Fréttablaðið - 12.01.2016, Síða 26
W Motors í Dubai er nú með til sýnis nýjustu afurð sína, Fenyr SuperSport bíl
með 900 hestafla vél sem er 2,7 sekúndur í hundraðið og með 400 km há-
markshraða. Það eru svipaðar tölur og Bugatti Veyron er skráður fyrir.
W Motors var einmitt með Lykan HyperSport bíl sinn í myndinni Fast and the
Furious 7, en þessi nýi bíll er öflugri en hann. Kraftinn fær hann úr 4,0 lítra 6
strokka vél og tveimur RUF risaforþjöppum. Hann er með 7 gíra sjálfskiptingu
með tveimur kúplingum. Bíllinn er bara 1.200 kíló og skýrir það ef til vill best
hversu snöggur hann er, en yfirbygging hans er smíðuð úr kol trefjum. Það
er þó óskandi að W Motors færi sönnur á getu bílsins með myndskeiði eða
prófunum óháðra einstaklinga svo allir geti tekið þessar tölur trúanlegar. Fram-
leiðsla á Fenyr SuperSport verður takmörkuð við 25 bíla og fyrirtækið segir að
framleiðsla hans sé í samstarfi við austurríska bílasmiðinn Magna Steyr og að
bíllinn hafi verið teiknaður af StudioTorino í Ítalíu. Ekki kemur fram hvað hann á
að kosta, en það er örugglega til nóg af kaupendum í löndunum kringum Dubai.
Fenyr SuperSport
er jafnoki Bugatti Veyron
Fenyr SuperSport er engin venjuleg kerra.
F
orstjóri Fiat-Chrysler
hefur óþreyttur talað
fyrir sameiningu fyrir-
tækisins við Gene-
ral Motors og að gera
fyrir tækin þannig arð-
samari. Þessari tillögu
hans hafa forsvarsmenn GM
tekið fálega og geta hreint ekki
hugsað sér sameiningu. Sumir
hafa þó bent á það að fyrirtæk-
in tvö gætu sameinast um þróun
véla í bíla sína, sparað með því
gríðar legar upphæðir og gert
með því bílana samkeppnishæf-
ari við japanska og þýska bíla.
Einnig mætti fá Ford í svona
samstarf.
Sumir hafa bent á að margar
af vélum fyrirtækjanna séu
þekktar sem hjarta þeirra og
afar tengdar bílgerðum, en mót-
rökin við því eru þau að lang-
flestum bíleigendum sé slétt-
sama um hvaða vél sé í bílum
þeirra, svo framar lega sem þær
eru áreiðanlegar og aflmiklar.
Sama eigi við skiptingar í bílum
þeirra.
Hörðum bílaáhugamönnum
stendur alls ekki á sama um
hvaða vélbúnaður er í bílum
þeirra og það sama á líklega
við eigendur Hybrid og Plug-In-
Hybrid bíla, en sá hópur telur
aðeins um 15% bíleigenda. Það
þýði að fyrir 85% markaðarins
skipti það hreinlega engu máli
hvaðan vélbúnaðurinn kemur
og á það eigi framleiðendur að
hlusta.
Samtals 20 milljónir
véla og skiptinga
GM, Fiat-Chrysler og Ford
smíða um 20 milljónir véla og
skiptinga í ár. Um 90% þeirra
eru meira og minna sams konar
vélar, sem þýðir að þeir eru
hver í sínu horni að gera sama
hlutinn og þróa nýjar vélar af
sömu gerð og hinir með ærnum
þróunarkostnaði. Ef þessir þrír
aðilar sameinuðust um þróun
og smíði þessara tuttugu millj-
óna véla og skiptinga myndi
það gefa þeim algjöra sérstöðu
í heiminum. Ekki veitir þeim
heldur af frekari þróun þeirra
þar sem bandarískar vélar eyða
enn talsvert meira eldsneyti
en japanskar og þýskar vélar.
Kostnaður við smíði þeirra
myndi lækka gríðarlega mikið,
því hafa verður í huga hve stór
þáttur í endanlegu verði bíls
er fólginn í vélinni og skipting-
unni. Það er til dæmis þekkt
staðreynd að þróun nýrrar vélar
kostar bílaframleiðanda um 65
milljarða króna.
Mætti lækka þróunarkostnað
um tvo þriðju
Þann kostnað mætti lækka um
tvo þriðju ef þessir þrír bíla-
framleiðendur sameinuðust um
þróun. Sama á við um þróun
skiptinga. Bílaframleiðendurn-
ir gætu enn haldið sérstöðu sinni
með viðbótum við vélarnar, t.d.
með notkun forþjappa og kefla-
blásara, þótt í grunninn væri um
sömu vélar að ræða.
Fylgjendur þess að samein-
ast um vélarþróun og fram-
leiðslu eru á því að best sé að
stofna um slíkt nýtt félag í eigu
þeirra allra, það sé eina leiðin
til að koma í veg fyrir árekstra.
Það sem ýtir undir umræðu
sem þessa um sameiginlega
smíði véla er ekki síst sá litli og
minnkandi hagnaður sem er af
framleiðslu bíla og hafa sumir
áhyggjur af því að fjárfestar
velji fremur annars konar starf-
semi en bílaframleiðslu til að fá
meiri ávöxtun fjár síns. Hvort
það dugar til að bandarísku bíla-
framleiðendurnir taki einhver
skref í þessa átt á næstunni skal
ósagt látið, en þetta er komið í
umræðuna.
sameinuð vélasmíði?
Munu bandarískir bílaframleiðendur taka saman höndum
um smíði véla og spara með því gríðarlegar upphæðir.
Vélasmíði í bandarískri verksmiðju.
Nú þegar Land Rover er að hætta að framleiða Defender, hinn eiginlega
Land Rover, stóð það næstum á sléttu að verksmiðjur Land Rover í Solihull
verksmiðjunni í Bretlandi framleiddu alls tvær milljónir slíkra bíla. Sá sem
var með framleiðslunúmerið 2.000.000 var síðan boðinn upp hjá Bonhams-
uppboðsfyrirtækinu og mun afraksturinn renna til góðgerðarmála. Bílinn
keypti ónefndur auðmaður í Katar og með kaupum hans er þessi bíll líklega
dýrasti Land Rover sem seldur hefur verið. Það eru Rauði krossinn og Rauði
hálfmáninn sem njóta góðs af kaupverðinu og verður fénu varið til að berjast
gegn náttúruvá í SA-Nepal og til verndunar villtu dýralífi í Meru-þjóðgarð-
inum í Kenýa. Bíllinn sem Katarinn keypti er reyndar engin venjuleg útgáfa
af Land Rover Defender, en hann er með óvenju ríkulegri innréttingu, með
ágröfnu korti af Red Wharf Bay, þar sem hugmyndin að smíði hans á víst að
hafa kviknað og að sjálfsögðu er einnig ágrafin plata í innréttingu bílsins sem
greinir frá því að þetta sé framleiðslubíll nr. 2.000.000. Þá er einnig álplata
inni í bílnum með nöfnum allra þeirra starfmanna sem tóku þátt í smíði hans.
Defender nr. 2.000.000
fór á 80 milljónir
Lækkandi olíuverð í heiminum öllum hefur minnkað eftirspurn eftir tvinn-
bílum þar sem kaupendur bíla horfa minna í eyðslu þeirra og sækja því ekki
eins mikið í tvinnbíla og losna með því við þann aukakostnað sem þessi
aukabúnaður felur í sér. Fjórða kynslóð Toyota Prius kom á markað í Japan
í desember og von er á bílnum á Evrópumarkað sem og til Bandaríkjanna
snemma á þessu ári. Í fyrri áætlunum Toyota var gert ráð fyrir að selja
400.000 Prius á ári, en í nýjum áætlunum Toyota er gert ráð fyrir 300-
350.000 bílum. Bensín hefur lækkað um nær helming frá miðju ári 2014 í
Bandaríkjunum, en þar er stærsti markaðurinn fyrir Toyota Prius. Það hefur
orðið til þess að 12% færri Prius-bílar seldust þar árið 2015 en árið á undan.
Nýr Prius er sagður 20% eyðslugrennri en forverinn og það sama á við
mengun hans. Mengun hans fer úr 86 g/km af CO2 í 70 g/km. Eyðslan fer
úr 3,9 lítrum í 3,0 lítra. Toyota hefur selt fjórar milljónir Prius-bíla frá því þeir
komu fyrst á markað.
Toyota lækkar söluáætlanir
fyrir Prius
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Bílar
Fréttablaðið
4 12. janúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR