Fréttablaðið - 23.04.2015, Side 12
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
STJÓRNSÝSLA Eftirlitsstofnun EFTA
hefur gefið ívilnunaráætlun norskra
stjórnvalda grænt ljós um niðurfell-
ingu virðisaukaskatts á rafbíla.
Í rökstuðningi eftirlitsstofnun-
arinnar kemur
fram að fram-
lag Noregs til
baráttunnar
gegn auknum
útblæstri gróður-
húsalofttegunda
sé til fyrirmynd-
ar og skattalög-
gjöfin vel til þess
fallin að bæta enn betur um. Fjöldi
nýskráðra rafbíla í Noregi er hlut-
fallslega mestur í heiminum eða
um 12 prósent en til samanburðar
er það hlutfall 0,3 prósent í Evrópu-
sambandinu.
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins, tekur
undir það. „Norðmenn eru lang-
fremstir í rafbílavæðingu bílaflot-
ans. Þar eru langflestir rafbílar á
mann og fleiri ívilnanir en annars
staðar í heiminum.“
Þó svo að Norðmenn standi sig vel
er löggjöf á Íslandi mjög góð hvað
varðar hvata til fjárfestingar á raf-
bílum. Á Íslandi er ekki rukkaður
virðisaukaskattur á rafbíla né vöru-
gjöld. Þá greiða notendur heldur
engin bifreiðagjöld né stöðumæla-
gjöld. „Á Íslandi eru um 400 skráðir
rafbílar sem kann að hljóma lítið en
við verðum að hafa í huga að þetta
er tiltölulega nýtt fyrirbæri hér á
landi,“ segir Özur en hann bætir við
að sala á rafbílum sé á uppleið enda
séu þeir orðnir samkeppnishæfari
en áður.
Virðisaukaskattur og vörugjöld
á rafbíla voru felld niður á síðasta
kjörtímabili en lög um niðurfellingu
voru framlengd í desember í fyrra
og munu gilda til eins árs. - srs
Sala á rafbílum á Íslandi orðin jákvæðari eftir afnám vörugjalda og virðisaukaskatts á rafbíla árið 2012:
Norðmenn langfremstir í rafbílavæðingu
ÖZUR LÁRUSSON
FORSETINN Á RAFBÍL Á Íslandi eru um 400 skráðir rafbílar.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR JÓNASSON
Eins og fangelsi að missa samninginn
Samningar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) hafa ekki enn verið bundnir í lög sem úrræði fyrir fólk með fötlun.
Samningarnir eru enn þá tilraunaverkefni en notendur segja himin og haf milli lífsins fyrir og eftir NPA.
Nafn: HALLGRÍMUR EYMUNDSSON
Aldur: 37 ára
Starf: Tölvunarfræðingur, upplýsingatæknideild Reykjavíkurborgar
NPA-samningur: Allan sólarhringinn
Hallgrímur býr í Reykjavík og starfar sem tölvunarfræð-
ingur. Hann þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs. Hann
segir NPA hafa gjörbreytt lífi sínu. „Maður getur farið hvert
sem maður vill, hvenær sem maður vill án þess að vera
háður öðrum.“ Honum finnst muna miklu að velja sjálfur
það fólk sem aðstoðar hann. „Maður lenti alveg í starfsfólki
áður sem kom illa fram. Það var mjög sjaldgæft en það setur
mann í alveg rosalega vonda stöðu.“ Hallgrímur segist hafa
verið heppinn með starfsfólk síðan hann fékk NPA. „Þá fær
maður fólk sem hefur áhuga á að vinna hjá manni. Maður
tekur sjálfur starfsmannaviðtöl við fólk sem vill vinna hjá
manni en ekki hjá einhverju batteríi þar sem fólk er sent
hingað og þangað til einhvers og einhvers.
Sumarið sem ég byrjaði með NPA þá fékk ég í afmælis-
gjöf miða á Bræðsluna á Borgarfirði eystri frá systkinum
mínum. Þau vissu að ég væri að fara að fá þjónustu og nú
gæti ég loksins farið eitthvað svona. Þarna um sumarið
keyrði ég norður fyrir land og kom við í Skagafirði og hitti
fjölskylduna. Ég hélt áfram austur og gisti í tjaldi á hátíð-
inni en ég hafði ekki gist í tjaldi síðan ég var pínulítill strák-
ur. Að geta farið í svona ferðalag og farið á útihátíð á eigin
vegum, þetta lýsir kannski að einhverju leyti frelsinu sem
maður fær. Möguleikarnir eru gríðarlegir og tækifærin eru
mjög mörg. Þú getur tekið þátt í samfélaginu á allt annan
hátt en áður. Margir hverjir þurfa að læra smátt og smátt
hvernig er að fá svona mikið frelsi eftir að hafa verið heftir
í þjónustukerfinu.“
Hversdagslífið hefur líka orðið mun auðveldara fyrir Hall-
grím. „Maður getur gert svo miklu meira en samt er lífið
miklu afslappaðra. Maður þarf ekki að vera að spá í hvernig
maður passar best inn í þjónustukerfið svo maður geti mögu-
lega fengið aðstoð.“ Hallgrímur segir að það yrði gríðarlegt
áfall ef hann fengi ekki samning áfram. „Þegar maður hefur
fengið svona mikið frelsi þá væri það bara eins og að stinga
manni aftur inn í fangelsi.“
Gat loksins farið á
útihátíð
HALLGRÍMUR EYMUNDSSON Maður fær fólk sem hefur áhuga á að
vinna hjá manni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nafn: KOLBRÚN DÖGG KRISTJÁNSDÓTTIR
Aldur: 42 ára
Starf: Stundar mastersnám í fötlunarfræðum
NPA-samningur: 12 tímar á sólarhring
Kolbrún býr í Mosfellsbæ ásamt manni sínum og stundar nám
við Háskóla Íslands. Hún fékk fyrsta NPA-samninginn 2012
þá með færri tíma á sólarhring, en þeim hefur núna fjölgað
upp í 12.
„Aðstoðarfólkið mitt aðstoðar mig við allar athafnir daglegs
lífs, bæði heima við, í náminu, við að sinna erindum eins og að
fara út í búð og heimsækja vini,“ segir Kolbrún. Hún segir að
himinn og haf sé milli lífsins fyrir og eftir NPA. „Maður fékk
til dæmis bara aðstoð í bað einu sinni í viku, þú hefur ekki val
um hver aðstoðar þig við persónulegar athafnir, þetta var bara
algjör valdsvipting.“ Kolbrún hefur upplifað mikið frelsi eftir
að hún fékk NPA-samning. „Ég gat allt í einu gert hluti sem
aðrir telja sjálfsagða, eins og bara að fara niður á Laugaveg,
fara í göngu 1. maí og taka þátt í Gay pride. Aðstoðin áður
var bara bundin við heimilið. Helsta breytingin er að ég gert
hlutina og það er ekkert tiltökumál, ég er ekki háð aðstoð fjöl-
skyldu og vina.“
Kolbrún segir að það sé mikill munur að vera ekki alltaf
kvíðin fyrir því að komast ekki á staði og taka þátt í hlut-
um eins og aðrir á jafnréttisgrundvelli. Hún segir að það hafi
verið mikil viðbrigði fyrst eftir að hún fékk NPA-samninginn.
„NPA hefur bætt bæði heilsu mína og líðan. Þegar þú er með
heimahjúkrun þá þarft þú að beygja þig undir þjónustukerfið.
Maður er orðinn svolítið vanur að vera með NPA og ég er
ekki eins mikið að pæla í fyrir og eftir eins og áður. Fyrst eftir
að ég fékk samninginn var ég alltaf að taka myndir af mér að
gera hitt og þetta sem ég gat ekki áður. Þetta voru hlutir sem
flestum finnast sjálfsagðir eins og að fara á listasafn, versla
sumarblóm eða fara út á land í ferðalag eða á ættarmót með
fjölskyldunni.“ Kolbrún segir að það væri mannréttindabrot
ef NPA yrði lagt niður. „Fjölskyldulífið myndi flosna upp, fjöl-
skyldan yrði að aðstoða mig, ég yrði kannski að flytja á hjúkr-
unarheimili. En núna er ég bara að lifa mínu lífi eins og aðrir,
NPA gerir mér kleift að halda áfram mínu námi og komast út
á vinnumarkaðinn. Þetta er svo mikil breyting, þetta er orð-
inn hluti af lífi mínu.“
Þetta er orðinn
hluti af lífi mínu
KOLBRÚN DÖGG KRISTJÁNSDÓTTIR Það er mikill munur að vera
ekki alltaf kvíðin. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nafn: RAGNAR EMIL HALLGRÍMSSON
Aldur: 7 að verða 8 ára
Starf: Nemi í 2. bekk í Hraunavallaskóla
NPA-samningur: Allan sólarhringinn
Ragnar Emil býr í Hafnarfirði með mömmu sinni og
pabba og tveimur systkinum. Mamma hans, Aldís Sig-
urðardóttir, er heimavinnandi til að sinna Ragnari þar
sem NPA-samningurinn fullnægir ekki þörfum hans. „Við
fengum samning með óbreyttum starfsmanni en hann
þarf sérhæfðari þjónustu. Við borgum aukalega fyrir
hjúkrunarfræðing sem er með honum að hluta til í skól-
anum, annars er ég alltaf heima með starfsmanninum,“
segir Aldís. „Það þarf einhver að vera til taks allan sólar-
hringinn. Það eru í raun bara þrír morgnar í viku sem við
erum ekki saman.“
Aldís segir lífið hafa breyst mjög mikið eftir að Ragn-
ar fékk NPA-samning. „Samningurinn hefur breytt öllu í
okkar lífi. Nú þarf ég ekki að vaka yfir honum á nóttunni
og það breytir miklu fyrir mig. Maðurinn minn gat farið
að vinna fulla vinnu. Það sem skiptir samt mestu máli
fyrir mig er að ég fæ að ala Ragnar Emil upp, hann getur
verið heima hjá okkur.“ Áður en Ragnar Emil fékk NPA-
þjónustu var hann heima hjá sér að mestu leyti en fór í
skammtímavistun einu sinni í mánuði til að létta á álaginu
fyrir fjölskylduna. „Mér fannst mjög erfitt að skilja hann
eftir svo við börðumst fyrir því að fá samning, við fengum
fyrst beingreiðslusamning sem voru bara nokkrir tímar
á sólarhring. Það var svo árið 2012 sem hann fékk NPA.
Ég get ekki hugsað mér að fara til baka, ég sé ekki fyrir
mér hvernig það yrði.“ Hún bætir því við að hún vonist
þó til þess að það verði skoðað að þau fái fjármagn fyrir
hjúkrunarfræðingi. „Það stendur í samningnum um til-
raunaverkefnið að þeir sem þurfi sérstaka aðstoð eigi að
fá hana. Ragnar ætti að fá hjúkrunarfræðing en ég tók
mér smá pásu frá þeirri baráttu, maður er alltaf að berj-
ast. En ég ætla ekki að gefast upp.“
Maður er alltaf að
berjast
RAGNAR EMIL HALLGRÍMSSON OG ALDÍS SIGURÐARDÓTTIR Það
breytir miklu að geta sofið á nóttunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandra@frettabladid.is
ASKÝRING | 12
NOTENDASTÝRÐ PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA