Fréttablaðið - 23.04.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 23.04.2015, Blaðsíða 6
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 www.lyfja.is Fyrir þig í Lyfju www.lyfja.is AlvoGenius DHA DHA er ein af Omega 3 fitusýrunum. Rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif DHA á vitsmunaþroska og athyglisgáfu barna ásamt bættri andlegri líðan mæðra. Fæst fyrir óléttar konur, konur sem stefna á þungun og börn frá þeim tíma sem þau fá fasta fæðu. Gefðu barninu forskot - DHA fitusýrur fyrir barnsheilann. www.netto.is Kræsingar & kostakjör HLAUPAHJÓL 2 HJÓLA 4.998 KR/STK HLAUPAHJÓL 3 HJÓLA 3.989 KR/STK FLUGDREKI-2 TEG 698 KR/STK Fjölbreytt úrval barnaleikfanga fyrir sumarið - á frábæru verði! DÓMSTÓLAR Hæstiréttur féllst í gær á ómerkingarkröfu ákæru- valdsins í Aurum-málinu svokall- aða. Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar og krafðist þess að héraðsdómur yrði ómerktur sökum ættartengsla Sverris Ólafssonar, sérfróðs meðdómanda í Aurum- málinu, við Ólaf Ólafsson, sem var á dögunum sakfelldur í Hæstarétti fyrir hlutdeild í umboðssvikum í Al Thani-málinu, en þeir eru bræður. Þetta þýðir að málið verður í heild sinni tekið aftur fyrir í Héraðs dómi Reykjavíkur, kalla þarf öll vitni fyrir að nýju og svo framvegis. Í málinu voru þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Lárus Welding, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson sýknaðir af ákær um um umboðssvik og hlutdeild í þeim. Þeir voru ákærð- ir fyrir umboðs- svik vegna sex milljarða króna láns sem Glitn- ir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd. Einn dómari málsins skilaði sératkvæði og taldi að sakfella ætti Lárus, Jón Ásgeir og Magn- ús Arnar. Upp komst um ættartengslin í fjölmiðlum eftir uppkvaðningu héraðsdómsins. Aðspurður sagð- ist Ólafur Þór Hauksson, sérstak- ur saksóknari, ekki hafa vitað af ættartengslunum. Sverrir tjáði sig í kjölfarið í fjölmiðlum um að hann hefði upplýst dómsformanninn um skyldleikann og að hann tryði því ekki að saksóknari hefði ekki vitað af tengslunum. Hæstiréttur taldi ummæli Sverris í fjölmiðlum gefa tilefni til að draga með réttu í efa að hann hefði verið óhlutdrægur í garð ákæruvaldsins fyrir uppkvaðn- ingu héraðsdómsins. Ólafur Þór segir í samtali við Fréttablaðið að niðurstaðan hafi verið fyrirsjáanleg. „Að sama skapi er það ekki gott þegar end- anlegar niðurstöður í málum drag- ast á langinn. En það blasir núna við að málið fer aftur fyrir héraðs- dóm og endurtaka þarf meðferðina þar,“ segir Ólafur Þór. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, segist vonsvikinn. „Ég á satt að segja engin orð til að lýsa skoðun minni á þessari niðurstöðu. Það liggur fyrir í þessu máli að meðdómarinn stóð í þeirri trú og hafði til þess fulla ástæðu, að orð reyndasta sakadómara landsins, dómsformannsins í málinu, að sér- stakur saksóknari væri bara ekki að skýra rétt frá þegar hann kann- aðist ekki við að hafa vitað af þess- um tengslum. Afleiðingin af þessu er að fjórir menn sem voru sýkn- aðir í héraði, og áttu von á að fá enda í sín mál á næstu mánuðum, verða að bíða enn eitt árið eftir nið- urstöðu í málinu. Minn skjólstæð- ingur í þessu máli, Jón Ásgeir, er nú þegar búinn að hafa réttarstöðu sakbornings í á þrettánda ár. Mér finnst þetta vera orðið bara alveg til vansa,“ segir Gestur. fanney@frettabladid.is Aurum-mál fer aftur fyrir héraðsdóm Hæstiréttur féllst í gær á að ómerkja héraðsdóm í Aurum-málinu svokallaða vegna ættartengsla og ummæla meðdómanda í málinu í fjölmiðlum. Sérstakur saksókn- ari segir niðurstöðuna fyrirsjáanlega. Verjandi segist ekki eiga til orð. Í kvöldfréttum RÚV þann 9. júní 2014 var rætt við Sverri Ólafsson, meðdómara í Aurum-málinu, um ættartengsl hans og viðbrögð sérstaks saksóknara sem sagðist ekki hafa verið kunnugt um þau. „Ég fór til dómarans, Guðjóns St. Marteinssonar, sagði honum frá tengslum mínum. Hann taldi að það væru ekki vandkvæði á því að ég tæki þetta að mér … Ég trúi því ekki í eina sekúndu að sérstakur saksóknari hafi ekki vitað af mínum tengslum strax í upphafi. Ef hann vissi ekki af mínum tengslum, þá ber það vott um afskaplega léleg og yfirborðskennd vinnubrögð. Mér finnst viðbrögð hans, sko, hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvæntingarfullar og jafnvel óheiðarlegar aðgerðir. Og hann grípur til þeirra á erfiðum tímum þegar að trúverðugleiki hans stofnunar er eiginlega í molum,“ sagði Sverrir. Orð meðdómarans í fjölmiðlum BYRJAÐ UPP Á NÝTT Allt Aurum-málið verður nú endurtekið í héraðsdómi þar sem dómsniðurstaðan hefur verið ómerkt vegna vanhæfis meðdómara. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON JEMEN Fáeinum klukkustundum eftir að Sádi- Arabía lýsti því yfir í gærmorgun, að loftárás- um á uppreisnarmenn í Jemen væri hætt, þá hófust loftárásir að nýju á hafnar borgina Aden. Fréttaskýrendur telja þetta þýða að dregið verði úr árásum, þótt ekki verði þeim hætt. Loftárásirnar hófust fyrir mánuði og hafa að sögn Rauða krossins valdið gríðarlegu tjóni og mannlegum harmleik í landinu. „Það hliðartjón sem orðið hefur á lífi og eign- um almennra borgara af völdum bæði loftárás- anna og bardaga á jörðu niðri er algjörlega skelfilegt, sérstaklega í borgunum Sana, Aden, Taíz og Marib,“ hefur Reuters- fréttastofan eftir Robert Mardini, yfirmanni Alþjóðanefnd- ar Rauða krossins í Norður-Afríku og Mið- Austurlöndum. Hann segir jafnframt að loftárásirnar hafi ekki skilað neinum þeim árangri, sem að var stefnt. „Pólitísku vandamálin sem eru rótin að mörgum þeim átökum sem nú standa yfir í Jemen hafa ekki verið leyst. Ekki er neitt sjá- anlegt sem bendir til þess að á næstu dögum muni draga úr átökum til frambúðar,“ segir hann. „Þetta á eftir að fara úr því að vera slæmt yfir í að versna enn frekar næstum því alls staðar í landinu.“ - gb Sádi-Arabar hófu loftárásir að nýju á Jemen, stuttu eftir yfirlýsingu um að þeim væri lokið: Loftárásirnar skilja eftir sig gríðarlegt tjón SPRENGJULEIT Jemenskir sprengju leitar menn tóku strax í gær til við að safna saman sprengjum og sprengjubúnaði í höfuðborginni Sana. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA FRAMKVÆMDIR Norska sendiráðið hefur feng- ið heimild byggingar- fulltrúans í Reykjavík til að skipta út þak- klæðningu úr asbesti fyrir bárujárn. Þekkt er að í asbesti eru krabbameins- valdandi efni. Hjalti Sigmundsson bygg- ingatæknifræðingur, sem sendi inn umsókn sendiráðsins, segir enga hættu á ferðum þótt rífa eigi upp asbestið og fjarlægja. „Það er ekkert að því að það sé asbest á þökum ef enginn hreyfir við því,“ segir Hjalti. „Það eru sérfræðingar sem vinna að þessu og hafa til þess tilskilin leyfi.“ - gar NORSKA SENDI- RÁÐIÐ Gamla þakið er á útleið. FRÉTTABLAÐIÐ/ PJETUR Viðhaldsvinna fyrir dyrum í norska sendiráðinu: Asbesti skipt út fyrir bárujárn SVONA ERUM VIÐ 2.500 hús á Íslandi, eða svo, sem eru 100 ára eða eldri eru friðuð sam- kvæmt lögum. ➜ Ekki liggur fyrir hvaða dómarar munu dæma í mál- inu fyrir héraðsdómi, aðeins einn upphaflegra dómara hefur verið talinn vanhæfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.