Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 20
Fólk| heilsa Fólk er kynningarblað sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauks- dóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365. is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Undanfarnir mánuðir hafa varið annasamir í lífi Katr-ínar Tönju Davíðsdóttur, heimsmeistara í CrossFit. Fram undan er undirbúningur fyrir næstu Heimsleika sem haldnir verða í sumar og auðvitað er markmið hennar aðeins eitt; að standa aftur uppi sem sigurvegari. Eftir stutt frí erlendis yfir jólahátíðina er alvaran tekin við á nýju ári hjá Katrínu Tönju. „Ég mun fljótlega halda til Banda- ríkjanna þar sem ég mun dvelja við æfingar hjá þjálfara mínum. Fyrsta mót ársins verður svo í lok mánaðarins og þá sé ég betur hvar ég stend áður en tímabilið sjálft fer á flug.“ Næst á dagskrá er ferðalag til Bahamaeyja á vegum Reebok þar sem æfingahópurinn er hristur saman auk þess sem nýjar línur Reebok eru kynntar fyrir þeim. „Við fórum í sambæri- lega ferð í fyrra sem var hrikalega skemmtileg. Það er líka svo gott að fá smá sól inn í lífið fyrir vetur- inn sem fram undan.“ Í byrjun febrúar er förinni heitið til Kanada þar sem hún mun eyða tíma í æfingabúðum ásamt þjálfurum sínum og þremur öðrum íþróttamönnum. „Í lok febrúar verður undankeppnin fyrir Evrópu leikana en þeir eru síðan undankeppni fyrir Heims- leikana sem haldnir verða í Kali- forníu í júlí. Öll markmið mín og æfingaprógrömm snúa að því að toppa í lok júlí þar sem ég vil mæta til leiks á Heimsleikana, vitandi að undirbúningurinn hefði ekki getað gengið betur. Á byrjunarlínunni vil ég vita það og trúa því að ég sé besta útgáfan af sjálfri mér sem íþróttamanni, bæði líkamlega og andlega.“ kolFéll Fyrir íþróttinni Katrín hefur nú stundað CrossFit í rúmlega fjögur ár. „Ég æfði fimleika í tíu ár en hætti sextán ára gömul og hóf þegar í stað að leita að nýrri íþrótt. Eftir að hafa prófað frjálsar íþróttir um tíma sá ég frétt sum- arið 2011 um sigur Annie Mistar á heimsleikunum í CrossFit. Ég sá strax að þetta var eitthvað sem gæti höfðað til mín og kolféll fyrir þessu.“ Fyrsta árið æfði Katrín Boot- Camp þrisvar í viku & CrossFit fjórum sinnum í viku en svo átti CrossFit hug hennar allan. „Ég varð fljótt góð í CrossFit og þetta átti vel við mig. Ég bætti mig hratt og ég var ekki búin að stunda íþróttina í margar vikur þegar ég setti mér markmið um að komast á Evrópu- leikana ári síðar. Nokkrum mán- uðum síðar breyttist markmiðið í að komast á Heimsleikana sem gekk eftir.“ Dæmigerður mánuður hjá Katr- ínu samanstendur af þremur stífum samfelldum æfingavikum og í kjöl- farið tekur við ein létt vika til að leyfa líkamanum að jafna sig. „Í venjulegri viku eru fimm stífir æfingadagar. Þá tek ég morgunæfingu sem er yfirleitt styrktaræfing og svo einhvers konar tækni sem ég þarf að vinna í, t.d. kaðlar og dauðar handstöðuarm- beygjur. Seinni æfing dagsins er svo meira „condition- ing“ æfing en þá tek ég nokkrar æfingar, bæði lengri til að æfa þolið og styttri fyrir snerpu. Þá tek ég bara eina létta æfingu á fimmtu- dögum og á sunnudögum hvíli ég alveg. Auk þess tek ég 1-2 hlaupa- æfingar í viku og eina sundæfingu.“ MatUr og slökUn skipta Máli Mataræðið skiptir einnig mjög miklu máli að sögn Katrínar. „Ég er rosalega vanaföst þegar kemur að mat og borða það sem lætur mér líða vel. Í morgunmat borða ég fjögur egg, hálft avokadó, papriku, stórt vatnsglas og kaffi. Hádegis- matinn borða ég eftir fyrstu æfingu en það er yfirleitt túnfisk- eða kjúklingasalat með dökkgrænu grænmeti. Eftir seinni æfinguna fæ ég mér ávöxt og próteinsjeik. Kvöldmaturinn samanstendur oft af fiski eða kjúklingi með sætum kartöflum og grænmeti.“ Svefn og slökun eru ekki síður mikilvægir þættir og hugar Katrín vel að þeim. „Það skiptir miklu máli upp á að líkaminn nái að jafna sig vel. Ég sef alltaf a.m.k. átta klukkutíma á hverri nóttu og slaka á milli og eftir æfingar með því að fara í heitan og kaldan pott auk þess að nota ýmis tæki til að losa mjólkursýru úr vöðv- unum. Einnig má nefna að ég les mjög mikið af íþróttasálfræðibókum og ævisögum íþróttamanna. Þær halda hausnum á beinu brautinni og eru mjög hvetjandi.“ n starri@365.is besta útgáFan aF sjálFri sér steFnir á sigUr Miklar annir eru fram undan hjá Katrínu Tönju Davíðs­ dóttur, heimsmeistara í CrossFit. Heimsleikarnir verða haldnir í sumar. á toppinn „Ég varð fljótt góð í CrossFit og þetta átti vel við mig. Ég bætti mig hratt og ég var ekki búin að stunda íþróttina í margar vikur þegar ég setti mér markmið um að komast á Evrópuleikana,“ segir katrín Tanja Davíðsdóttir, heimsmeistari í CrossFit. MYND/GVA Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl . 11–18 Opið laugardaga k l. 11-15 Verð nú: Verð áður: Peysa 6.500 kr. 12.900 kr. Buxur 3.900 kr. 8.900 kr. Pils 4.900 kr. 7.900 kr. Peysuslá 3.900 kr. 6.900 kr. Toppur 5.900 kr. 8.900 kr. Peysa 5.900 kr. 9.900 kr. Poncho 2.900 kr. 5.900 kr. Útsala 20 – 50% afsláttur Verðdæmi: Útsala! 365.is | Sími 1817 GRÍN, HASAR OG RÓMANTÍK Á BÍÓSTÖÐINNI Bíóstöðin er hluti af Skemmtipakkanum þar sem boðið er upp á kvikmyndir allan sólarhringinn. BÍÓSTÖÐINER Í SKEMMTI-PAKKANUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.