Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2016, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 12.01.2016, Qupperneq 6
Viðskipti Árið 2015 voru sextán prósent meiri viðskipti á fasteigna- markaði en meðalfjöldi viðskipta á ári síðustu þrettán árin. Tæplega sjö þúsund kaupsamningum íbúðar- húsnæðis var þinglýst  á höfuð- borgarsvæðinu, sem var 17,5 prósent fjölgun milli ára. Fjölgunin í fyrra er mun meiri en síðustu þrjú árin á undan. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Ásgeir Jónsson hagfræðingur telur að þessa miklu fjölgun megi rekja bæði til launahækkana og minnk- andi atvinnuleysis. „Fólk tekur stórar ákvarðanir eins og um fasteignakaup bæði út frá kaupmætti launa sinna sem og atvinnuöryggi, og ef atvinnu- leysi minnkar hvetur það fasteigna- markaðinn áfram.“ Viðskipti með fjölbýli voru rúm- lega 80 prósent viðskiptanna og jukust um 17 prósent. Viðskipti með sérbýli hafa aukist meira en viðskipti með fjölbýli á síðustu þremur árum og jukust um 19,6 prósent í fyrra. Þróunin á höfuðborgarsvæðinu og í fjórum bæjum utan þess hefur alls staðar verið upp á við. Viðskiptum fjölgaði langmest í Reykjavík, þar voru einungis seldar um 1.000 eignir á árinu 2009 en þær voru nálægt 4.000 á árinu 2015. „Með batnandi hag heimilanna og á fimmta ári í efnahagsuppsveiflu þá er ekkert óeðlilegt við það að fasteigna- markaðurinn bregðist við. Það liggur fyrir að verð á sérbýli er langt fyrir neðan byggingarkostnað og það má raunar segja um flestar eignir að verð sé rétt við eða undir byggingarkostn- aði. Fram til þessa hefur verðið helst hækkað á litlu fjölbýli nærri miðju Reykjavíkur,“ segir Ásgeir. Ásgeir bendir á að ákveðin þörf Stóraukin fasteignasala í uppsveiflu síðasta árs Fasteignaviðskiptum fjölgaði um 17,5 prósent á síðasta ári. Fleiri sérbýli seldust en áður. Tæplega fjórum sinnum fleiri íbúðir seldust í Reykjavík árið 2015 en árið 2009. Ásgeir Jónsson segir eðlilegt að markaðurinn bregðist við uppsveiflu. ✿ sala á íbúðarhúsnæði í Reykjavík 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 0 500 1000 1500 2000 2500 3000 3500 4000 Fjöldi Viðskipta Heimild: Þjóðfræðiskrá, Hagfræðideild 17,5% fleiri kaupsamningum var þinglýst árið 2015 en 2014 4 sinnum fleiri kaupsamn- ingar voru gerðir í Reykjavík árið 2015 en 2009 Það sem ég hef áhyggjur af er að það lítur út fyrir að það verði tiltölulega lítið nýtt framboð á þessu ári. Ásgeir Jónsson hagfræðingurr hafi safnast upp á undanförnum sjö árum, því sé ekki óeðlilegt að við sjáum svona mikið af viðskiptum. „Það sem ég hef áhyggjur af er að það lítur út fyrir að það verði tiltölu- lega lítið nýtt framboð á þessu ári. Byggingariðnaðurinn hefur verið seinn til að bregðast við aukinni eftirspurn og það virðist taka lengri tíma að koma sér af stað eftir áfallið mikla 2008 og það gæti skapað veru- legan skort á þessu ári.“ segir Ásgeir Jónsson. saeunn@frettabladid.is Illviðráðanlegir skógareldar Slökkvilið Höfðaborgar í Suður-Afríku nýtir þyrlu til að berjast við skógarelda. Illa hefur gengið undanfarið að ráða niðurlögum mikilla elda við rætur fjallanna í nágrenni borgarinnar og vinna nú um tvö hundruð slökkviliðsmenn með 25 slökkvibíla og fimm þyrlur við það. Fréttablaðið/EPa Slökkvistarf við erfiðar aðstæður spánn Kristín Spánarprinsessa, systir konungsins Filippusar sjötta, varð í gær fyrsti meðlimur konungs- fjölskyldunnar til að þurfa að mæta fyrir dómstóla. Prinsessan er ákærð fyrir fjársvik, ásamt eiginmanni sínum og sextán öðrum. Verði hún fundin sek gæti hún átt yfir höfði sér allt að átta ára fangelsisdóm. Átjánmenningarnir eru grun- aðir um að hafa nýtt sér félag í eigu eiginmanns prinsessunnar, Iñaki Urdangarin, til að bjóða sveitarfé- lögum krafta sína á uppsprengdu verði og stinga ágóðanum í eigin vasa. Þau sveitarfélög sem eiga að hafa orðið verst úti eru á Baleareyjum og í Valenciahéraði. Kristín var um skeið stjórnar- maður í félaginu og er henni gefið að sök að hafa notað hið illa fengna fé til að kaupa fatnað fyrir börn þeirra hjóna. – þea Spánarprinsessa dregin fyrir rétt FRakkland Frakkar hyggjast opna nýjar flóttamannabúðir í Norður- Frakklandi til að bregðast við hrak- andi ástandi þeirra sem nú þegar eru til staðar á svæðinu. Mikið hefur rignt undanfarið við Ermarsund og er ástandið í flóttamannabúðunum í Dunkerque, sem hýsa þúsundir flóttamanna, sagt ómannúðlegt. Fyrirhugað er að reisa nýjar búðir í Grande-Synthe í nágrenni Dun kerque. Þær eiga að vera búnar sturtum, hreinlætisvörum í meiri mæli en í Dunkerque sem og betri aðbúnaði ef frysta skyldi. Búðunum er ætlað að hýsa um 2.500 flótta- menn. Einnig ætla Frakkar að opna aðrar 1.500 manna búðir í Calais. – þea Frakkar opna nýjar búðir fyrir flóttamenn Mexíkó Framsal kókaínbarónsins Joaqúins Guzmán, oft kallaður El Chapo, frá Mexíkó til Bandaríkjanna gæti tekið ár hið minnsta. Frá þessu greindi skrifstofa ríkissaksóknara Mexíkó í gær. Talsmaður embættisins, Jose Manu- el Merino, benti á að El Chapo hefði rétt á að áfrýja framsalinu ef hann vildi eins og mexíkósk lög kveða á um. Einn lögmanna El Chapo sagði í gær skjólstæðing sinn mundu áfrýja málinu alla leið í hæstarétt ef þyrfti. Framsalsferlið hófst formlega á sunnudag þegar Bandaríkjamenn óskuðu eftir framsali hans svo hægt væri að rétta yfir honum fyrir hin ýmsu fíkniefnabrot. El Chapo var handtekinn á föstu- daginn í Norðvestur-Mexíkó en hann flúði úr fangelsi í júlí á síðasta ári eftir að hafa skriðið í gegnum 1,5 km löng göng. – þea Framsalið frá Mexíkó gæti tekið heilt ár Ástandið í Dunkirque eftir miklar rigningar. NorDicPhotos/aFP 1 2 . j a n ú a R 2 0 1 6 Þ R i ð j U d a G U R6 F R é t t i R ∙ F R é t t a B l a ð i ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.