Fréttablaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 6
Þjóðverjar neita nú að
taka við 700 flóttamönnum
sem eru í Svíþjóð en voru
áður í Þýsklandi.
kemur HeILSuNNI í Lag
eIN tafLa á dag SykurLauSar íSLeNSk framLeIðSLa
hvar.isA Ð LandsaðgangurÁ S K R I F T U MR A F R Æ N U M
Ársfundur
Landsaðgangs
að rafrænum áskriftum
verður haldinn fimmtudaginn 19. mars
kl. 15.00
Fundurinn verður í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands -
Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðu við Arngrímsgötu í Reykjavík.
Nánari upplýsingar á www.hvar.is
verður haldinn föstudaginn 18. mars kl. 15.00
uri n verður í fyrirlestr rs l Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðu við Arngrímsgötu í Reykjavík
Nánari upplýsingar á hvar.is
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
UP! MEÐ
ÖRYGGIÐ
VW Up! frá aðeins:
1.790.000 kr.
Velferðarmál Tilkynningum til
barnaverndarnefnda fækkaði um rúm
fjögur prósent milli 2014 og 2015. Þær
voru 8.519 á síðasta ári
Flestar tilkynningar koma vegna
vanrækslu eða tæplega 38 prósent.
Næst kemur vegna áhættuhegð-
unar eða tæplega 36 prósent og þriðji
stærsti flokkurinn er vegna ofbeldis-
mála eða um fjórðungur.
Tilkynningum vegna ofbeldis
fjölgaði um 9,5 prósent milli ára.Það
er eini flokkurinn þar sem tilkynn-
ingum fjölgar. Þar af hefur tilkynn-
ingum vegna heimilisofbeldis fjölgað
mest, um tæp 26 prósent , farið úr 497
í 625 á ári.
Páll Ólafsson, sviðsstjóri ráðgjafa-
og fræðslusviðs Barnaverndarstofu,
segir fylgst vel með þessari þróun.
Eðlilegt sé að tilkynningum vegna
heimilisofbeldis fjölgi vegna þess að
viðbrögðum við heimilisofbeldi hafi
verið breytt á höfuðborgarsvæðinu.
„Áður fór lögregla ein inn á heimilið
en nú fara starfsmenn Félagsþjónust-
unnar og Barnaverndar með til að
vinna með fjölskyldunni og sinna
börnunum,“ segir Páll.
Tilkynningum vegna vanrækslu
fækkar, sérstaklega tilkynningum
vegna áhættuhegðunar barna. Undir
hana fellur neysla barns á vímuefnum,
ef barn stefnir eigin heilsu og þroska
í hættu, afbrot barns, ef barn beitir
ofbeldi og erfiðleikar barns í skóla.
„Þetta eru tilkynningar sem snúa að
unglingum og það að þeim fækki er
þróun sem hefur verið í gangi undan-
farin ár,“ segir Páll Ólafsson.
erlabjorg@frettabladid.is
Fleiri barnaverndarmál
vegna heimilisofbeldis
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði milli áranna 2014 og 2015. Þó
fjölgar tilkynningum vegna ofbeldis. Sjaldnar er tilkynnt um unglingavandamál.
SVÍÞJÓð Morgan Johansson, dóms-
málaráðherra Svíþjóðar, segir Sví-
þjóð og fleiri lönd kunna að stefna
þýskum stjórnvöldum fyrir Evrópu-
dómstólinn vegna ákvörðunar um
að taka ekki á móti flóttamönnum
sem sendir eru til baka á grunni
Dyflinnar-reglugerðarinnar.
Í Þýskalandi þurfa hælisleitend-
ur fyrst að skrá sig og síðan sækja
formlega um hæli. Þýskaland mun
nú aðeins taka við þeim sem farið
hafa í gegnum allt ferlið áður en þeir
héldu til annars lands. Þjóðverjar
neita nú að taka við 700 flótta-
mönnum sem eru í Svíþjóð.
Johansson kvaðst hafa skilning
á vanda Þjóðverja en um 100 þús-
und hælisleitendur komu þangað í
janúar. Þeir megi samt ekki brjóta
gegn Dyflinnar-reglugerðinni. – ibs
Hóta að stefna Þýskalandi
Tilkynntu ofbeldi er skipt í tilfinningalegt ofbeldi, þar með heimilisofbeldi, líkamlegt
og kynferðislegt. Tilkynningum hefur fjölgað í öllum flokkum. FréTTablaðið/Vilhelm
Mikið mannfall í Ankara
Særður maður á götu í Ankara, höfuðborg Tyrklands, fær aðstoð eftir að bílsprengja sprakk og banaði minnst
27 manns og særði 75. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. NordicphoTos/aFp
Áður fór lögregla
ein inn á heimilið en
nú fara starfsmenn Félags-
þjónustunnar og Barna-
verndar með.
Páll Ólafsson,
sviðsstjóri ráðgjafa-
og fræðslusviðs
Barnaverndarstofu
1 4 . m a r S 2 0 1 6 m á N U D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð