Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —9 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 1 2 . J a n ú a r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
skoðun Þröstur Ólafsson skrifar
um einhæfni auðlinda og virðis
keðjuna. 14-16
sport Hverjir fara á EM?18
Menning Franska kvikmynda
hátíðin hefst bæði í Reykjavík og
á Akureyri í vikunni. 26-28
lÍfið Glamúr og glæsileiki á
Gullhnettinum. 32-34
plús 2 sérblöð l fólk l bÍlar
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
dóMsMál „Henni finnst að lögregl
an eigi ekki að geta komist upp með
svona án þess að neinn viti af því,“
segir Oddgeir Einarsson, lögmaður
ungrar stúlku sem hefur stefnt
íslenska ríkinu vegna handtöku á
Vesturlandi í ágúst síðastliðnum.
Stúlkan, sem var sextán ára þegar
atvikið átti sér stað, var farþegi í bíl
á leið frá Ólafsvík til Reykjavíkur
ásamt öðrum ungmennum þegar
lögregla stöðvar bílinn. Ungmenn
in voru öll handtekin og færð á lög
reglustöðina á Akranesi.
Stúlkan ber að þegar þangað hafi
verið komið hafi hún verið lokuð
inni í fangaklefa ásamt annarri
stúlku sem jafnframt var undir
lögaldri.
Í klefanum framkvæmdi lög
regluþjónn líkamsleit á stúlkunni
að hinni viðstaddri og var henni
skipað að klæða sig úr öllum fötum.
Stúlkan hlýddi því og stóð nakin í
fangaklefanum.
Því næst var hún beðin að beygja
sig fram og lögregluþjónn skoðaði
kynfæri hennar og rass, án snert
ingar.
Áður en þetta átti sér stað var
hvorki haft samband við foreldra
stúlkunnar, né barnavernd.
Lögmaður stúlkunnar hafði í
kjölfarið samband við lögreglu til
að fá upplýsingar um það hvers
vegna stúlkan mátti þola þessa
meðferð. Þegar óskað var eftir
gögnum málsins kom í ljós að lög
regluskýrsla var ekki skrifuð um
atvikið fyrr en eftir að lögmaður
hafði hringt og spurst fyrir um
málið, eða 22 dögum eftir atvikið.
Í lögregluskýrslunni kemur fram
að nafnlaus ábending hafi borist
lögreglu um að fíkniefni kynnu að
vera í bílnum og að ökumaður væri
undir áhrifum þeirra.
Þá segir að stúlkan hafi ekki verið
beðin um að afklæðast heldur hafi
aðeins verið „kíkt ofan í nærbuxur“
hennar. Stúlkan mótmælir því og
kveðst ekki hafa verið í nærbuxum
þetta kvöld. Engin fíkniefni fundust
í bílnum eða á ungmennunum.
„Við erum að fara í þetta mál því
þetta lá mjög þungt á henni. Hún
verður fyrir andlegu tjóni og vill fá
staðfestingu á því að þetta hafi ekki
verið rétt gert,“ segir Oddgeir.
„En alveg sama þó maður taki
allt sem þeir segja, þá stenst þetta
engan veginn og er alveg út í hött.
Það er umdeilt hvort það hafi verið
kíkt ofan í nærbuxur eða hún látin
afklæðast algjörlega. Hvort fyrir sig
er náttúrulega alls ekki rétt aðferð.“
Engin svör fengust frá lögregl
unni á Vesturlandi vegna málsins.
– snæ
Létu 16 ára stúlku afklæðast
Nafnlaus ábending um fíkniefnavörslu varð til þess að ungmenni voru handtekin á Vesturlandi. Leitað var
innanklæða á 16 ára stúlku. Hvorki var haft samband við foreldra stúlkunnar né barnaverndaryfirvöld.
Það er umdeilt
hvort það hafi verið
kíkt ofan í nærbuxur eða
hún látin afklæðast algjör-
lega.
Oddgeir Einarsson
lögmaður stúlkunnar
Engin fíkniefni fundust
við leit lögreglu.
Búið um brákaðan úlnlið í gær Mikil hálka var í höfuðborginni í gær og leituðu tugir manna á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi vegna hálku-
slysa, margir brotnir, til að mynda á ökkla eða úlnlið. Annir vegna hálkuslysanna voru slíkar að ekki var ráðrúm til að taka saman hversu margir
hefðu leitað á sjúkrahúsið vegna þeirra. Í tilkynningu sem Landspítalinn sendi frá sér í gær er brýnt fyrir fólki að fara varlega. Fréttablaðið/Ernir