Mosfellingur - 19.12.2019, Blaðsíða 44
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Haukur Erik fæddist þann 6.
september 2019. Hann var 15 merkur
og 51 cm. Foreldrar hans eru Hrafn
Ingvarsson og Hrefna Óðinsdóttir en
fyrir eiga þau soninn Hjört Inga.
Í eldhúsinu
allir geta
dansað
Ég fékk það frábæra tækifæri að taka
þátt í sjónvarpsþættinum Allir geta
dansað í ár. Ég fékk það skemmtilega
hlutverk að vera einn af tíu fagdönsur
-
um. Þetta er án efa eitt skemmtilegast
a
verkefni sem ég hef tekið mér fyrir
hendur.
Ég gleymi því aldrei þegar ég var að
skoða pýramída í Mexíkó, Chichen
Itza, þegar ég fékk skilaboð frá fyrrum
danskennara mínum Karen Reeve
sem bauð mér að taka þátt í Allir geta
dansað (AGD).
Ég var ekki lengi að segja já við því,
svo leið nákvæmlega heilt ár (upp á
dag) í fyrsta þáttinn! Fyrir ykkur sem
ekki vitið þá er AGD raunveruleika-
þáttur þar sem atvinnudansari kennir
þjóðþekktum Íslendingi að dansa. Svo
er bein útsending vikulega þar sem
parið dansar og sýnir einn samkvæmi
s-
dans. Ég fékk það skemmtilega verkef
ni
að dansa við veitinga- og sjónvarps-
manninn Ólaf Örn Ólafsson.
Ég væri að ljúga ef ég segði að þetta
hafi verið auðvelt. Þetta var mikil og
krefjandi vinna. Sem fagdansari sé ég
um að skapa dansinn, finna lag, þema
og búning. Bara þetta eitt var heilmiki
l
vinna. Ofan á það komu allar æfing-
arnar með Óla, um 3-4 klst á dag. Þrát
t
fyrir að þetta hafi verið afar krefjandi
þá var þetta svo ótrúlega gaman, enda
var ég að dansa, kenna og æfa með
algjörum meistara. Það var mikið hleg
ið
og haft gaman á æfingum. Afrakstur
allrar vinnunnar fékk svo að njóta sín
á
föstudögum, enda voru það uppáhald
s
dagarnir mínir meðan á þessu stóð.
Það skemmtilegasta sem ég geri er að
dansa og performa fyrir fólk svo það v
ar
klárlega hápunktur þáttarins að dansa
á
þessum föstudagskvöldum. Svo má ek
ki
gleyma að nefna að allir þátttakendur
þáttarins voru svo skemmtilegir og
hressir að það var alltaf mega stuð hjá
okkur. Þrátt fyrir að hafa verið fyrst til
að detta út þá er ég svo þakklát, stolt o
g
ánægð með sjálfa mig og Óla.
Þetta var magnað ferðalag sem ég
fékk mikinn lærdóm út úr. Þetta hefur
hjálpað mér að þroskast bæði sem
dansari og einstaklingur og fyrir það e
r
ég afar þakklát. Að lokum vil ég segja
að
það geta allir dansað og það eiga allir
að dansa! Sama hvaða stíl eða gerð af
dansi. Það er svo nauðsynlegt og gott
fyrir líkama, hug og sál og því hvet ég
alla til þess að dansa!
Bryndís og Óli skora á Þórdísi og Dagbjart að deila með okkur næstu uppskrift
Bryndís Böðvarsdóttir
og Ólafur Ragnarsson
deila að þessu sinni
með Mosfellingi upp-
skrift að ljúffengum
sunnudagsskonsum.
Innihald:
• 1 bolli sykur
• 3 egg
• 3 bollar hveiti
(1 heilhveiti
og 2 hveiti)
• 2 tsk lyftiduft
• 2 bollar nýmjólk
• 1 tsk vanilludropar
• 1-2 msk af matarolíu
Aðferð:
Gott að byrja á að hræra saman egg og
sykur. Bæti svo hveiti og lyftidufti saman
við ásamt mjólkinni ( gott að setja hana út
í í áföngum). Að lokum set ég vanilludropa
og smá olíu. Deigið á að vera frekar þykkt.
Síðan eru skonsurnar bakaðar á pönnu í
þeirri stærð sem hentar hverjum og einum.
Skonsurnar eru bestar nýbakaðar með
smjöri. En annars fer það bara eftir smekk
hvers og eins, þær eru líka góðar með
sírópi, osti, sultu og rækjusalati.
Verðiykkuraðgóðu.
marta carrasco
- Heyrst hefur...44
Heyrst Hefur...
...að hægt sé að næla sér í VIP flösku-
borð í áramótaveislunni í Hlégarði
fyrir allt að 700 þúsund krónur.
...að boðið verði til skötuveislu bæði
í Hlégarði og á Blik á Þorlák.
...að blásið verði til hátíðarbingóveislu
á Barion í kvöld og mánudaginn
30. desember.
...að Afturelding og Álafoss hafi leikið
styrktarleik fyrir Mosfellinginn Aron
Sigurvins í gærkvöldi.
...að verið sé að úthluta fjórum síðustu
lóðunum í Súluhöfða.
...að Gunnar Magnússon þjálfari
Hauka í handbolta muni taka við af
Einari Andra sem þjálfari Aftureld-
ingar eftir tímabilið.
...að búið sé að fella niður leigusamn-
ing um lóðina Sólvelli þar sem til
stóð að reisa einkarekinn spítala og
hótel.
...að Marta Carrasco sé dottin út
úr þáttunum Allir geta dansað
en Vilborg Arna sem einnig býr í
Mosfellsbæ sé komin áfram.
...að Aldís Mjöll og handknatt-
leiksmaðurinn Jóhann Birgir
hafi eignast strák.
...að meistaraflokkur karla í fótbolta
standi fyrir firmamóti í Fellinu á milli
hátíðanna.
...að fjórum hnökkum hafi verið stolið
af 92 ára hestamanni í hesthúsa-
hverfinu í Mosó.
...að Litli skiptibókamarkaðurinn verði
haldinn í Bókasafninu 11. janúar.
...að Liverpool hafi gefið áritaðan
bolta til styrktar Aroni Sigurvins sem
fór til hæstbjóðanda í gær.
...að leitin að Mosfellingi ársins 2019
sé hafin og hægt sé að senda inn
tilnefningar á www.mosfellingur.is
...að Matti Matt, Erna Hrönn og Stebbi
Hilmars muni öll taka lagið með
hljómsveit Mosfellingsins Tomma
Tomm á Þorrablóti UMFA 17. janúar.
...að Hreimur Örn og Vignir Snær
ásamt hljómsveit muni halda uppi
stuði í áramótaveislunni í Hlégarði.
...að hægt sé að kaupa Wellington
hátíðarsteikina á Blik og hita svo
upp heima fyrir stóru stundina.
...að Sandra og Hrói hafi eignast
stúlku á dögunum.
...að Mogginn sé búinn að missa
sína tvo bestu Mosfellinga.
...að strákarnir séu aðeins einu stigi
frá toppsæti Olís-deildarinnar nú
þegar liðin fara í langt jólafrí.
...að knattspyrnudeildin ætli að
aðstoða syni Grýlu á aðfangadag.
...Hjössi mæló og Einar Braga hafi
stýrt handboltastelpunum í síðasta
leiknum fyrir jólafrí.
...að íþróttafólk Aftureldingar 2019
verði kynnt í Hlégarði 27. desember.
...að miklar skipulagsbreytingar
standi nú yfir á Heilsugæslunni
sem leggist misvel í starfsfólkið.
mosfellingur@mosfellingur.is
Sunnudags-skonsur
Hjá BryndÍsi og óla
Afturelding hirðir jólatré
í Mosfellsbæ 6.-9. janúar
Meistaraflokkur handknattleiksdeildar
Aftureldingar mun aðstoða íbúa við að
losa sig við jólatré sín eftir jólahátíðina.
Ekið verður um bæinn og jóltré hirt
sem sett hafa verið út fyrir lóðarmörk
frá mánudeginum 6. janúar til fimmtu-
dagsins 9. janúar.
Íbúar geta einnig losað sig við jólatré
á endurvinnslustöð Sorpu við
Blíðubakka án þess að greiða fyrir.
JólAtrén hirt