Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Blaðsíða 27
Gæði11. október 2019 KYNNINGARBLAÐ SPARAÐU MILLJÓNIR MEÐ SPARIBÍL: Sjáðu verðmuninn! Síðan árið 2003 hefur Bílasalan Sparibíll boðið viðskiptavinum sínum upp á margfalt betra verð en aðrir á markaðnum á bæði nýjum og nýlegum notuðum bílum. Eigandi Sparibíls, Viktor Urbancic, er með yfir þrjátíu ára reynslu í faginu og veit sitthvað um bílasöluumhverfið hér heima og í Evrópu. Jafnvel ódýrari en internetið! Með því að versla á netinu má oft spara sér háar fjárhæðir. Sömuleiðis er oft töluvert ódýrara að kaupa bíl á netinu heldur en við bílaumboðin hérna heima. „En við skulum ekki gleyma því að þegar verslað er á netinu er tekin ákveðin áhætta. Sú áhætta eykst eftir því sem varan er dýrari og því eru ekki allir sem treysta sér í það að kaupa heila bifreið á netinu. Margt getur vafist fyrir fólki í sambandi við tryggingar, sendingarkostnað og skilmála og ekki er alltaf víst að slíkt sé innifalið í verði. Við hjá Sparibíl bjóðum upp á að sjá um þetta allt fyrir kúnnann. Við erum í góðu sambandi við trausta bílasala í Evrópu sem bjóða bifreiðar á heildsöluverði. Okkur býðst að auki enn betra verð á bílunum þar sem við kaupum fleiri bifreiðar en einstaklingurinn. Að auki fáum við betri kjör á flutningi vegna þess að við flytjum inn meira magn. Síðast en ekki síðst bjóðum við upp á greiðsluþjónustu þannig að viðkomandi getur borgað bílinn í áföngum. Án þess að það komi niður á kaupöryggi getum við svo lagt örlítið á heildsöluverðið, en náum jafnframt að halda verðinu niðri fyrir viðskiptavininn. Því getur það í mörgum tilfellum verið ódýrara að versla við okkur heldur en að gera það sjálfur á netinu,“ segir Viktor. Við látum fylgja nokkur dæmi um það frábæra verð sem Sparibíll hefur upp á að bjóða: • Nýr 2019 Suzuki Vitara GLX á 4.290.000 hjá Sparibíl, en í umboðinu kostar hann 5.490.000. Mismunurinn er því 1.200.000,- • Nýr Jeep Wrangler Rubicon sem kostar 9.760.000 hjá Sparibíl en sambærilegur bíll er um 14 milljónir hjá umboðinu. • Við höfum verið að moka út Volvo V60 hybrid bílum sem eru 2018 módel. Þeir eru því rétt um eins og hálfs árs gamlir og eknir frá 9.000 km. upp í 25.000 km. Við erum að selja þá á ca þremur milljónum lægra verði en nýr kostar. • Þá eigum við nokkra nýja og nýlega Nissan Leaf rafmagnsbíla á frábæru verði. Alltaf nóg af sendibílum Sparibíll á alltaf töluvert af bæði sendibílum og litlum rútum á lager. „Undanfarið höfum við verið að selja mjög mikið af þessum gerðum bíla, bæði nýjum og líka nýlegum notuðum. Við látum líka framleiða fyrir okkur fjórhjóladrifnar 12 manna Ford rútur, en þær eru ekki upprunalega framleiddar þannig. Þessar 4X4 rútur eru á hálfvirði miðað við það sem Volkswagen og Mercedes Benz rúturnar kosta.“ Sparibíll flytur inn það sem viðskiptavinurinn vill „Við eigum yfirleitt á lager það sem er vinsælast hverju sinni og selst vel. Núna eigum við til dæmis um fjörutíu bíla á lager. Fólk getur líka komið til okkar með séróskir um bifreiðar. Þannig nýtum við sambönd okkar til þess að flytja inn þá bifreið sem viðskiptavinurinn óskar sér, en kjörin eru auðvitað mismunandi eftir atvikum. Á heimasíðunni okkar, sparibill.is, má sjá um 350 bíla sem við getum fullyrt að þú sparir á því að kaupa hjá okkur.“ Splunkunýr og ónotaður bíll hjá Sparibíl á sama verði og tveggja ára notaður Viktor segist í sumum tilfellum taka notaða bíla upp í kaup á nýjum bíl. „Eðlilegt er þá að menn fái lægra verð fyrir bílinn hjá mér en öðrum bílasölum þar sem við stefnum að því að bjóða betra verð en aðrir. Í sumum tilfellum hef ég t.d. verið að bjóða nýjan bíl á svipuðu verði og aðrar bílasölur gefa fyrir til dæmis tveggja ára gamlan notaðan bíl af sömu tegund. Ef þetta á að vera hægt þá get ég ekki tekið tveggja ára notaðan bíl í sléttum skiptum fyrir splunkunýjan.“ Sparibíll er staðsettur í stórglæsilegu húsnæði að Hátúni 6a. Sími: 577-3344. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Sparibíls, sparibill.is. Fylgstu með á Facebook: Sparibíll Myndir: Eyþór Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.