Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Side 22
Gæði 11. okróber 2019KYNNINGARBLAÐ
Komdu í besta form lífs
þíns með einkaþjálfarann
í snjallsímanum!
Ég æfði með Amöndu í heilt ár og náði besta tímabili í líkamsrækt sem ég hef átt.
Ég sá breytingar jafnt og þétt allan
tímann strax frá fyrsta mánuði og
fram að síðustu æfingunni. Ég myndi
mæla með henni fyrir alla sem
halda að þeir njóti þess ekki að fara í
ræktina, þar sem hún hvatti mig ekki
bara áfram heldur sneri hatri mínu á
ræktinni í það að njóta þess að fara
á æfingar og stunda líkamsrækt.“ –
Guðmundur Gunnar Garðarsson.
„Ég er ótrúlega ánægð með
fjarþjálfunina hjá Amöndu.
Æfingarnar eru mjög krefjandi
og ég er sífellt að fara út fyrir
þægindarammann minn sem er
einmitt það sem ég þurfti. Appið
sem hún notar er líka frábært og
hún er dugleg að senda manni og
athuga hvernig gengur. Ég mæli
hiklaust með henni!“ – Sara Petra
„Eftir margra ára kyrrsetulíf og
nokkrar misheppnaðar tilraunir til
virkari lífsstíls, reyndist það einmitt
slíkt gæfuspor fyrir mig að fara í
einkaþjálfun til Amöndu. Hún býr
ekki einungis yfir yfirgripsmikilli
þekkingu og reynslu af þjálfun og
keppni, heldur er hún líka sérstaklega
viðkunnanleg manneskja og einstök
fyrirmynd. Með vel útfærðu hlaupa-
og styrktarprógrammi hefur hún
vísað mér veginn að betra lífi. 10
mánuðum og 25 töpuðum kílóum
síðar (án megrunarkúrs), er ég í einu
besta líkamlega formi lífs míns, hleyp
hálfmaraþon og aðrar vegalengdir
á betri tíma en þegar ég var ungur
maður, og lifi bæði virkum og
heilbrigðum lífsstíl. Ég kann ákaflega
vel við þennan „nýja mig“ og ætla að
leyfa honum að njóta sín áfram um
ókomna tíð. Takk fyrir mig, Amanda,
ég hefði ekki getað gert þetta án
þín!“ – Yngvi Björnsson
Komdu þér í form hvar sem er
Það hentar ekki öllum að mæta á
fyrirfram ákveðnum tíma í ræktina
og hafa einkaþjálfarann standandi
yfir sér á meðan þeir svitna og
púla. Margir vilja miklu frekar fá
prógramm í símann þar sem þeir
geta hreyft sig á sínum forsendum
og á sínum tíma. Auk þess hentar
ræktarumhverfið ekki öllum og
margir vilja gera æfingarnar heima
hjá sér eða úti. Fitlife er hugarfóstur
Amöndu Marie Ágústsdóttur sem
hefur starfað sem þjálfari í sjö ár
og einkaþjálfari í fjögur ár. „Ég vinn
sem einkaþjálfari hjá World Class og
Fitlife er framlenging á því starfi. Mér
fannst tilvalið að bjóða upp á þessa
þjónustu til þess að geta hjálpað
sem flestum,“ segir Amanda.
Vill alltaf veita topp þjónustu
„Markmið mitt er ávallt að
viðskiptavinurinn nái sínu markmiði
og það er það besta sem ég veit
þegar það gerist. Margir hafa
neikvæðar tilfinningar gagnvart
ræktinni eða hreyfingu en ég vil
hjálpa fólki að mynda heilbrigt
samband við æfingar og mat. Það
er ómetanleg tilfinning að kenna
fólki að njóta þess að hreyfa sig. Ég
varast líka að taka við fleirum en ég
hef tök á, því ég vil alltaf geta boðið
upp á topp þjónustu.“
Amanda er stjörnum prýddur
einkaþjálfari með gífurlega reynslu,
bæði af því að þjálfa sjálf og þjálfa
aðra. Einkaþjálfaranám hjá NASM,
þjálfararéttindi hjá IRONMAN og
fyrsta stig sem þríþrautarþjálfari
hjá International Triathlon Union.
Amdanda hefur alltaf verið í
keppnisíþróttum og í dag keppir
hún í þríþraut. Hvort sem þú vilt
styrkjast, bæta úthald eða lækka
fituprósentuna þá veit Amanda
hvað þarf til að ná árangri.
Fitlife: Snjöll leið til að ná
markmiðunum
Ferlið er sáraeinfalt, enda á það
að vera einfalt og skemmtilegt að
koma sér í form.
„Fitlife byggist á snjallforriti fyrir
iPhone- og Android-síma, þar sem
þú færð sérsniðið prógramm með
æfingaplani og matarplani. Ef þig
vantar aðstoð við æfingarnar,
ráðleggingar eða hvatningu
þá nærðu alltaf í mig í gegnum
skilaboð, hvort sem er í tölvunni eða
símanum.“
1. Þú skráir þig hjá Fitlife og hleður
niður Fitlife-snjallforritinu.
2. Þú svarar spurningalista
og út frá þínum svörum
sníður Amanda persónulegt
æfingaplan fyrir þig. Einnig
færðu sérsniðið matarplan.
3. Þú byrjar að hreyfa þig og
getur fylgst með árangrinum í
snjallforritinu.
Snjallforritið inniheldur myndbönd
sem kenna nákvæmlega hvernig á
að gera hverja æfingu fyrir sig. Þú
skráir niður árangur og framfarir
í appið. Einnig geturðu hlaðið
inn myndum til að fylgjast með
árangrinum. Í forritinu er matarplan
samsett af næringarfræðingi
sem hjálpar þér að halda utan um
mataræðið. Matarplönin eru brotin
upp í „macros“. Hægt að hafa plönin
keto, vegan, vegetarian, holistic,
gluten free, low glycemic, no lactose,
balanced og fleiri útgáfur. Fitlife
mætir þér þar sem þú ert og hentar
þeim markmiðum sem þú vilt setja
þér.
„Einkaþjálfun er alltaf
persónubundin. Hvort sem hún
gerist á staðnum eða í gegnum
símann byggist hún alltaf á
sambandinu við viðskiptavininn og
því að hvetja hann í áttina að sínum
markmiðum,“ segir Amanda. Það er
afar misjafnt hve lengi viðskiptavinir
stoppa hjá Amöndu og Fitlife en
langflestir eiga það sameiginlegt
að hafa náð þeim árangri sem þeir
ætluðu sér. „Þónokkrir hafa verið
hjá mér alveg frá því ég byrjaði
að þjálfa. Einnig koma sumir í 1–3
mánuði rétt til þess að koma sér af
stað í ræktinni eða ná tímabundnum
markmiðum. Margir koma svo
aftur til mín til þess að ná enn betri
árangri.“
Nánari upplýsingar á fitlife.is
Fylgstu með á Facebook: FitLife
Einkaþjálfun – Amanda Marie
Instagram: Amanda m agustsdottir