Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Blaðsíða 22
Gæði 11. okróber 2019KYNNINGARBLAÐ Komdu í besta form lífs þíns með einkaþjálfarann í snjallsímanum! Ég æfði með Amöndu í heilt ár og náði besta tímabili í líkamsrækt sem ég hef átt. Ég sá breytingar jafnt og þétt allan tímann strax frá fyrsta mánuði og fram að síðustu æfingunni. Ég myndi mæla með henni fyrir alla sem halda að þeir njóti þess ekki að fara í ræktina, þar sem hún hvatti mig ekki bara áfram heldur sneri hatri mínu á ræktinni í það að njóta þess að fara á æfingar og stunda líkamsrækt.“ – Guðmundur Gunnar Garðarsson. „Ég er ótrúlega ánægð með fjarþjálfunina hjá Amöndu. Æfingarnar eru mjög krefjandi og ég er sífellt að fara út fyrir þægindarammann minn sem er einmitt það sem ég þurfti. Appið sem hún notar er líka frábært og hún er dugleg að senda manni og athuga hvernig gengur. Ég mæli hiklaust með henni!“ – Sara Petra „Eftir margra ára kyrrsetulíf og nokkrar misheppnaðar tilraunir til virkari lífsstíls, reyndist það einmitt slíkt gæfuspor fyrir mig að fara í einkaþjálfun til Amöndu. Hún býr ekki einungis yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af þjálfun og keppni, heldur er hún líka sérstaklega viðkunnanleg manneskja og einstök fyrirmynd. Með vel útfærðu hlaupa- og styrktarprógrammi hefur hún vísað mér veginn að betra lífi. 10 mánuðum og 25 töpuðum kílóum síðar (án megrunarkúrs), er ég í einu besta líkamlega formi lífs míns, hleyp hálfmaraþon og aðrar vegalengdir á betri tíma en þegar ég var ungur maður, og lifi bæði virkum og heilbrigðum lífsstíl. Ég kann ákaflega vel við þennan „nýja mig“ og ætla að leyfa honum að njóta sín áfram um ókomna tíð. Takk fyrir mig, Amanda, ég hefði ekki getað gert þetta án þín!“ – Yngvi Björnsson Komdu þér í form hvar sem er Það hentar ekki öllum að mæta á fyrirfram ákveðnum tíma í ræktina og hafa einkaþjálfarann standandi yfir sér á meðan þeir svitna og púla. Margir vilja miklu frekar fá prógramm í símann þar sem þeir geta hreyft sig á sínum forsendum og á sínum tíma. Auk þess hentar ræktarumhverfið ekki öllum og margir vilja gera æfingarnar heima hjá sér eða úti. Fitlife er hugarfóstur Amöndu Marie Ágústsdóttur sem hefur starfað sem þjálfari í sjö ár og einkaþjálfari í fjögur ár. „Ég vinn sem einkaþjálfari hjá World Class og Fitlife er framlenging á því starfi. Mér fannst tilvalið að bjóða upp á þessa þjónustu til þess að geta hjálpað sem flestum,“ segir Amanda. Vill alltaf veita topp þjónustu „Markmið mitt er ávallt að viðskiptavinurinn nái sínu markmiði og það er það besta sem ég veit þegar það gerist. Margir hafa neikvæðar tilfinningar gagnvart ræktinni eða hreyfingu en ég vil hjálpa fólki að mynda heilbrigt samband við æfingar og mat. Það er ómetanleg tilfinning að kenna fólki að njóta þess að hreyfa sig. Ég varast líka að taka við fleirum en ég hef tök á, því ég vil alltaf geta boðið upp á topp þjónustu.“ Amanda er stjörnum prýddur einkaþjálfari með gífurlega reynslu, bæði af því að þjálfa sjálf og þjálfa aðra. Einkaþjálfaranám hjá NASM, þjálfararéttindi hjá IRONMAN og fyrsta stig sem þríþrautarþjálfari hjá International Triathlon Union. Amdanda hefur alltaf verið í keppnisíþróttum og í dag keppir hún í þríþraut. Hvort sem þú vilt styrkjast, bæta úthald eða lækka fituprósentuna þá veit Amanda hvað þarf til að ná árangri. Fitlife: Snjöll leið til að ná markmiðunum Ferlið er sáraeinfalt, enda á það að vera einfalt og skemmtilegt að koma sér í form. „Fitlife byggist á snjallforriti fyrir iPhone- og Android-síma, þar sem þú færð sérsniðið prógramm með æfingaplani og matarplani. Ef þig vantar aðstoð við æfingarnar, ráðleggingar eða hvatningu þá nærðu alltaf í mig í gegnum skilaboð, hvort sem er í tölvunni eða símanum.“ 1. Þú skráir þig hjá Fitlife og hleður niður Fitlife-snjallforritinu. 2. Þú svarar spurningalista og út frá þínum svörum sníður Amanda persónulegt æfingaplan fyrir þig. Einnig færðu sérsniðið matarplan. 3. Þú byrjar að hreyfa þig og getur fylgst með árangrinum í snjallforritinu. Snjallforritið inniheldur myndbönd sem kenna nákvæmlega hvernig á að gera hverja æfingu fyrir sig. Þú skráir niður árangur og framfarir í appið. Einnig geturðu hlaðið inn myndum til að fylgjast með árangrinum. Í forritinu er matarplan samsett af næringarfræðingi sem hjálpar þér að halda utan um mataræðið. Matarplönin eru brotin upp í „macros“. Hægt að hafa plönin keto, vegan, vegetarian, holistic, gluten free, low glycemic, no lactose, balanced og fleiri útgáfur. Fitlife mætir þér þar sem þú ert og hentar þeim markmiðum sem þú vilt setja þér. „Einkaþjálfun er alltaf persónubundin. Hvort sem hún gerist á staðnum eða í gegnum símann byggist hún alltaf á sambandinu við viðskiptavininn og því að hvetja hann í áttina að sínum markmiðum,“ segir Amanda. Það er afar misjafnt hve lengi viðskiptavinir stoppa hjá Amöndu og Fitlife en langflestir eiga það sameiginlegt að hafa náð þeim árangri sem þeir ætluðu sér. „Þónokkrir hafa verið hjá mér alveg frá því ég byrjaði að þjálfa. Einnig koma sumir í 1–3 mánuði rétt til þess að koma sér af stað í ræktinni eða ná tímabundnum markmiðum. Margir koma svo aftur til mín til þess að ná enn betri árangri.“ Nánari upplýsingar á fitlife.is Fylgstu með á Facebook: FitLife Einkaþjálfun – Amanda Marie Instagram: Amanda m agustsdottir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.