Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 20
Fólk| heilsa
Fólk er kynningarblað sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauks-
dóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.
is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Undanfarnir mánuðir hafa varið annasamir í lífi Katr-ínar Tönju Davíðsdóttur,
heimsmeistara í CrossFit. Fram
undan er undirbúningur fyrir
næstu Heimsleika sem haldnir
verða í sumar og auðvitað er
markmið hennar aðeins eitt; að
standa aftur uppi sem sigurvegari.
Eftir stutt frí erlendis yfir
jólahátíðina er alvaran tekin við
á nýju ári hjá Katrínu Tönju. „Ég
mun fljótlega halda til Banda-
ríkjanna þar sem ég mun dvelja
við æfingar hjá þjálfara mínum.
Fyrsta mót ársins verður svo í
lok mánaðarins og þá sé ég betur
hvar ég stend áður en tímabilið
sjálft fer á flug.“ Næst á dagskrá er
ferðalag til Bahamaeyja á vegum
Reebok þar sem æfingahópurinn
er hristur saman auk þess sem
nýjar línur Reebok eru kynntar
fyrir þeim. „Við fórum í sambæri-
lega ferð í fyrra sem var hrikalega
skemmtileg. Það er líka svo gott
að fá smá sól inn í lífið fyrir vetur-
inn sem fram undan.“
Í byrjun febrúar er förinni
heitið til Kanada þar sem hún
mun eyða tíma í æfingabúðum
ásamt þjálfurum sínum og þremur
öðrum íþróttamönnum. „Í lok
febrúar verður undankeppnin
fyrir Evrópu leikana en þeir eru
síðan undankeppni fyrir Heims-
leikana sem haldnir verða í Kali-
forníu í júlí. Öll markmið mín og
æfingaprógrömm snúa að því
að toppa í lok júlí þar sem ég vil
mæta til leiks á Heimsleikana,
vitandi að undirbúningurinn
hefði ekki getað gengið betur. Á
byrjunarlínunni vil ég vita það og
trúa því að ég sé besta útgáfan
af sjálfri mér sem íþróttamanni,
bæði líkamlega og andlega.“
kolFéll Fyrir íþróttinni
Katrín hefur nú stundað CrossFit í
rúmlega fjögur ár. „Ég æfði fimleika
í tíu ár en hætti sextán ára gömul
og hóf þegar í stað að leita að nýrri
íþrótt. Eftir að hafa prófað frjálsar
íþróttir um tíma sá ég frétt sum-
arið 2011 um sigur Annie Mistar
á heimsleikunum í CrossFit. Ég sá
strax að þetta var eitthvað sem
gæti höfðað til mín og kolféll fyrir
þessu.“
Fyrsta árið æfði Katrín Boot-
Camp þrisvar í viku & CrossFit
fjórum sinnum í viku en svo átti
CrossFit hug hennar allan. „Ég varð
fljótt góð í CrossFit og þetta átti vel
við mig. Ég bætti mig hratt og ég
var ekki búin að stunda íþróttina
í margar vikur þegar ég setti mér
markmið um að komast á Evrópu-
leikana ári síðar. Nokkrum mán-
uðum síðar breyttist markmiðið
í að komast á Heimsleikana sem
gekk eftir.“
Dæmigerður mánuður hjá Katr-
ínu samanstendur af þremur stífum
samfelldum æfingavikum og í kjöl-
farið tekur við ein létt vika
til að leyfa líkamanum að
jafna sig. „Í venjulegri
viku eru fimm stífir
æfingadagar. Þá tek ég
morgunæfingu sem er
yfirleitt styrktaræfing
og svo einhvers konar
tækni sem ég þarf að
vinna í, t.d. kaðlar og
dauðar handstöðuarm-
beygjur. Seinni æfing
dagsins er svo meira „condition-
ing“ æfing en þá tek ég nokkrar
æfingar, bæði lengri til að æfa þolið
og styttri fyrir snerpu. Þá tek ég
bara eina létta æfingu á fimmtu-
dögum og á sunnudögum hvíli ég
alveg. Auk þess tek ég 1-2 hlaupa-
æfingar í viku og eina sundæfingu.“
MatUr og slökUn skipta Máli
Mataræðið skiptir einnig mjög
miklu máli að sögn Katrínar. „Ég er
rosalega vanaföst þegar kemur að
mat og borða það sem lætur mér
líða vel. Í morgunmat borða ég
fjögur egg, hálft avokadó, papriku,
stórt vatnsglas og kaffi. Hádegis-
matinn borða ég eftir fyrstu æfingu
en það er yfirleitt túnfisk- eða
kjúklingasalat með dökkgrænu
grænmeti. Eftir seinni æfinguna
fæ ég mér ávöxt og próteinsjeik.
Kvöldmaturinn samanstendur oft
af fiski eða kjúklingi með sætum
kartöflum og grænmeti.“
Svefn og slökun eru ekki síður
mikilvægir þættir og hugar Katrín
vel að þeim. „Það skiptir miklu
máli upp á að líkaminn nái að
jafna sig vel. Ég sef alltaf a.m.k.
átta klukkutíma á hverri nóttu
og slaka á milli og eftir æfingar
með því að fara í heitan og
kaldan pott auk þess að
nota ýmis tæki til að losa
mjólkursýru úr vöðv-
unum. Einnig má nefna
að ég les mjög mikið af
íþróttasálfræðibókum og
ævisögum íþróttamanna.
Þær halda hausnum á
beinu brautinni og eru
mjög hvetjandi.“
n starri@365.is
besta útgáFan
aF sjálFri sér
steFnir á sigUr Miklar annir eru fram undan hjá Katrínu Tönju Davíðs
dóttur, heimsmeistara í CrossFit. Heimsleikarnir verða haldnir í sumar.
á toppinn „Ég varð fljótt góð í CrossFit og þetta átti vel við mig. Ég bætti mig hratt og ég var ekki búin að stunda íþróttina í margar
vikur þegar ég setti mér markmið um að komast á Evrópuleikana,“ segir katrín Tanja Davíðsdóttir, heimsmeistari í CrossFit. MYND/GVA
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-15
Verð nú: Verð áður:
Peysa 6.500 kr. 12.900 kr.
Buxur 3.900 kr. 8.900 kr.
Pils 4.900 kr. 7.900 kr.
Peysuslá 3.900 kr. 6.900 kr.
Toppur 5.900 kr. 8.900 kr.
Peysa 5.900 kr. 9.900 kr.
Poncho 2.900 kr. 5.900 kr.
Útsala
20 – 50% afsláttur
Verðdæmi:
Útsala!
365.is | Sími 1817
GRÍN, HASAR
OG RÓMANTÍK
Á BÍÓSTÖÐINNI
Bíóstöðin er hluti af Skemmtipakkanum þar
sem boðið er upp á kvikmyndir allan sólarhringinn.
BÍÓSTÖÐINER Í SKEMMTI-PAKKANUM