Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.2019, Page 22

Víkurfréttir - 07.11.2019, Page 22
Brynjar í Óðni var það nafn sem við kölluðum hann oftast enda kenndur við vélsmiðjuna Óðinn sem hann rak og vann í stóran hluta lífs síns. Þegar sá sem þetta ritar kynnist þeim hjónum, höfðum við Brynjar eignast öflugar fjórhjóladrifnar bifreiðar sem voru notaðar óspart til ferðalaga um óbyggðir Íslands. Þau Brynjar og Jóhanna ásamt börnum voru afar dugleg að stunda slíkar ferðir og njóta. Ég minnist ótal ferða norður fyrir Hofsjökul í Ásbjarnarvötn, suður Sprengisand til Veiðivatna og þaðan yfir Hófsvað til Landmannalauga. Til slíkra ferða þurfti traustar bif- reiðar og trausta stjórnendur sem ekki voru ragir við að takast á við fjölbreytt, viðfangsefni og áskoranir sem ferðir um lítt og ókannað hálendi Íslands voru á þeim tíma. Þar voru þau Brynjar og Jóhanna á réttum stað. Suðurnesjafólk var orðið ansi þekkt í þeim þrönga hópi ferðalanga sem fór slíkar ferðir á þeim tíma en þar voru áberandi, Brynjar, Knútur Höiriis ásamt undirrituðum sem allir áttu traustar fjallabifreiðir sem báru sama litinn og var því eftir þeim tekið hvar sem þeir fóru. Þetta voru góðir og ánægjulegir tímar með glöðu og skemmtilegu fólki. Það er freistandi að minnast einstakra ferða eins og þegar kabyssan í Landmannalaugum leitaði útrásar eða páskaferðanna í öræfasveitina þar sem mörg óvænt og spennandi ævintýri biðu okkar. Brynjar var einn stofnenda Björgunar- sveitarinnar Stakks þar sem hann og Jóhanna störfuðu í af miklum krafti. Á mörgum ferða okkar um óbyggð- irnar, mest að sumarlagi vorum við oft búin að hugsa um hvernig við gætum notið þess að ferðast þar um einnig að vetri til. Það fór svo að hópur sam- rýmdra ferðafélaga stofnuðu félags- skap um kaup á snjóbíl, fyrst einum en síðar öðrum. Brynjar sá um og smíðaði sleða fyrir báða snjóbílana, til aðseturs í slíkum ferðum. Það tímabil var okkur mikill gleðigjafi, páskaferðir í Landmannalaugar og víðar með fjölskyldum og vinum voru afar ánægjulegar. Hópur ferða og björgunarsveitafélaga tók sig saman eftir gott starf innan björgunar- sveitarinnar um að stofna ferðahóp til að viðhalda tengslum og minn- ingum um þá góðu tíma. Þar létu þau Brynjar og Jóhanna sitt ekki eftir liggja. Hópurinn kallar sig 1313 og hefur haldið sambandi í 36 ár. Það er erfitt að kveðja góða vini og félaga eftir ánægjulegt samstarf til margra ára. Samstarf sem byggst hafði á trausti og áreiðanleika þar sem oft reyndi á þolinmæði og út- sjónarsemi þegar við lentum í erfiðum og óvæntum aðstæðum. Þá var gott að hafa þau Brynjar og Jóhönnu í hópnum. Við félagar þeirra í fjallaferðum og björgunarstarfi þökkum Brynjari samfylgdina af heilum hug og munum sakna hans með djúpu þakklæti fyrir samstarfið, ánægjuna og ljúf- mennskuna sem fylgdi honum í öllum okkar ferðum. Okkar dýpsta samúð er hjá Jóhönnu, börnum þeirra og fjölskyldum. Brynjar, góða ferð á hverjar þær slóðir sem þú ert lagður í og kæra þökk fyrir samfylgdina. f.h Félaga í Björgunarsveitinni Stakkur og Ferðahópsins 1313. Garðar Sigurðsson. Kveðja frá Stakksfélögum og ferðahópnum „Ég er fædd í Keflavík og uppalin í tíu systkina hópi af foreldrum sem unnu mikið og samviskusamlega að lífsverkum sínum en þau voru Marta Eiríksdóttir, húsmóðir, og Ólafur Ingi- bersson, vörubílstjóri. Við systkinin vorum svo lánsöm að eiga föðurömmu Marín til nítján ára í sama húsi og móðurömmu Guðrúnu á heimilinu í 35 ár. Ég byrjaði búskap í Keflavík og bjó þar níu fyrstu búskaparárin mín ásamt eiginmanni mínum, Sigurði Karlssyni, og þremur börnum okkar, sem öll fæddust á Sjúkrahúsi Kefla- víkur,“ segir Hjördís Ólafsdóttir. Tíu manna fjölskylda undir súð „Fjölskyldan bjó í íbúð á loftinu á Hafnargötu 24 í Keflavík. Þarna voru þrjú herbergi og eldhús, allt undir súð. Yfir snarbröttum stiganum var hleri. Ekkert klósett, bara útikamar. Stofa, hjónaherbergi og ömmu Guðrúnar herbergi. Þvottahúsið var í kjallar- anum. Við tíu systkinin fæddumst öll á loftinu á sautján ára tímabili. Elínrós ljósmóðir tók á móti okkur öllum. Amma Guðrún var með dótturson sinn móðurlausan átta ára gamlan. Þau fluttu til mömmu og pabba árið sem þau byrjuðu að búa eða árið 1934. Amma og Svenni frændi fengu eitt herbergi og bjuggu í því þar til hann flutti að heiman. Þá fór Sverrir bróðir inn til ömmu. Annars sváfu sjö manns í hjónaherberginu, mamma, pabbi, eitt barn í vöggu/barnarúmi og svo fjögur börn til viðbótar sem sváfu í tveimur tveggja hæða kojum. Tvö barnanna sváfu í stofunni og síðustu árin á Hafnargötunni sváfu tveir niðri hjá ömmu Marínu. Barnafjöldinn tók sífellt breytingum og þurfti oft að stækka eldhúsborðið til að koma öllu heimilisfólkinu fyrir. Annars var borðað til skiptis. Í hjónaherberginu voru auðvitað bara rúm en í stofunni voru tveir dívanar, saumavélin hennar mömmu og skrifborðið hans pabba. Þarna var nægjusemin á háu stigi.“ Kirkjan mikilvæg „Kirkjan var einn af mínum uppá- haldsstöðum á sunnudögum. Þá mætti maður mjög ungur til barnamessu, söng barnasálma og hlustaði á séra Björn Jónsson segja okkur dæmisögur úr Nýja Testamentinu og tengdi þær daglegu lífi. Einnig fengum við svo- kallaðar Jesúmyndir sem tengdust dæmisögu dagsins. Séra Björn var góður sögumaður og líka söngmaður. Ég fékk inngöngu í barnakirkjukórinn sem Villi Ellefsen stjórnaði og var einnig organisti í barnamessunum. Á unglingsárum fékk ég inngöngu í kirkjukórinn og þá var Geir kórstjóri og organisti.“ Allir upp úr „Maður lærði sundtökin í sundhöllinni um fimm, sex ára aldur og aðalmark- miðið var að komast í „bláu bókina“ sem mig minnir að hafi verið að geta synt bringusund yfir laugina þvera. Sundlaugin var eini staðurinn sem maður sótti daglega, sex daga vik- unnar. Ég elskaði að synda og leika mér þó maður mætti bara vera í 40 mínútur ofan í. Að þeim tíma loknum var flautað í dómaraflautu og maður rekinn upp úr. Sigga Jóa Ball, Sigríð- ur Jóhannsdóttir góð vinkona mín í dag, sá svo um að maður væri sko ekkert að hangsa í klefanum við að koma sér í fötin. Hún hótaði að henda okkur stelpunum inn í strákaklefa ef við drifum okkur ekki og við trúðum henni til að standa við orð sín en það vildum við ekki. Ekki veit ég hvað var sagt við strákana.“ Skátafélagið Heiðabúar „Skátahúsið var góður samkomu- staður fyrir Skátafélagið Heiðabúa. Þar voru haldnir skátafundir og deildar- fundir. Mikið lært að skátasið, útilegur skipulagðar, hnútar bundnir, þrautir reyndar, skátalögin sungin og boð- skapurinn tekinn hátíðlegur. Skáta- hóparnir voru nefndir ýmsum frum- legum nöfnum og búnir til flokksfánar sem lýstu nöfnum skátaflokkanna, til dæmis Stjörnur, Kátir hvolpar og fleira. Á tímum ferminga var mikil vinna lögð í að skrifa skátaskeyti sem voru heillaskeyti til fermingarbarna. Helgi S. Jónsson, skátahöfðingi Heiðabúa, var aðalskrautritari á skeytin og gerði þau litskrúðug og undurfalleg.“ Blómlegt kórastarf „Tónlistarskólinn í Keflavík var fyrst á loftinu í UNGÓ. Ég byrjaði þar á blokkflautu að mig minnir um átta ára aldur en þegar bræður mínir fóru að segja mér uppspunnar draugasögur úr húsinu og dimma tók á kvöldin missti ég kjarkinn við að fara gang- andi í myrkrinu í tónlistarnámið og hætti. Stuttu eftir fermingu mína var tónlistarskólinn kominn í húsið að Austurgötu og þar hóf ég nám í klass- ísku söngnámi. Um 1968 var formlega stofnaður Kvennakór Suðurnesja og var þá Herbert kórstjóri í nokkur ár. Þetta var yndislegur félagsskapur og að syngja í kórnum var eins og heilun eftir erfiðan vinnudag, maður kom endur- nærður heim að lokinni kóræfingu.“ Skautasvell í frosthörku og álfabrennur á íþróttavellinum „Boðið var upp á skautasvell á íþrótta- vellinum við Skólaveg í frosthörkum. Þá kom tankbíll og sprautaði vatni í lögum á íþróttavöllinn þannig að börn og fullorðnir gátu rennt sér á skautum. Það var gaman og maður lærði að skauta, fyrst með skíðasleða til að styðjast við þar til maður var orðin nógu fær að renna sér án hjálpar. Álfabrennur á þrettándanum voru skemmtilegar og haldnar með sam- eiginlegu átaki bæjarins, Skátafélags- ins Heiðarbúa, Karlakórs Keflavíkur og Kvennakórs Suðurnesja, Hestamanna- félagsins og fleiri. Brennurnar voru vel hlaðnar og vel stjórnað á íþróttavell- inum við Skólaveg. Kórfélagar mættu uppáklæddir grímubúningum, kóngur, drottning og hirðfólk komu syngj- andi í stórri skrúðgöngu með logandi kyndla að bálkestinum og dönsuðu þar í kring. Börnin í bænum voru einnig uppáklædd í búningum og tóku þátt. Þarna var mikil gleði og gaman.“ Hann hafði sjálfur breyst „Ljósanótt finnst mér meiriháttar sam- koma. Árgangagangan og skipulagið á henni, þar sem allir hittast, ungir sem aldnir. Upplifunin er oft mikið hláturs- efni bæði meðan á hátíðinni stendur og þegar heim er komið. Fyrsta sinn er við hjónin mættum í gönguna sagði maðurinn minn um skólafélaga sína: „Ég sá fyrst engan sem ég þekkti, þetta eru allt svo breytt andlit,“ en auðvitað var hann ekkert að hugsa um að hann sjálfur hafði líka breyst og gátum við hlegið að því.“ Nægjusemi á háu stigi Hvað segir fólk um gamla bæinn sinn? HJÖRDÍS ÓLAFSDÓTTIR RIFJAR UPP GAMLA TÍMA Í KEFLAVÍK Hjördís ásamt foreldrum sínum og systkinum. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, frá Brekku í Aðaldal, lést á Hrafnistu Nesvöllum, mánudaginn 4. nóvember. Guðbjörg Nanna Einarsdóttir, Kristjana Einarsdóttir Herzog, Briant M. Herzog, Jóna Gréta Einarsdóttir, Lárus Milan Bulat, barnabörn og langömmubörn. Guðbjörg Nanna Einarsdóttir, Kristjana Einarsdóttir Herzog, Briant M. Herzog, Jóna Gréta Einarsdóttir, Lárus Milan Bulat, barnabörn og langömmubörn. Hjördís ljósálfur í Heiðabúum. 22 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.