeoSilica með beinni
nýtingu jarðvarma hér á Íslandi.
Við höfum verið í nánu samstarfi við
Orku Náttúrunnar frá upphafi og
tekið sameiginlega þátt í ráðstefnum
sem þessari frá upphafi til þess að
vekja athygli á nýsköpun sem á sér
stað á Íslandi ,“ segir Fida.
Þegar erindi Fidu var lokið fengu
gestir að gæða sér á veitingum og
fengu þeir allir smakk af GeoSilica
vörunum sem vakti mikla lukku en
gestum þótti áhugavert að fá tilfinn-
ingu fyrir því hverskonar verðmæti
er hægt að skapa úr jarðhitavatni.
Ísland heldur áfram að vera fremst
á heimsmælikvarða í nýtingu á jarð-
varma og nýsköpun í nýtingu jarð-
varma vekur alltaf athygli erlendra
aðila.Frumkvöðlar í slíkri starfsemi
hafa því frá miklu að segja þegar slíkir
aðilar koma til landsins, segir í frétta-
tilkynningu frá GeoSilica.
GeoSilica
vakti athygli á ráðstefnu um
beina nýtingu jarðvarma
Helgi og Ingibjörg frá Reykjanesbæ heimsóttu skólann og færðu honum bókagjöf í tilefni árangurs skólans.
MÁNUDAGA
KL. 21:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
21MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.