Fréttablaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 13
advania.is/fermingar Fáðu útrás fyrir litagleðina Urbanears Pla an - ýmsir litir Verð: 9.590 kr. Guðrúnartúni 10, Reykjavík og Tryggvabraut 10, Akureyri Opið mánudaga til föstudaga frá 8 til 17 Fermingarpakkar slá í gegnsem Lé ur og flo ur Canvas leður bakpoki Verð: 12.990 kr. Sveigjanleg far- og spjaldtölva Dell Inspiron 7359 - i5 Skylake Verð: 189.990 kr. Frábær hljómur Jabra Move þráðlaus Verð: 18.990 kr. Lé og falleg fartölva Dell Inspiron 5559 - Touch i5 Skylake Verð: 149.990 kr. Hagkvæm fartölva Dell Inspiron 3551 Verð: 69.990 kr. Það að vera kapítalisti á Íslandi er þægileg inni-vinna. Þetta er oft hálfgerð áskrift að skyldu-útgjöldum almennings, nokkurs konar tíund, sem tekin er af þeim fátæku og látin renna til þeirra ríku. Dagur kapítalistans íslenska líður við ánægjulegar samverustundir með svonefndum samkeppnisaðilum, þar sem af eindrægni og samhug eru lögð á ráðin um komandi hækkanir, milli þess sem samdar eru nýjar kennitölur og hugsuð upp ný og fyndin nöfn á eignarhaldsfélög. Æfing í ósvífni Tilraunir hluthafa til að komast yfir bótasjóði tryggingarfélaganna nú á dög- unum, í kjölfar hækkana vegna „bágrar stöðu félaganna“, voru nokkurs konar æfing í ósvífni, tilraun um það hversu langt má ganga án þess að ofbjóða sein- þreyttum íslenskum neytendum. Tilraunin leiddi í ljós að það eru tak- mörk fyrir því hvað hægt er að bjóða almenningi upp á fráleita eignaupptöku. Hún varð líka til þess að rifja upp fyrir okkur hversu gallað fyrirkomulag er á starfsemi tryggingarfélaga hér á landi, og hversu brýnt er að koma á fót félags- legum rekstri kringum þessi nauðsyn- legu útgjöld, þar sem önnur sjónarmið ríktu en þau að skapa hluthöfum sem mestan arð. Þetta minnti okkur á það hversu langt hefur verið gengið hér á landi í þá átt að eftirláta markaðsöfl- unum alls konar rekstur þar sem sam- félagsleg vitund þyrfti að ríkja – og sið- ferðissjónarmiðum ætti að gera hátt undir höfði. Í rauninni er ámóta visku- legt að reka tryggingarfélög með gróða- sjónarmið eigenda að leiðarljósi og að afhenda einkaaðilum ríkissjóð. Þær eru eflaust ýmsar skýringarnar á því hversu náðuga daga íslenskir kapít- alistar eiga. Ein þeirra kann að vera sú að samtök launafólks náðu hér ekki jafn miklum pólitískum styrk og í nágranna- löndum okkar, þar sem meira ber á sam- félagslegri meðvitund fólks, sem lýsir sér til dæmis í því að ekki er fyrst og fremst litið á leigjendur húsnæðis sem bráð, eins og alsiða er hér á landi. „Upp með dalina …“ Það segir sína sögu að nú þegar Alþýðu- sambandið og Alþýðuflokkurinn eiga hundrað ára afmæli skuli hinn pólitíski flokkur launafólks ekki vera lengur starfandi, nema að nafninu til. Og stað- an orðin þannig á þeim flokki sem átti að sameina jafnaðarmenn hér á landi, Samfylkingunni, að hann verður æ meira Sérfylkingin; íslenskir kjósendur búnir að breyta henni í gamla Alþýðu- flokkinn en allt jafnaðarmannafylgið komið á flokk sem fyrst og fremst snýst um andúð á hvers kyns valdi og forsjá; og er þar togast á um hvort sé hægri anarkistaflokkur, að hætti Friedman- feðga, eða vinstri anarkistaflokkur í anda Bakúníns. Upp til hópa segjast Íslendingar vera jafnaðarmenn en sárafáir telja sig krata. Þarna er gerður einhver greinarmunur sem erfitt er að henda reiður á; „krati“ er raunar ekki annað en stytting á „sósíal- demókrata“, alþjóðlegu orði þessarar hreyfingar, og vísar í lýðræðishugsjón- ina, sem aðskildi einmitt jafnaðarmenn frá kommúnistum, sem aðhyllast alræði. En það er eins og orðið þýði eitthvað allt annað í huga margra; kannski vegna þess spillingarorðs sem lá á Alþýðu- flokknum þegar hann var með Sjálf- stæðisflokknum í Viðreisnarstjórninni. Næstum eins og orðið „krati“ merki „veifiskati“ eða eitthvað þess háttar. Jón Trausti lét persónu í sögu eftir sig lýsa jafnaðarstefnunni með orðunum „Upp með dalina! Niður með fjöllin!“ sem kann að lýsa nokkuð vel þeim þankagangi að jöfnuður jafngildi alls- herjar flatneskju. Þó er það svo að fátt þykir fyndnara hér á landi en hofmóður í krafti auðs og valda, og eru enn sagðar gamansögur af útrásarvíkingunum þegar þeir fóru að reyna að halda sig sem enska lorda í marga ættliði. Íslensk jafnaðarstefna er um leið mikil einstak- lingshyggja, þar sem lögð er áhersla á athafnarými hvers og eins, hvort sem viðkomandi vill fá að stofna fyrirtæki, reisa hús sem öllum finnst ljótt eða gefa út lélega plötu. Hér er rík tilfinning fyrir því að sérhver manneskja skapi sig sjálf og megi gera ýmsar misvel útfærðar til- raunir á þeirri vegferð. Við lítum almennt á okkur sem fjöll fremur en dali. Það er ágætt. En við þurfum samt hvert á öðru að halda. Alþýðusambandið er vitnisburður um það hverju samtök launafólks fá áorkað, þegar samtakamættinum er beitt – þau margvíslegu réttindi sem við höfum fengið, þrátt fyrir allt. Fyrir öllum þess- um réttindum hefur þurft að berjast og jafnvel berjast lengi – allt frá Vöku- lögunum á sinni tíð. Verkefni dagsins snúast ekki síst um að koma böndum á starfsemi yfirþjóðlegra fyrirtækja sem stunda starfsmannaleigu og búa fólki sínu stundum þannig aðstæður, að ekki verður kallað annað en þrælahald. Við vitum að hægri flokkarnir telja alla laga- setningu um slík mál vera „íþyngjandi“ en óneitanlega myndi maður vilja óska þess að hinn pólitíski armur alþýðusam- takanna væri öflugri. Alþýðusambandið hundrað ára Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Tilraunir hluthafa til að komast yfir bótasjóði tryggingar- félaganna nú á dögunum, í kjölfar hækkana vegna „bágrar stöðu félag- anna“, voru nokkurs konar æfing í ósvífni. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 1 4 . M a R s 2 0 1 6

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.