Fréttablaðið - 23.04.2015, Síða 16
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
Forsætisráðherra
Þjóðlendur og ákvörðun
marka eignarlanda,
þjóðlendna og afrétta.
Nýting landsréttinda,
óbyggðanefnd o.fl.
Utanríkisráðherra
Framkvæmd samnings
um klasasprengjur.
Heildarlög.
Sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra
Byggðaáætlun og sóknar-
áætlanir. Heildarlög.
Dýrasjúkdómar og
varnir gegn þeim.
Leyfisveitingar og EES-reglur.
Framleiðsla, verðlagning og sala
búvöru o.fl. Umsjón og útgreiðsla
beingreiðslna.
Innflutningur dýra.
Erfðaefni holdanautgripa.
Félags- og húsnæðis-
málaráðherra
Húsaleigulög.
Réttarstaða leigjenda og
leigusala.
Húsnæðissamvinnu-
félög. Réttarstaða búseturéttarhafa
og rekstur húsnæðissamvinnufélaga.
Innanríkisráðherra
Dómstólar. Fjöldi
hæstaréttardómara.
Lögræðislög. Réttindi
fatlaðs fólks, svipting
lögræðis o.fl.
Meðferð einkamála o.fl. Aukin
skilvirkni, einfaldari reglur.
Norðurlandasamningur um erfðir
og skipti á dánarbúum.
Samgöngustofa og loftferðir.
Gjaldskrárheimildir og EES-reglur.
Siglingalög. Bótaábyrgð farsala
o.fl., EES-reglur.
Almannavarnir o.fl.
Valdheimildir stjórnvalda o.fl.
Tekjustofnar sveitarfélaga.
Sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði.
Vopnalög. Skoteldar, EES-reglur.
Mennta- og menningar-
málaráðherra
Höfundalög. EES-reglur,
munaðarlaus verk.
Höfundalög.
EES-reglur, lengri
verndartími hljóðrita.
Höfundalög. Einkaréttindi höfunda,
samningskvaðir o.fl., EES-reglur.
Heilbrigðisráðherra
Lyfjalög. Lyfjagát,
EES-reglur.
Sjúkratryggingar og
lyfjalög. Heilbrigðis-
þjónusta yfir landamæri,
EES-reglur)
Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni.
Heildarlög.
MÁL SEM EFTIR Á
AÐ MÆLA FYRIR
Gildi þjóðfánans og grænar baunir í
dós frá Ora. Um þetta ræddu alþing-
ismenn á þingfundi á þriðjudag. Vel
kann að vera að einhverjum þyki
þetta léttvægt umræðuefni í þeirri
stöðu sem nú er uppi í þjóðfélaginu.
Það gleymist þó oft í umræðunni um
störf þingmanna að þeir þurfa líka
að gefa sér tíma til að sinna málum
sem ekki eru upp á líf og dauða.
Starf þingmanna á ekki að vera ein-
tóm krísustjórnun. Fjölmargir heim-
ildarmenn Fréttablaðsins í hópi þing-
manna hafa þó sett spurningarmerki
við forgangsröðunina.
Eins og sjá má á listanum hér til
hliðar eru ýmis stórmál á dagskránni.
Mikið hefur verið rætt um húsnæðis-
frumvörp félagsmálaráðherra, en enn
er beðið tveggja þingmála ráðherra í
þeim málaflokki.
Ekki má nefnilega gleyma því að
ekki er búið að loka fyrir að ný mál
komi á dagskrá, þótt framlagning-
arfrestur sé útrunninn. Leita þarf
afbrigða til að hleypa málum á dag-
skrá, en þau eru oftar en ekki auð-
fengin.
Mikið hefur til að mynda verið rætt
um verðtrygginguna og hvernig verð-
ur dregið úr vægi hennar. Ekki er
annað að skilja á Bjarna Benedikts-
syni fjármálaráðherra að staðan á
þinginu bjóði ekki upp á svo stórt mál
fyrir þingfrestun.
„Ég skal ekki fullyrða um það hvort
við komum því að á þessu þingi, enda
á svo sem enn eftir að mæla fyrir um
tuttugu málum í fyrstu umræðu á
þessu þingi. Það verður handleggur
að ljúka þinginu, þó að við séum ekki
að bæta á nýju máli.“
En býst Bjarni við að hægt verði
að ljúka þeim málum sem þegar eru
komin fram?
„Já, við höfum svo oft staðið
frammi fyrir því að það séu allt að
100 mál óafgreidd þegar það er jafn-
vel vika, tíu dagar eftir af þingstörf-
um. Já, já, ég held að við munum
ljúka öllum okkar mikilvægustu
málum.“
Eins og Bjarni segir þarf fjöldi
mála ekki að þýða að ekki takist að
afgreiða þau. Þegar samkomulag
næst við stjórnarandstöðuna verða
málin afgreidd á færibandi, það er
venjan. Staðan nú gefur stjórnarand-
stöðunni hins vegar meira vald yfir
því hvaða mál fara í gegn. Og það
segir sig sjálft að minni málahraði
getur komið niður á fagmennsku.
Þarnæsta vika er nefndavika. Því
ríður á að afgreiða sem flest mál til
nefndar fyrir þann tíma svo nefndirn-
ar hafi úr einhverju að moða. Næsta
vika verður annasöm á Alþingi.
kolbeinn@frettabladid.is
Fjöldi bíður fyrstu umræðu
Alþingismenn ræddu þjóðfánann og grænar baunir á þriðjudag. Þingmenn setja spurningarmerki við forgangsröðun.
Enn á eftir að mæla fyrir 23 stjórnarmálum. Verður handleggur að ljúka þessu, segir fjármálaráðherra.
ÞINGAÐ Þrettán þingfundadagar eru eftir samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Einar K. Guð-
finnsson, forseti Alþingis, hefur lagt ríka áherslu á að hún haldi. Samkvæmt henni verður
þingfrestun 29. maí. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Frumvarp Ólafar Nordal
Frumvarp Ólafar Nordal innanríkis-
ráðherra um breytingu á lögum um
dómstóla er komið fram, en ekki
er búið að mæla fyrir því og það er
ekki komið á dagskrá þingsins. Sam-
kvæmt því á að fjölga dómurum við
Hæstarétt Íslands tímabundið um
einn frá og með 1. september.
„Er með þessum tillögum brugðist
við því mikla álagi sem enn er á
réttinum,“ segir í athugasemdum við
lagafrumvarpið. Fjölgunin á að vera
frá og með 1. september og á að falla
niður 31. desember 2016.
➜ Fjölgun dómara
í Hæstarétti
Frumvörp Eyglóar Harðardóttur
Eygló Harðardóttir, félags- og hús-
næðismálaráðherra, hefur lagt fram
tvö frumvörp um húsnæðismál.
Annars vegar frumvarp um húsa-
leigulög og hins vegar frumvarp um
húsnæðissamvinnufélög. Boðað
frumvarp um húsnæðisbætur og
frumvarp til laga um húsnæðismál
er hvorugt komið fram.
Heimildarmenn Fréttablaðsins
sögðu margir hverjir að óhægt væri
um vik að ræða aðeins tvö frumvörp
af fjórum. Þau mynduðu heildarmynd
um endurskoðun húsnæðiskerfisins.
➜ Tvö af fjórum
komin fram
Frumvarp Kristjáns Júlíussonar
Eitt frumvarpa Kristjáns Júlíussonar
heilbrigðisráðherra sem bíða
fyrstu umræðu fjallar um stað-
göngumæðrun í velgjörðarskyni. Um
gríðarlega viðkvæmt mál er að ræða
sem vekur upp miklar tilfinningar í
samfélaginu, enda hefur orðið mikil
umræða um málið.
Samkvæmt frumvarpinu er stað-
göngumæðrun í velgjörðarskyni að-
eins heimil við ákveðnar aðstæður.
Líkt og áður segir er málið umdeilt
og við því má búast að þingmenn
muni vilja ræða málið í þaula.
➜ Staðgöngumæðrun
í velgjörðarskyni
Guðlaugur
Þór Þórðarson
Um fall bankanna
Ég vildi vekja
athygli því að dr.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson birtir grein
í Morgunblaðinu í dag
þar sem hann fer yfir
stórmál, það hvert
tap þrotabúanna og
íslenska ríkisins hefur
verið eftir framgöngu
erlendra þjóða í kjölfar
bankahrunsins.
Kristján L. Möller
um Reykjavíkurflugvöll
og framkvæmdir við
Hlíðarenda
Virðulegi forseti.
Með því að fara svona
yfir þetta sjáum við
að það eiga allir sína
sögu. Það sem ég ætla
að segja í lokin er að
ég harma það mjög
að ríkisvaldið, sem
er eigandi að helm-
ingnum af landinu
þar sem Reykjavíkur-
flugvöllur er, skuli ekki
hafa kannað það að
setja lögbann á þá
framkvæmd sem hafin
er þar meðan Rögnu-
nefndin er að störfum.
ÞINGSJÁ
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
GJALLAR-
HORNIÐ
AF ÞIN
GPÖ
LLU
N
U
M
K
O
LB
EIN
N
Ó
T
TA
R
SSO
N
P
R
O
P
P
É
Vigdís Hauksdóttir
Um Reykjavíkurflugvöll
og framkvæmdir við
Hliðarenda
[...] Valsmenn fóru
af stað með það rót
sem nú birtist á Hlíðar-
enda þannig að það
er algjörlega búið að
hunsa þetta sem fram
hefur komið. Síðastlið-
inn desember var vísað
bréfi til Samgöngustofu
þar sem þess var farið á
leit að Samgöngustofa
myndi úrskurða. Það
hefur enn ekki orðið að
veruleika, virðulegi for-
seti. Nú eru 16 mánuðir
liðnir frá því að þessi
hringur um flugvöllinn í
Vatnsmýrinni hófst. Ég
spyr: Hvaða sleifarlag
er í gangi og hvernig
stjórnsýslu búum við
við?
Óhætt er að segja að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra
hafi hleypt fjöri í þingstörfin í óundir-
búnum fyrirspurnum í gær. Lengi vel
minnti umræðan reyndar á fjölmiðla-
gagnrýni, þar sem forsætisráðherra
tjáði sig um hverja fréttina á fætur
annarri í Fréttablaðinu, en það var
þó ekki það sem hleypti þingheimi
upp. Svo mikil eru völd Fréttablaðsins
ekki. Það voru ummæli hans um leka
úr samráðshópi um afnám hafta
sem ollu því að hver þingmaðurinn á
fætur öðrum sté í pontu undir liðnum
fundarstjórn forseta. Og ekki vantaði
gífuryrðin.
Havaríið átti upptök sín í svari
Sigmundar Davíðs við fyrirspurn
Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Pírata,
um afnám verðtryggingar og fleiri
stjórnaraðgerðir. Birgitta var reyndar
ekki sú eina sem spurði út í þessi
atriði, en margir þingmenn kvörtuðu
yfir samráðsleysi þegar kæmi að
stórum málum, eins og afnámi hafta.
Og þá byrjaði ballið. Forsætisráðherra
útskýrði meint samráðsleysi við
stjórnarandstöðuna um haftaafnám:
„Jafnframt er mikilvægt að upplýsa
fulltrúa flokkanna eins og nokkur
kostur er um gang mála, en þegar
menn lenda í því að upplýsingar
leka út af fundi, að því er virðist úr
nokkrum áttum, og menn jafnvel
rjúka í viðtöl til að túlka hlutina á
eigin hátt, þá hljóta menn að taka
tillit til þess í framhaldinu. Og hér sé
ég að háttvirtur þingmaður Árni Páll
Árnason, formaður Samfylkingarinnar,
biður um að fá að ræða fundarstjórn
forseta og það kemur mér ekki á
óvart í þessu tilviki.“
Og þar með varð allt vitlaust og
stjórnarandstaðan lýsti því yfir að til
lítils væri að eiga samráð við ríkis-
stjórnina.
Sigmundur Davíð hefur það til síns
máls að eftir fund samráðshópsins
í desember kvartaði formaður hans
undan leka. Það er hins vegar spurn-
ing hversu taktískt þetta var í þeirri
stöðu sem nú er uppi á þinginu og
það veltur á samningum við stjórnar-
andstöðuna að klára þingið.
Að hella olíu á eld– og bæta smá brennsluspritti við
➜ Forsætisráðherra
hleypti öllu í uppnám á þingi
í gær. Stjórnarandstaðan gæti
orðið tregari til samninga.