Fréttablaðið - 23.04.2015, Qupperneq 2
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
LÖGREGLUMÁL Eigandi veitinga-
staðarins Ali Baba ætlar að
leggja fram kærur á hendur
fimm mönnum fyrir að hafa ráð-
ist á hann fyrir utan veitinga-
staðinn á miðvikudag. Meðal
þeirra sem hann ætlar að kæra
er eigandi veitingastaðarins
Mandy sem er við hliðina á Ali
Baba í Veltusundi í Reykjavík.
Átökin eiga rætur að rekja til ill-
deilna sem hafa staðið í mörg ár eða
síðan mennirnir ráku saman veit-
ingastaðinn Ali Baba til skamms
tíma. Að sögn Yaman Brikhan, eig-
anda Ali Baba, höfðu þeir ólíkar
áherslur varðandi reksturinn og
segist hann hafa borgað hinum út
sinn hlut í staðnum.
Deilurnar náðu svo hámarki
á miðvikudaginn eftir jarðarför
sem báðir mennirnir voru við-
staddir. Yaman segir að þegar
hann hafi komið að veitingastað
sínum eftir jarðarförina hafi
komið fimm menn að honum og
þeir farið að deila sín á milli.
„Þeir voru að hóta mér og ég
hringdi á lögregluna. Síðan réð-
ust þeir á mig,“ segir Yaman sem
er með áverka í andliti og segir
mörg vitni hafa verið að árás-
inni. Hlal Jarah, eigandi Mandy,
lýsir þó atburðarásinni á annan
hátt og segir Yaman hafa ætlað
að aka á bróður hans sem hafi
reiðst við það.
Hann segir bróður sinn einnig
ætla að leggja fram kæru á hend-
ur Yaman fyrir að hafa ráðist á
hann. Lögregla kom á svæðið
en þá höfðu sjónarvottar þegar
stöðvað átökin.
Yaman segir deilurnar mega
rekja til þess þegar upp úr sam-
starfi þeirra slitnaði. Yaman seg-
ist hafa borgað Hlal út úr staðn-
um en síðan fyrir þremur árum
hafi hann opnað Mandy við hlið
hans staðar, stolið matseðlinum
og selt réttina á lægra verði. Hlal
segir þetta ekki rétt.
„Þetta bara verður að stoppa.
Ég er ekki glæpamaður og er
bara að reyna að reka minn veit-
ingastað,“ segir Yaman sem er
annt um að hreinsa orðspor sitt
en Hlal segir hann ljúga þessu og
að hann hafi engu stolið.
Yaman fór á lögreglustöðina
í gær ásamt lögmanni sínum en
var þá sagt að hann gæti ekki
lagt fram kæru fyrr en á föstu-
dag.
viktoria@frettabladid.is
YAMAN Eigandi Ali Baba ætlar að leggja fram kæru á hendur fimm mönnum, meðal
annars eiganda Mandy sem er veitingastaður við hliðina á Ali Baba. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Veitingamenn slást í
miðbæ Reykjavíkur
Ráðist var á eiganda veitingastaðarins Ali Baba fyrir utan stað hans í gær og ætlar
hann að kæra fimm menn vegna árásarinnar. Deilur hafa verið milli eigenda Ali
Baba og Mandy síðan upp úr samstarfi þeirra slitnaði fyrir nokkrum árum.
Þetta verður bara að
stoppa. Ég er ekki glæpa-
maður og er bara að reyna
að reka minn veitingastað.
Yaman Brikhan, eigandi Ali Baba.
SKIPULAGSMÁL Gröndalshús var í gærkvöldi flutt á Vesturgötu 5b af
Granda þar sem það hefur verið í viðgerð frá 2010. Upphaflega stóð húsið
við Vesturgötu 16b.
Gröndalshús var byggt af Sigurði Jónssyni járnsmiði 1881 úr timbri
úr skipi sem rak mannlaust til Íslands og strandaði í Höfnum. Sigurður
rak járnsmiðju í húsinu til 1888 þar til Benedikt Gröndal flutti í húsið.
Reykjavíkurborg keypti húsið til varðveislu, en Minjavernd annast fram-
kvæmdir við nýjan grunn og flutning hússins. - srs
Húsið byggt úr timbri úr mannlausu skipi sem rak til Hafna:
Gröndalshús flutt á Vesturgötu
GRÖNDALSHÚS Húsið er kennt við Benedikt Gröndal. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REYKJAVÍK Geitburði er lokið í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
í Laugardal og alls komu þrett-
án kiðlingar í heiminn undan níu
huðnum.
Fram að geitburði var aðeins
einn hafur í fjárhúsinu í garð-
inum en nú er karlkynið komið í
meirihluta þar sem í kiðlingahópn-
um eru tólf hafrar en aðeins ein
huðna.
Hafurinn Djákni er faðir allra
kiðlinganna. Nú er í garðinum
bara beðið eftir sauðburði. -kbg
Karlkynið í meirihluta hjá geitum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum:
Tólf hafrar og huðna í heiminn
VOR Í HÚSDÝRA-
GARÐINUM Fjörugir
kiðlingar setja svip
sinn á húsdýra-
garðinn um þessar
mundir. Fram undan
er svo sauðburður.
MYND/HÚSDÝRAGARÐURINN
FANGELSISMÁL Um tuttugu til-
felli hafa komið upp þess efnis að
dómar sakborninga fyrnast áður
en afplánun hefst. Þetta kom fram
í máli Páls Winkel, forstjóra Fang-
elsismálastofnunar, á hádegisfundi
um stöðu fangelsismála sem laga-
deild Háskólans í Reykjavík stóð
fyrir í gær.
Fjárframlög til fangelsismála á
Íslandi hafa verið skorin niður um
25 prósent síðastliðin ár á meðan
verkefnum stofnunarinnar hefur
fjölgað samhliða. „Það er Alþingi
sem hefur klikkað að mínu mati.
Það er aldeilis ekki okkar fagráðu-
neyti, þar eru menn algjörlega á
tánum og vita nákvæmlega hvað
við erum að gera. Þar fáum við
alltaf stuðning,“ sagði Páll í sam-
tali við fréttastofu.
Þegar sakborningur hefur verið
dæmdur til refsingar fær hann
afhent bréf þar sem hann er boð-
aður til afplánunar en vegna pláss-
leysis hefur oft ekki verið hægt að
taka við föngum á tilsettum tíma.
Páll segir að ekki sé algengt að
dómar fyrnist á meðan sakborn-
ingar bíða afplánunar en slíkum
tilfellum hafi fjölgað undanfar-
in ár. Hann segir að ástandið sé
skammarlegt.
Kvennafangelsinu í Kópavogi
verður lokað í sumar og Hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg
um áramótin. Á móti verður nýtt
fangelsi á Hólmsheiði tekið í notk-
un. Páll telur að það muni létta
nokkuð undir en ekki koma að
fullu til móts við þarfir fangels-
isyfirvalda.
- gag / srs
Dæmi eru um að dómar fyrnist áður en sakborningar hefja afplánun:
Tuttugu hafa sloppið við fangelsi
FANG-
ELSISMÁL
Í ÓLESTRI
Verkefnum
fangels-
anna hefur
fjölgað.
FRÉTTABLAÐIÐ/
HEIÐA
HELGADÓTTIR
KJARAMÁL Formannafundur
Landssambands íslenskra versl-
unarmanna (LÍV) lýsir yfir
óánægju með hægagang kjara-
viðræðna og viljaleysi Samtaka
atvinnulífsins (SA) við að ná
ásættanlegri niðurstöðu.
Landssambandið lagði fram
kröfugerð 13. febrúar síðastliðinn
og fundaði nokkrum sinnum með
Samtökum atvinnulífsins síðan
án árangurs. Deilunum var vísað
til ríkissáttasemjara þann 17.
apríl síðastliðinn. - srs
Ekkert þokast í viðræðum:
Óánægð með
viljaleysi SA
STJÓRNSÝSLA Aðalfundur Lands-
virkjunar samþykkti í gær tillögu
stjórnar fyrirtækisins þess efnis
að greiða hluthafa félagsins 1,5
milljarða króna í arð. En ríkið er
eini hluthafi Landsvirkjunar.
Stjórnarformaður Landsvirkj-
unar, Jónas Þór Guðmundsson, og
varaformaður stjórnar, Jón Björn
Hákonarson, voru endurkjörnir
á fundinum auk stjórnarinnar.
Auk þeirra Jónasar og Jóns sitja
í stjórninni Helgi Jóhannesson
hæstaréttarlögmaður, Þórunn
Sveinbjarnardóttir, formaður
BHM, og Álfheiður Ingadóttir líf-
fræðingur. - srs
Arðgreiðsla samþykkt:
Ríkið fær 1,5
milljarða í arð
VEÐUR
2°
6
4
8
8
4
SJÁ SÍÐU 30
s. 588 2300
Gleðilegt sumar
2°
0°
-1°
-3°
Ekki mjög sumarlegt veður fyrir
norðan og austan í dag með frosti og
éljagangi, en víða sólríkt og kalt veður
sunnan til og því gott gluggaveður á þeim
slóðum.
Maðurinn
sem lést í
umferðarslysi
á Biskups-
tungnabraut á
þriðjudag hét
Hallgrímur Þ.
Magnússon.
Hallgrím-
ur var fæddur 29. september
1949, búsettur að Bjarkarbraut
18 í Reykholti í Biskupstung-
um. Hann lætur eftir sig eigin-
konu, fjórar uppkomnar dætur
og níu barnabörn.
Hallgrímur var læknir og
starfaði hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, bæði í Hveragerði
og á Selfossi.
- vh
Hallgrímur Þ.
Magnússon látinn