Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 12
Spennandi námskeið um efni Biblíunnar byrjar fimmtudaginn 14. janúar kl. 20, og verður á sama tíma alla fimmtudaga í Boðunarkirkjunni, Álfaskeiði 115, Hafnarfirði. Húsið opnar kl. 19 og verður boðið upp á súpu og brauð. Fyrirlesari verður Steinþór Þórðarson sem í áratugi hefur leiðbeint fólki að kynnast efni Biblíunnar. Fólki er boðið að spyrja og spjalla um einstök atriði er varða Biblíuna og boðskap hennar. Sérstök áhersla verður lögð á efni Opinberunarbókarinnar, sem boðar örlagaríka viðburði nútímans. Þetta verða athyglisverðar stundir sem allir hafa gagn og blessun af. Biblíutextar og myndskýringar verða birtar með Powerpoint á veggnum, svo að allir geti fylgst vel með. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis. Húðsjúkdómar Gísli Ingvarsson húðsjúkdóma- læknir hefur opna móttöku á sama stað og áður í Lækningu Lágmúla 5 Símapantanir: 590 9200 kl 09 - 16 alla virka daga Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Hitablásarar Rafmagnshitablásari 2Kw 1 fasa 6.890 Rafmagnshita- blásari 5Kw 3 fasa 12.830 Rafmagnshita- blásari 2Kw 1.990 Rafmagnshitablásari 15Kw 3 fasa 29.990 Rafmagnshitablásari 9Kw 3 fasa 17.990 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Rafmagnshitablásari 3Kw 1 fasa 8.890 7.112 20% afsláttur heilbrigðismál „Þetta hringir ákveðnum viðvörunarbjöllum, og maður veit að þetta er til staðar. En það er fylgst vel með þessu hér og hvort lyfin eru að virka,“ segir Þór- ólfur Guðnason sóttvarnalæknir, spurður um þær fréttir frá Bretlandi og Bandaríkjunum að fjölónæmur lekandi sé þar kominn til að vera og tilfellum fjölgi ár frá ári. Landlæknir Bretlands mun hafa ritað læknum og lyfsölum bréf vegna þessa skömmu fyrir áramót, en samkvæmt frétt stórblaðsins Guardian um málið hvetur hann menn til að vera á varðbergi og gæta þess að meðhöndlun sjúk- dómsins sé í samræmi við hvað er að eiga á hverjum tíma. Vanda- mál vegna ofnotkunar sýklalyfja er flestum kunn, en hérlendis hefur fjölónæmur lekandi ekki greinst til þessa. Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin hefur hins vegar greint frá því að tilfelli hafi einnig komið upp í Noregi, Svíþjóð, Ástralíu og Frakklandi. Í umfjöllun Guardian er haft eftir landlækni Breta að hætt sé við að viss afbrigði lekanda geti orðið ill- eða óviðráðanlegur sjúk- dómur. Þórólfur segir alltaf spurningu um hvort og þá hvenær svona baktería skýtur upp kollinum hér- lendis. „Það veit maður ekkert um en svona bakteríur, svona almennt séð, virða ekki landamæri ríkja. En á meðan þetta kemur ekki upp hér breytum við ekki okkar aðferða- fræði.“ Baldur Tumi Baldursson, yfir- læknir á húð- og kynsjúkdóma- deild Landspítala, segir að lekandi hafi verið fátíður síðustu áratugina á Íslandi sem og sárasótt (sýfilis). Sýklalyfjameðferð sem notuð er á kynsjúkdómadeild Landspítala sé í samræmi við evrópskar leið- beiningar. Baldur Tumi segir að sárasótt hafi tekið stórt stökk upp á við 2014 og 2015 en virðist í rénun. Klamidía greinist í enn hærra hlutfalli af sjúklingum á kynsjúkdómadeild en áður og sé enn sem fyrr í sérflokki hvað varðar fjölda greindra tilfella. Hann segir að það virðist nánast öruggt að ef einstaklingur stundar óvarið kynlíf og skiptir oft um ból- félaga þá fær hún eða hann klami- díu. Ef viðkomandi notar smokk er hún eða hann hins vegar örugg um að fá ekki þessa sjúkdóma. „Ég mundi ráðleggja fólki að kaupa sér smokkapakka um leið og það setur Tinder í símann. Hver vill verða fyrstur á Íslandi að fá fjölónæman lekanda?“ segir Baldur Tumi. svavar@frettabladid.is Ótti ástæðulaus en rétt að vera á verði Tilfellum lekanda sem svarar illa hefðbundinni sýklalyfjameðferð fer fjölgandi beggja vegna Atlantsála. Fleiri lönd greina frá því sama. Vandans hefur ekki orðið vart á Íslandi en tilfellum kynsjúkdóma fer fjölgandi. Bakteríur, svona almennt séð, virða ekki landamæri ríkja. En á meðan þetta kemur ekki upp hér breytum við ekki okkar aðferðafræði. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir Ég mundi ráðleggja fólki að kaupa sér smokkapakka um leið og það setur Tinder í símann. Baldur Tumi Baldursson, yfir- læknir á LSH Smokkurinn er í dag, sem áður, skilvirkasta leiðin til að verjast lekanda og fleiri kynsjúkdómum. fréttablaðið/Heiða Viðskipti Árið 2015 fjárfestu þrír nýir vaxtarsjóðir, Eyrir Sprotar, Frumtak 2 og Brunnur, fyrir rúm- lega þrjá milljarða í fjórtán verk- efnum. Fjárfestingargeta þeirra nemur ellefu milljörðum króna og hafa sjóðirnir nokkur ár í viðbót til að fjárfesta. Frumtak 2 fjárfesti í fjórum verk- efnum, Arctic Trucks, Controlant, Activity Stream og Appollo X fyrir milljarð króna. Eyrir Sprotar fjár- festi í átta verkefnum, þeirra á meðal InfoMentor, ReMake og Saga Medica, auk þess að skuld- binda sig til fjárfestinga í tveimur verkefnum til viðbótar samkvæmt upplýsingum frá Erni Valdimars- syni, framkvæmdastjóra sjóðsins. Í árslok 2015 námu fjárfestingar Eyris Sprota alls um 1,7 millörðum króna auk veittra skuldbindinga upp á um 445 milljónir króna. Heildarstærð Eyris Sprota er 3,5 milljarðar króna. Brunnur fjárfesti í ARK Techno- logy og ATM Select fyrir 430 millj- ónir króna. Heildarstærð sjóðsins er fjórir milljarðar, en það er allt- af haldið eftir að minnsta kosti helmingi fjármagnsins til að fylgja eftir verkefnum, að sögn Sigurðar Arnljótssonar fjárfestingastjóra. Sjóðurinn fjárfestir sérstaklega í fyrirtækjum sem eru að selja vöru eða þjónustu á erlenda markaði. Til stendur hjá sjóðunum að fjár- festa í fleiri fyrirtækjum á nýju ári. – sg Vaxtarsjóðir fjárfestu fyrir rúmlega þrjá milljarða króna árið 2015 Örn Valdimarsson, framkvæmdastjóri eyris Sprota Í árslok 2015 námu fjárfestingar Eyris Sprota alls um 1,7 milljörðum króna auk veittra skuldbindinga upp á um 445 milljónir króna. Vaxtarsjóðir Eyris hafa fjárfestingargetu upp á ellefu milljarða króna. sjáVarútVegur Aflaverðmæti skipa Síldarvinnslunnar og dótturfélaga hennar jókst um 23,8 prósent á milli áranna 2014 og 2015 en aflinn jókst um 35 prósent í tonnum talið og ræður þar aflaaukning uppsjávar- skipa langmestu, segir í tilkynningu. Heildaraflaverðmætið var 8.523 milljónir króna á árinu 2014 en 10.548 milljónir króna á árinu 2015. Dótturfélög Síldarvinnslunnar eru Gullberg á Seyðisfirði sem gerir út togarann Gullver NS og Bergur-Hug- inn í Vestmannaeyjum sem gerir út togarana Bergey VE og Vestmanna- ey VE. – sg Aflaverðmætið jókst um 24% hjá Síldarvinnslunni aflinn jókst um 35 prósent í tonnum talið hjá Síldarvinnslunni. Alvarlegur sjúkdómur Hvað er lekandi? Lekandi er kynsjúkdómur sem stafar af bakteríunni Neisseria gonorr hoeae, en bakterían tekur sér bólfestu í kynfærum, þvagrás, endaþarmi eða hálsi. Hvernig smitast lekandi? Smit á sér stað við samfarir. Smitun getur einnig átt sér stað við enda- þarms- og munnmök. Hvernig get ég komið í veg fyrir smit? Smokkurinn er eina vörnin gegn smiti. er lekandi hættulegur? Lekandi er alvarlegur sjúkdómur því hann getur valdið ófrjósemi eins og klamidía. Þetta á bæði við um konur og karla. Lekandi getur einnig valdið sýkingu og bólgu í liðum, augnsýk- ingum og í verstu tilvikum sýkingu í eggjaleiðurum og kviðarholi. er til meðferð við lekanda? Notuð eru sýklalyf við lekanda. Margir stofnar lekandabakt- eríunnar eru ónæmir gegn ýmsum sýklalyfjum. Þess vegna er nauð- synlegt að taka sýni til ræktunar til að kanna næmi bakteríunnar fyrir sýklalyfjum svo hægt sé að tryggja að rétt sýklalyf hafi verið valið. f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 12Þ r i ð j u D a g u r 1 2 . j a n ú a r 2 0 1 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.