Fréttablaðið - 12.01.2016, Síða 4

Fréttablaðið - 12.01.2016, Síða 4
Náðu lengra með Tækniþróunarsjóði tths.is Tækniþróunarsjóður NEYTENDUR „Það eru engin paraben­ efni í vörum frá L’Occitane. Það er hins vegar rétt að örfáar vörur frá L’Occit­ ane innihalda PHMB­efnið sem var flokkað í Evrópu þann 1. janúar 2015 sem Carcinogenic 2, það er efni sem gæti hugsanlega leitt til krabbameins í fólki. Í þeirri vöru frá okkur sem inniheldur mest magn þessa efnis er samt þrisvar sinnum minna magn en leyfilegt viðmiðunarmagn,“ segir Sig­ rún Ásgeirsdóttir, rekstrarstjóri hjá L’Occitane. Stjórn félags lyfsala í Danmörku hvetur öll apótek í landinu til að fjar­ lægja strax úr hillum snyrtivörur sem innihalda PHMB­rotvarnarefnið. Það tilheyrir ekki bönnuðum parabenum eins og skilja mátti af frétt Fréttablaðs­ ins sl. laugardag. Sigrún segir að innihaldsefni með fyrrgreindri flokkun séu leyfð í snyrtivörum hafi þau fengið jákvætt álit hjá vísindanefnd­ inni SCCS, Scientific Committee on Consumer Safety. „Samkvæmt síðasta áliti hennar má magn PHMB ekki vera yfir 0,3 pró­ sentum af innihaldinu. Töluvert minna magn er notað af þessu efni í vörunum frá L’Occitane. Fyrir­ tækið bætir ekki sjálft þessu efni í formúlurnar, heldur er það til staðar í hrávöru sem notuð er í þær.“ Að sögn Sigrúnar bíður snyrtivöruiðnaðurinn eftir nýju áliti frá SCCS varðandi inni­ haldsmagn. Gunnlaug H. Einarsdóttir, sviðs­ stjóri hjá Umhverfisstofnun, segir magn PHMB undir 0,3 pró­ sentum leyfilegt á Íslandi. „Þetta efni er leyft í magni upp að 0,3 pró­ sentum samkvæmt okkar túlkun. Við höfum ekki túlkað það þannig að það sé bannað, eins og Danir hafa gert samkvæmt greininni í Politiken.“ – ibs Bannað efni undir viðmiðunarmörkum PHMB er leyfilegt í snyrtivörum hér á landi sé magnið undir 0,3 prósentum af innihaldinu. NORDICPHOTOS/GETTY Í þeirri vöru frá okkur sem inni- heldur mest magn þessa efnis er samt þrisvar sinnum minna magn en leyfilegt viðmiðunarmagn. Sigrún Árnadóttir, rekstrarstjóri hjá L’Occitane viðskipTi Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, telur að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftir­ litsins, hafi, án nokkurra raka, vænt N1 um ólögmæta viðskiptahætti í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær. Málið varðar tvö útboð á elds­ neyti til allmargra útgerðarfyrir­ tækja og smábátaútgerða í fyrra – en samtals voru boðin út 27.500 tonn af eldsneyti. N1 tók ekki þátt í öðru útboðinu, sem Landssam­ band smábátaeigenda stóð fyrir í lok árs. Um það sagði Páll Gunnar í frétt­ inni: „Í ljósi þeirrar niðurstöðu skýrsl­ unnar að samkeppni sé virkust í stærri viðskiptum kemur það Sam­ keppniseftirlitinu verulega á óvart að aðeins eitt af stóru olíufélög­ unum hafi sóst eftir viðskiptum sem eru nokkuð umfangsmikil. Hafi átt sér stað einhver samskipti, milli olíufélaganna sem ekki buðu, sem með beinum eða óbeinum hætti varða umrætt útboð væri um alvarlegt mál að ræða. Sam­ keppniseftirlitið hefur hins vegar engar upplýsingar um að svo hafi verið,“ sagði Páll Gunnar. Í erindi sem Eggert Þór Krist­ ófersson, forstjóri N1, sendi blað­ inu í gær segir: „Vegna ummæla forstjóra Sam­ keppniseftirlitsins á forsíðu Frétta­ blaðsins í dag [mánudag] vill N1 taka eftirfarandi fram: N1 áskilur sér rétt til að taka eigin ákvarð­ anir í málum sem varða viðskipti og rekstur félagsins. Félagið tók einfaldlega ákvörðun um að taka ekki þátt í umræddu útboði, og byggði þá niðurstöðu á sínum for­ sendum, sinni viðskiptastefnu sem félagið gerði grein fyrir skriflega til útboðsgjafa,“ segir í erindi Eggerts Þórs. Öllum sé að sjálfsögðu frjálst að hafa sína skoðun á því hvort sú ákvörðun hafi verið rétt eða ekki. „N1 harmar hins vegar að forstjóri Samkeppniseftirlitsins sjái ástæðu til að væna félagið opinberlega um ólögmæta viðskiptahætti fyrir vikið. Það er bæði órökstutt, og ósanngjarnt.“ – shá Forstjóri N1 harmar ummæli forstjóra Samkeppniseftirlitsins N1 harmar hins vegar að forstjóri Samkeppniseftirlitsins sjái ástæðu til að væna félagið opinberlega um ólögmæta viðskipta- hætti fyrir vikið. Eggert Þór Kristófersson forstjóri N1 viðskipTi Á síðasta ári voru 1.360 hross flutt út frá Íslandi. Um er að ræða mesta fjölda útfluttra hrossa um árabil. Þ o r v a l d u r K r i s t j á n s s o n , ábyrgðar maður hrossaræktar hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, segir batamerki að markaðir séu að glæðast en betur megi ef duga skuli. „Hrossabændur þurfa að selja fleiri hross. Markaðir erlendis þurfa að taka enn betur við sér til að hrossabændur séu ánægðir með stöðuna. Hins vegar er gott að markaðir séu að glæðast og þetta stefnir í rétta átt,“ segir Þorvaldur. „Markaðir erlendis fyrir íslenska hestinn eru tiltölulega afmark­ aðir um nokkur svæði. Einnig eru aðeins ákveðnar hestgerðir að seljast, sem eru vel tamin keppnis­ hross. Gallinn er sá að fyrir reið­ hross og ferðahesta, sem ekki eru líklegir keppnishestar, fæst lágt verð þar sem lítill markaður er fyrir þannig hesta.“ Lárus Ástmar Hannesson, for­ maður Landssambands hesta­ mannafélaga, gleðst yfir því að markaðir séu farnir að taka við sér. „Það er jákvætt að við séum komnir á rekspöl aftur með útflutning á hrossum. Þó verður alltaf að taka með í reikninginn að útlendingar eiga hér hross sem þeir eru kannski að flytja heim til sín en aftur á móti hafa íslenskir hrossabændur tekjur af umhirðu og tamningu hrossa fyrir útlend­ inga,“ segir Lárus. „Einnig erum við að fara af stað með Íslandsverkefni, nýtt átaks­ verkefni um að stækka markaðinn með íslensk hross og vonandi mun það leiða til eflingar í útflutningi á hrossum.“ Fram undan er landsmót hesta­ manna í sumar sem haldið verður á Hólum í Hjaltadal. Lárus segir fjölda útlendinga sækja mótið þegar þau eru haldin þar sem þeir skoði hross og salan taki oft kipp eftir landsmót. „Nú höfum við selt um 3.000 miða í forsölu á landsmót og eru útlendingar um fimmtungur þeirra sem hafa tryggt sér miða. Síðustu ár hefur íslenski hesturinn verið að skila um 15 milljörðum króna í gjaldeyristekjur til þjóðar­ búsins þegar allt er tekið saman og því er þetta mjög mikilvæg atvinnugrein sem þarf að hlúa að.“ sveinn@frettabladid.is Landsmót á Hólum 2016 kemur til með að draga að sér fjölda útlendinga. Unnendur íslenska hestsins eru búsettir um allan heim. Hér að ofan má sjá stemninguna á Gaddstaðaflötum árið 2014. FRéTTaBLaðIð/BjaRNI ÞóR SIGURðSSON Hrossasala til útlanda hefur ekki verið meiri í fimm ár Alls voru 1.360 hross seld utan á síðasta ári. Landsmót dregur þúsundir útlendinga til landsins. Fimmt­ ungur þeirra sem eiga miða er útlendingar. „Betur má ef duga skal,“ segir ábyrgðarmaður hrossaræktar. Það er jákvætt að við séum komnir á rekspöl aftur með útflutning á hrossum. Lárus Ástmar Hannesson, formaður LH 0,3% mega vera af PHMB samfélag Stjórn Kvenréttindafélags Íslands telur aðkallandi að bregðast við lægri fæðingartíðni og skorar á Alþingi og félags­ og húsnæðismála­ ráðherra að bregðast við með því að styrkja fæðingarorlofskerfi, auka framlög til foreldra og lengja fæð­ ingarorlof. „Núverandi fæðingaror­ lofskerfi skapar foreldrum ungra barna ekki það fjárhagslega öryggi sem þarf að vera til staðar þegar fólk tekur á sig jafn stóra skuldbindingu og að eignast barn. Framfærsla er bæði of lág og fæðingarorlof of stutt,“ segir í áskorun félagsins. – kbg Skora á Alþingi Lægri fæðingartíðni veldur áhyggjum. Kvenréttindafélag Íslands vill viðbrögð. FRéTTaBLaðIð/VILHELM sUðURNEs Þefvísir lögreglumenn á Suðurnesjum runnu á lyktina þegar þeir voru kallaðir að hús­ næði í umdæminu vegna hávaða um helgina.  Megn kannabislykt varð þeim tilefni til leitar í íbúðinni með leyfi húsráðanda. Lögreglumenn­ irnir fundu poka með kannabis í koddaveri og var tekin skýrsla um málið á vettvangi. – kbg Kannabis fannst í koddaverinu Hefðbundið útkall vegna hávaða leiddi til fíkniefnafundar. 1 2 . j a N ú a R 2 0 1 6 Þ R i ð j U D a g U R4 f R é T T i R ∙ f R é T T a B l a ð i ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.