Fréttablaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Berglindar
Pétursdóttur
Bakþankar
Við göngum hreint til verks
og í áratugi höfum við lagt
áherslu á hreina framleiðslu-
tækni. 90% af okkar pappír
kemur úr nytjaskógum.
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 H E I L S U R Ú M
ALLAR AÐRAR DROTTNINGAR
Í QUEEN SIZE (153X203 cm)
MEÐ 20% AFSLÆTTI
A
R
G
H
!!!
1
40
31
6
#3
30%
AFSLÁTTUR!
Drottning
vikunnar
ROYAL AVIANA
Verð áður 164.400 kr. VERÐ NÚ 115.080 kr.
(Queen Size 153x203 cm)
Allir eru að bjóða sig fram til forseta nema ég, en ég er reyndar of ung til að bjóða
mig fram. Af hverju þarf maður
að vera svona gamall til að fara í
framboð? Væri ekki frískandi að
fá eina 26 ára með háskólapróf í
dansi í forsetaembættið? Ég gæti
haldið ógleymanlegar veislur á
Bessastöðum. Ég keypti nýlega
skrautborða sem á stendur ’Party
with my Bitches‘ í partíbúð og hef
notað hann óspart í hinum ýmsu
teitum. Hann myndi sannarlega
koma sér vel þegar ég væri búin að
negla fálkaorður og bókmennta-
verðlaun í broddborgara héðan
og þaðan. Þá gæti ég sko hrist
tappann úr einni Bollinger og sýnt
ráðamönnum og -konum erlendra
þjóða að forseti Íslands er ógeðs-
lega hress og kátur.
Þetta er náttúrulega bara bull.
Ég ætla ekki að bjóða mig fram fyrr
en í fyrsta lagi um sextugt. Kona
verður að enda ferilinn á forseta-
embættinu. Hvað ætti ég til dæmis
að fara að gera eftir fyrsta kjör-
tímabilið þegar allir væru búnir að
átta sig á að ég kann ekkert að vera
forseti og einhver heilsteyptur,
vel menntaður einstaklingur tæki
minn stað? Færi ég aftur í aug-
lýsingabransann? Væri það ekki
óþægilegt fyrir vinnufélaga mína
að vita til þess að ég væri búin
að fara á fundi með Trump Banda-
ríkjaforseta og sæti núna á fundi
með þeim í Skeifunni? Eða væri
þeim alveg sama? Ég þyrfti að
spyrja þau.
Ég ætla að láta þetta eiga sig í
bili, njóta þess að fylgjast með
kosningabaráttu hinna og fullnýta
kosningarétt minn. Ég er löngu
búin að ákveða hvern ég ætla að
kjósa. Einu sinni fór ég nefnilega í
Góða hirðinn og sá Sturlu Jónsson,
vörubílstjóra og forsetafram-
bjóðanda. Hann var að kaupa sér
möppu. Ég vil forseta sem kaupir
möppur í Góða hirðinum.
Kjósið mig