Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 46
 Það vita kannski allir Íslendingar en myndir sólveigar eru mjög vel Þekktar Í Frakklandi og hún var alla tÍð mjög áberandi Í Frönsku kvikmyndalÍFi sem og Íslensku. Höfundakvöld í Norræna húsinu 12. janúar kl. 19:30 Veitingastaðurinn Aalto bistro selur veitingar fyrir viðburðinn og í hléi. Sænski verðlaunahöfundurinn Kristina Sandberg kemur fram á höfundakvöldi í Norræna húsinu 12. Janúar kl. 19:30. Sandberg er þekktust fyrir þríleikinn um um heimavinnandi húsmóðurina Maj. Fyrir síðustu bókina í þríleiknum, Liv till varje pris, hlaut Kristina Sandberg virtustu bókmenntaverðlaun Svía árið 2014, Augustpriset. Tinna Ásgeirsdóttur stýrir umræðum. Samtalið fer fram á skandinavísku. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Sturlugata 5, 101 Reykjavík Tel: 5517030, www.nordichouse.is 1. mars Åsne Seierstad (NO) 5. apríl Susanna Alakoski (SE) 3. maí tilkynnt síðar Höfundakvöld Norræna hússins 2016 12. janúar Kristina Sandberg (SE) 2. febrúar Gaute Heivoll (NO) Franska kvikmyndahátíðin hefst næstkomandi fimmtu-dag og er það í sextánda sinn sem hátíðin er haldin. Hátíðin er samstarfsverkefni franska sendiráðsins, Græna ljóssins og Alliance française í Reykjavík. Guð- rún Sæmundsen, menningar- og vís- indafulltrúi franska sendiráðsins, segir að það sé ánægjulegt að hátíðin fari nú í annað sinn fram bæði hér í Reykjavík og á Akureyri. „Hátíðin verður dagana 15. til 27. janúar í Háskólabíói í Reykjavík og þann 17. til 24. janúar í Borgarbíói á Akureyri. Það var látið á þetta reyna í fyrsta sinn í fyrra að vera líka fyrir norðan og það gekk svo ljómandi vel að það var ákveðið að halda því áfram sem er mjög gleðilegt. Hátíðin er í raun orðin fyrsti stóri menningarvið- burður ársins enda orðin mjög stór. Við búumst við í kringum tíu þúsund gestum, sem er svipað og var í fyrra, enda er þetta annar stærsti kvik- myndaviðburður ársins á eftir RIFF.“ Guðrún segir að hvatinn á bak við að standa að þessari stóru kvik- myndahátíð á hverju ári sé fyrst og fremst að ýta undir menningarlega tengingu á milli landanna tveggja. „Við hjá sendiráðinu sinnum vissulega ýmsum viðburðum á hverju ári og þar á meðal menningarlegum en Frakk- land er mikið kvikmyndaland og hefur löngum verið. Ég held að ég sé að fara rétt með að franskur kvikmyndaiðn- aður sé sá þriðji stærsti í heiminum á eftir Indlandi og Bandaríkjunum. Til- gangurinn er því einfaldlega að kynna fyrir Íslendingum franskar og frönsku- mælandi kvikmyndir. Það verður þarna t.d. ein kvikmynd frá Kanada og önnur frá Frönsku Márítaníu. Það er mikið framleitt af kvik- myndum í Frakklandi og það er mikið framleitt af virkilega góðum myndum. Frakkar gera kröfu um gæði og setja markið hátt enda gríðarleg kvikmynda- hefð í Frakklandi eins og flestir kvik- myndaunnendur þekkja. Opnunarmyndin í ár er gaman- myndin Út og suður, en tveir af leik- urum myndarinnar verða viðstaddir opnun hátíðarinnar. Þessi mynd var Heiðursverðlaunin kennd við Sólveigu Anspach sextánda Franska kvikmyndahátíðin hefst núna í vikunni, bæði í reykjavík og á akureyri, og þar verða sýndar tíu af þeim fjölmörgu gæðamyndum sem Frakkland og frönsk málsvæði hafa að bjóða. Drottningin í Montreuil Leikstjóri: Sólveig Anspach Sumarið er komið og Agathe komin heim til Montreuil í Frakklandi. Hún er leikstjóri og verður aftur að fara að vinna en hún þarf líka að syrgja eiginmann sinn sem dó sviplega. Sjálfsagt myndi henni farnast betur ef hún hætti að drösla duftkerinu með sér og fyndi út hvernig ætti að ráðstafa því. Óvænt birtast hjá henni tveir Íslendingar, sæljón og nágranni, sem hún hefur girnst en aldrei klófest, og gefa henni kraft til að ná áttum í lífinu. Myndin er lokamynd hátíðarinnar í ár. Minningar Leikstjóri: Jean-Paul Rouve Romain er 23 ára og starfar sem öryggisvörður á hóteli en dreymir um að verða rithöfundur. Faðir hans er 62 ára, á leiðinni á eftirlaun og lætur sem sér standi á sama. Meðleigjandi Romains er 24 ára og hjá honum kemst bara eitt að: að komast yfir stelpur, sama hverjar og með hvaða ráðum. Amma Romains er 85 ára. Hún er á öldrunarheimili og botnar ekkert í hvað hún er að gera með öllum þessum öldungum. Einn daginn kemur faðir Romains í áfalli til hans. Amman er horfin. Hún hefur strokið af öldrunarheimilinu. Romain leitar að henni, einhvers staðar í minningum hennar. Timbúktú Leikstjóri: Abderrahmane Sissako Kidane Mene lifir nægjusömu lífi ásamt Satimu eigin- konu sinni, Toyu dóttur þeirra, og Issan, 12 ára smala- dreng, á söndunum skammt frá borginni Timbúktú, sem er á valdi strangtrúarmanna. Myndin hlaut sjö verðlaun á Césars-verðlaunahátíð- inni í Frakklandi síðastliðið vor, þar á meðal sem besta myndin og fyrir bestu leikstjórn. Hún hlaut verðlaun á Cannes-kvikmyndahátíðinni 2014 og var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin. Út og suður Leikstjórar: Nicolas Benamou, Philippe Lacheau Út og suður segir frá Sonju sem ætlar að kynna kærastann fyrir föður sínum, en hann rekur umhverfisvænt hótel í Brasilíu. Allur vinahópurinn slæst í förina með þeim til að eiga draumafrí á suðrænum slóðum. Einn morguninn fara vinirnir í skoðunarferð í Amazonskóginum með ömmu Sonju, skassinu henni Yolöndu. Daginn eftir finnst hvorki tangur né tetur af þeim nema ein lítil tökuvél. Sonja og faðir hennar líta á upptökurnar til að reyna að fá botn í málið. Opnunarmynd hátíðarinnar var frumsýnd í Frakklandi 2. desember síðastliðinn og hefur notið mikilla vinsælda. Fjórar af myndunum á frönsku kvikmyndahátíðinni fumsýnd 2. desember í París og þegar hafa hátt í þrjár milljónir manna séð hana þar og við mælum klárlega með henni. Svo hefur myndin Timbúktú einnig mikið aðdráttarafl en hún vann til sjö César-verðlauna í Frakklandi og var tilnefnd til Óskarsverðlauna og svo er það kanadíska myndin Felix og Meira svo eitthvað sé nefnt af þeim fjölda gæðamynda sem verða á hátíð- inni í ár. En í ár verður reyndar minning Sól- veigar Anspach heiðruð sérstaklega, en það er mikill missir að Sólveigu sem féll frá í ágúst á síðasta ári. Lokamynd hátíðarinnar í ár verður því Drottning- in í Montreuil eftir Sólveigu og Clara Anspach dóttir hennar er væntanleg til landsins og verður viðstödd sýning- una á mynd móður sinnar. Það sem við munum svo kynna nánar á hátíðinni er að við ætlum frá og með næsta ári að vera með heiðursverðlaun fyrir bestu mynd hátíðarinnar og þessi verðlaun verða kennd við Sólveigu henni til heiðurs. Það vita kannski allir Íslend- ingar en myndir Sólveigar eru mjög vel þekktar í Frakklandi og hún var alla tíð mjög áberandi í frönsku kvikmyndalífi sem og íslensku.“ Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 1 2 . j a n Ú a r 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D a G U r26 M e n n I n G ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.