Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Blaðsíða 43
FÓKUS 4311. október 2019
hvern óviðeigandi hátt. Þá benda
þeir þér á að þetta sé vanvirðing
og ef þú vilt taka svona mynd, þá
sé það svo sem allt í lagi, en þeir
leggja það til við þig að þú birtir
þessar myndir ekki,“ segir Hjörv-
ar.
Margir myndu líta svo á að
með því að drepa dýrið þá sértu
að vanvirða það en þú lítur svo á
að meðan það er hreinsað og stillt
upp þá sé það virt, er þar línan
dregin?
„Já, í raun og veru. Línan er eig-
inlega dregin þar. Þetta er hreins-
að og gert eins snyrtilegt og hægt
er. Myndin verður falleg. Þessu er
ekki stillt upp eins og líki,“ svarar
Hjörvar.
„Íslendingar þekkja þetta ekki.
Yfirleitt eru trophy-myndir hjá
Íslendingum sóðalegri en þekk-
ist úti og það er það sem kem-
ur óorði á þetta, ef þetta er haft
sóðalegt. Við tökum með okkur
vatn á veiðistaðinn og erum með
bursta með okkur.“
Það virðist vera einróma álit
innan samfélagsins að trophy-
veiði sé almennt „siðferðislega
röng“. Hvernig svarar þú því?
„Ef ég ætti að svara fyrir þetta
þá myndi ég fyrst koma inn á það
að það er ekki verið að drepa ung-
dýr, eða veiða. Það eru felld göm-
ul dýr. Ég til dæmis skaut anti-
lópu í sumar sem þurfti að fella.
Ef ég hefði ekki gert það þá hefði
bóndinn sjálfur þurft að fella
hana og það hefði verið mínus fyr-
ir hann upp á 600 þúsund krón-
ur. Hún var felld á þeim grund-
velli að hún var búin að drepa hjá
bóndanum þrjá unga tarfa. Hún
var komin á þann aldur að hún
var geðill og það var ekki hægt
að hafa hana inni á svæðunum
lengur því hún var farin að drepa
yngri tarfana. Hún hættir þessu
ekki þegar hún er byrjuð, hún var
bara að vernda sitt svæði. Fyrir
mér finnst mér mikið skynsam-
legra að bóndinn eigi þrjá unga
tarfa sem geta verið lifandi í 17
ár frekar en ég myndi sleppa því
að fella þennan sem var 14 ára og
átti þrjú ár eftir.“
Eru öll dýr sem þú hefur drepið
í svoleiðis aðstæðum?
„Ekki öll í þeim aðstæðum að
það þurfi að drepa þau. Það er
ekki verið að skjóta kálfa eða ung-
dýr nema þess virkilega þurfi.“
Fallegt útlit mikilvægt
Ástæðan fyrir því að ungdýr eru
sjaldan skotin er þó ekki dýranna
vegna, að sögn Hjörvars. Heldur
snýst þetta um útlit þeirra. Hann
segir að því eldri sem dýrin eru,
því „fallegri“ eru þau og því „flott-
ari“ verður myndin.
„Það er fyrst og fremst verið að
skjóta dýrin fyrir myndatökuna
og eins fyrir menn að eiga minn-
ingar, flytja heim uppstoppuð dýr.
Þá er þetta alltaf gert svona. Því
eldra sem dýrið er því fallegra er
það. Maður sér að það hefur lif-
að.“
Viðbrögð
Hjörvar deilir trophy-myndum
sínum á Facebook og Instagram.
Aðspurður hvers konar viðbrögð
hann fær segir hann þau mest-
megnis vera jákvæð, enda eru
það vinir hans og kunningjar sem
fylgja honum á samfélagsmiðl-
um.
„Mér þykir mjög ólíklegt að
grænkerar hafi einhvern áhuga á
því að vingast við mig þannig að
yfirleitt er þetta fólk sem þekkir
mann og umgengst mann mikið.
Vissulega hef ég fengið neikvæð
viðbrögð og maður hefur fengið
neikvæð skilaboð á Instagram og
manni hefur verið eytt út af Face-
book og eitthvað svoleiðis. En í
raun er það ekkert sem skiptir
mig máli,“ segir Hjörvar.
„Yfirleitt er þetta þá fólk sem
maður átti enga samleið með
hvort eð er. Þannig að þú ert ekki
að tapa neinu á þvi í sjálfu sér.
Þegar ég fæ skilaboð þá hef ég
oft útskýrt þetta fyrir fólki. Meðal
annars fékk ég ein skilaboð í fyrra
og útskýrði mitt mál og fékk þá til
baka, ókei allt í lagi að skjóta dýr,
en af hverju alltaf að taka mynd af
þér með því?“
Og hverju svararðu?
„Já, þetta er í raun og veru hluti
af þessu. Ég hugsa að ef þú kæmir
þarna út og færir að veiða og vild-
ir ekki láta taka mynd af þér með
dýrunum þá veit ég ekki hvernig
leiðsögumennirnir myndu taka
því. Þeir gera ráð fyrir því að þú
takir mynd af þér með dýrinu.“
Af hverju?
Nú verð ég að fá að spyrja þig, af
hverju? Hvað færð þú út úr þessu?
„Ég fæ útivist út úr þessu. Þetta
er góð útivist, að komast út í nátt-
úruna og þú færð líka góðan fé-
lagsskap út úr þessu. Ég hef verið
nokkuð lukkulegur með félagana
sem hafa komið með mér hér að
heiman og svo hefur einn Finni
verið að veiða með okkur. Eins
með leiðsögumennina úti, þetta
er bara fólk sem maður kann vel
við. Það er ekki bara veiðin. Við
vöknum saman á morgnana,
borðum saman morgunmat og
hádegismat. Á kvöldin sitja menn
saman og segja veiðisögur, bæði
sannar og lognar. Bestu veiðiferð-
irnar eru ekki endilega þær þar
sem það er skotið mesta magnið.“
En nú myndu sumir segja að
þú getur fengið útivist og félags-
skap með því að ganga upp Esj-
una í góðra vina hópi. Það hlýtur
að vera eitthvað við það að drepa
dýrið sem heillar þig?
„Í raun og veru myndi ég aldrei
nokkurn tímann segja að það væri
neitt við það að drepa dýrið sem
væri heillandi. Það er í raun og
veru kannski frekar það að veiða
það. Ef ég fengi útrás fyrir því að
drepa dýr þá myndi ég held ég
bara vinna í sláturhúsi. En það er
kannski allt hitt. Veiði getur verið
sýnd en ekki gefin. Eins og maður
þekkir hér á landi þá geturðu eytt
heilum degi í að veiða eitt dýr. Þú
þarft kannski að ganga 20 km og
læðast þrjá af þeim. Eða þarft að
velja þér leiðir og annað eftir um-
hverfinu. Það er kannski allt þetta
sem heillar mest. Ekki athöfn-
in sjálf þegar dýrið er fellt. Það er
kannski síðasti handleggurinn, jú
þá kannski veistu að þú ert búinn
að ná markmiðinu.“
Finnst þér erfitt að sjá dýrið
kveljast ef þú nærð ekki að drepa
það með fyrsta skoti? Finnirðu
einhverjar tilfinningar þegar það
gerist?
„Já, já, það er ekkert skemmti-
legt við það. Þú færð enga útrás
við það að lenda í vandræðum
með því að aflífa dýr. Það var eitt
dýr af öllum þessum átján sem féll
ekki innan nokkurra sekúndna.
Við lentum aðeins í eltingaleik
við það, en það er ekki sú veiði
sem er skemmtilegust. Það er eig-
inlega bara hundleiðinlegt að elta
sært dýr. Ef það er hægt að kom-
ast hjá því þá gerir maður það. Þú
færð mest út úr því ef dýrið fell-
ur samstundis og þú veist að það
þurfti ekki að þjást,“ segir Hjörvar.
„Manni finnst líka gott að
hugsa til þess þegar maður er að
borða kvöldmatinn þarna úti að
þú ert að borða dýr sem var frjálst.
Þetta eru ekki dýr sem hafa þurft
að alast upp í húsum og annað.
Þau hafa fengið að njóta sín frá
upphafi. Dýrin í Afríku fá að lifa
frjáls þar til undir síðustu árin og
þá eru þetta örlögin.“ n
www.gilbert.is
Vínland Gmt
VIÐ KYNNUM NÝTT ÚR FRÁ
JS WATCH CO. REYKJAVIK
„Trophy-veiði snýst um að skjóta fram-
andi og fyrirfram ákveðin dýr – oftast
stór dýr eins og nashyrninga, fíla, ljón,
birni og fjallaljón – með opinberlegu
leyfi ríkisstjórnar, sér til ánægju.“ – BBC
Wildlife Magazine.
Hjörvar Ingi ásamt Daniel og Nicole,
eigendum Sunguti Safaris. Hann lítur
á þau sem vinafólk sitt í dag.
Hjörvar Ingi og gíraffinn sem hann drap í ár.
Hjörvar Ingi og kúdúantilópa sem hann skaut. Hægt er
að fylgjast með Hjörvari á Instagram @hjorvingi