Fréttablaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —6 2 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 1 4 . M a r s 2 0 1 6
FYriR hEimIlið
oG bústAðiNnNEtið
hJá n0vA
4G box
11.990 kr. stgr.
Verð miðað við 6 mán. þjónustusamning
í áskrift í 50 GB eða stærri pakka.
heilbrigðisMál Einelti um borð
í íslenskum fiskiskipum virðist
miklu algengara en gengur og ger-
ist hjá öðrum starfsstéttum. Ríflega
þriðjungur sjómanna, eða 38,9%,
sem tóku þátt í nýlegri rannsókn
sögðust hafa orðið fyrir eða upp-
lifað einelti eða áreitni frá vinnufé-
lögum sínum um borð.
Þetta er meðal niðurstaðna Sal-
óme Rutar Harðardóttur, íþrótta-
og heilsufræðings, í meistaraverk-
efni hennar við Menntavísindasvið
Háskóla Íslands.
Salóme telur að niðurstöðurnar
gefi vísbendingar sem verði að taka
alvarlega, en 132 sjómenn víða að á
landinu á aldrinum 21-70 ára tóku
þátt í rannsókninni. Þá kom einnig
í ljós að lífsánægja og heilsa þeirra
sjómanna sem höfðu upplifað eða
orðið fyrir eineltinu var marktækt
verri en þeirra sem höfðu ekki
orðið fyrir einelti.
Salóme setur þessar tölur í sam-
hengi við aðrar rannsóknir um
efnið – innlendar sem erlendar. Er
þetta hlutfall með því hæsta sem
hún hefur séð. Sé hlutfallið yfirfært
á alla sjómenn á Íslandi, eða þá
4.100 sem störfuðu á sjó á árunum
2013 til 2014, má áætla að tæplega
1.600 þeirra hafi orðið fyrir eða
upplifað einelti eða áreitni á vinnu-
stað sínum.
Til samanburðar segir Salóme að
nákvæmlega sömu spurningar hafi
verið lagðar fyrir starfsmenn stórs
verslunarfyrirtækis hér á landi, þar
sem rúmlega 200 manns svöruðu,
og þar voru tölurnar sláandi mikið
lægri – eða 4,4%. – shá / sjá síðu 10
Einelti meðal íslenskra
sjómanna afar algengt
Rannsókn bendir til að einelti sé miklu algengara á meðal sjómanna en í öðrum
starfsstéttum. Um 40 prósent sjómanna í nýrri rannsókn höfðu upplifað einelti.
Fréttablaðið í dag
lÍfið
Orrifinn
stóð fyrir
skugga-
legum
gjörn-
ingi á
Hönnun-
arMars.
24-26
skoðun Formaður Bænda-
samtakanna segir ótrúlegt að
Alþýðusambandið beini spjótum
sínum að bændum og bendir á
verslunina. 12
sport Stelpurnar okkar unnu
loks leik í undankeppni EM. 14
tÍMaMót Hjóla milli landa fyrir
krabbameinssjúk börn. 17
plús 2 sérblöð l fólk
l fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
stjórnMál Tveir af fimm sem afstöðu
taka segjast bera mest traust til Bjarna
Benediktssonar fjármálaráðherra af
ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Næst
flestir nefna Ólöfu Nordal.
AAthygli vekur að einungis þriðj-
ungur aðspurðra tók afstöðu til spurn-
ingarinnar.
„Bjarni er náttúrlega formaður
stærri flokksins í stjórnarsamstarfinu,
þannig að það þarf kannski ekkert
að koma á óvart að
hann skori hærra
en aðrir,“ segir
Grétar Þór Eyþórs-
son, prófessor í
stjórnmálafræði
við Háskólann á
Akureyri.
jhh / sjá
síðu 4
Flestir segjast
treysta Bjarna
Vetraríþróttaiðkun á Tjörninni Gleðin var við völd hjá stúlkum úr fjórða bekk í Menntaskólanum í Reykjavík þegar þær nýttu kuldatíðina til hins ýtrasta og spiluðu fótbolta á frosinni
Tjörninni í íþróttatíma gærdagsins. Íþróttahús skólans er gamalt og lítið og stundum í gamni nefnt „þrælakistan“ af nemendum. Þeir fagna því útivistinni. Fréttablaðið/Vilhelm
„Rafmagnið fór af húsinu og við íbúarnir fórum að kanna málið,“ segir Hermína J. Lilliendahl, íbúi við Krummahóla 10. „Þá kom í ljós að það kom mikill reykur úr íbúð á fimmtu hæð.“
Mikill viðbúnaður var hjá slökkviliðinu og leituðu íbúar skjóls í bílskúr. Að sögn Hermínu var íbúðin sem eldurinn kom upp í mannlaus og engan sakaði. Fréttablaðið/ernir