Fréttablaðið - 23.04.2015, Side 28

Fréttablaðið - 23.04.2015, Side 28
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR JÓNSSON bifreiðastjóri, Skúlagötu 44, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut, deild 11E, sunnudaginn 19. apríl. Hrund Jóhannsdóttir Jóhann Gylfi Gunnarsson Jóhanna Erlendsdóttir Rannveig Gunnarsdóttir Sigurður Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT KRISTÍN JÓNSDÓTTIR frá Holti á Síðu, sem lést 16. apríl sl., verður jarðsungin frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn 25. apríl nk. kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlegast láti Hjúkrunarheimilið Klausturhóla njóta þess. Kristín Marín Siggeirsdóttir Eysteinn G. Guðmundsson Anna Björg Siggeirsdóttir Kristinn E. Hrafnsson Þórarinn Björn Sigurjónsson Bjarney G. Blöndal Una Margrét Árnadóttir Örn Alexander Ámundason Guðmundur Gauti Eysteinsson Ólafur Eysteinn Eysteinsson Lilja Kristinsdóttir Bríet Þórarinsdóttir Blöndal Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR GUÐJÓNSSON Skipalóni 8, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi sunnudaginn 19. apríl. Jarðarför auglýst síðar. Elín Sigurðardóttir Steingrímur Páll Björnsson Guðjón Ágúst Sigurðsson Herborg Friðriksdóttir Bjarni Erl. Sigurðsson Rut Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnbörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, BERGUR V. JÓNSSON verslunarmaður, Skildinganesi 54, lést síðastliðinn mánudag. Jarðarförin verður auglýst síðar. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimer-félagið FAAS. Rut Árnadóttir Kári Bergsson Kolbrún Bergsdóttir Rakel Hlín Bergsdóttir Þórir Júlíusson og barnabörn. Elskuleg frænka okkar, ÓSK JÓNSDÓTTIR áður til heimilis að Snorrabraut 32, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 19. apríl sl. Útför hennar verður frá Áskirkju fimmtudaginn 30. apríl kl. 15. Systrabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HJALTI ÞÓRÐARSON frá Hróðnýjarstöðum, Gunnarsbraut 3, Búðardal, lést sunnudaginn 19. apríl á sjúkrahúsi Akraness. Útförin fer fram frá Hjarðarholts- kirkju í Dölum laugardaginn 2. maí kl. 15.00. Inga A. Guðbrandsdóttir Erna K. Hjaltadóttir Vésteinn Arngrímsson Bára Hjaltadóttir Magnús Arngrímsson Ólafur Guðjónsson Smári Hjaltason Sævar Hjaltason María Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri BOGI ÞÓRIR GUÐJÓNSSON lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þann 19. apríl sl. Útför hans fer fram frá Digranes- kirkju mánudaginn 27. apríl kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarkort hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar. Sjöfn Sigurjónsdóttir Guðjón Bogason Heiða Bogadóttir Robert Ickes Sólveig Bogadóttir Páll Einarsson Þórunn Bogadóttir Heba Bogadóttir Þórhallur I. Hrafnsson Linda Lea Bogadóttir og aðrir ástvinir. „Hugmyndin snýst um að miðla fróð- leik um fimmtán konur sem voru á lífi árið 1915,“ segir Guðrún Jónsdóttir, forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarð- ar, um sýningu sem verður opnuð þar við hátíðlega athöfn í dag klukkan 15. „Við höfum fengið muni senda víða að og þó sýningin sé ekki stór þá er hún djúp. Fjölskyldur kvennanna hafa skil- að inn myndum, textum og munum og þær ætla líka að fjölmenna á opnunina sem er mikill heiður fyrir okkur.“ Konur eru sérstaklega dregnar fram að þessu sinni í tilefni afmælisárs kosn- ingaréttar þeirra, að sögn Guðrúnar. En hvernig skyldu þessar fimmtán hafa verið valdar? „Fyrst horfðum við á nöfn 300 kvenna og völdum lista á eina A4-síðu, úr því urðu 40 nöfn. Okkar starfssvæði er frá rótum Snæfellsness að Hvalfirði og við vildum velja á sýn- inguna konur af öllu svæðinu. Það var örugglega eitthvað aðdáunarvert í fari allra kvennanna 300 og erfitt að velja bara 15 úr en núna finnst okkur þær vera hópur vinkvenna okkar, við erum búin að lesa um þær, skoða myndir af þeim og hlusta á sögur af þeim.“ Guðrún segir konurnar fimmtán merkar á margan hátt og nefnir dæmi. „Ein fæddist 1862 í blárri fátækt, eins og svo margar formæður okkar, en keypti sér jörð, varð sjálfstæður bóndi og byggði þar upp húsakost. Önnur var með öflugan veitingarekstur, stundum á þremur stöðum í einu og með fullt af fólki í vinnu. Ein var fórnarlamb þess hugsunarháttar að það þyrfti að taka börnin af fólki sem ekki var sjálfstætt fjárhagslega, hún eignaðist sjö börn en fékk bara að hafa eitt hjá sér að stað- aldri, hin fóru í fóstur á bæi, svo og svo margra vikna gömul. Ein er fulltrúi þeirra sem unnu hjá öðrum allt sitt líf og var vinnukona á sama bænum í ára- tugi og tvær öfluðu sér menntunar og gerðust far- og heimiliskennarar.“ Skyldu einhverjar heimildir vera til um hvort þær kusu? „Við höfum komist að því að þær voru hugsandi og áhuga- samar um sitt ytra umhverfi og erum sannfærð um að allar eru góðir fulltrú- ar kvenna sem löngu fyrir 1915 voru verðugar þess að fá að kjósa.“ gun@frettabladid.is Eitthvað aðdáunarvert í fari allra kvennanna Á sýningunni Gleym þeim ei sem opnuð verður í Safnahúsi Borgarfj arðar í dag er sögð saga fi mmtán kvenna sem voru uppi þegar íslenskar konur fengu kosningarétt árið 1915. FORSTÖÐUMAÐURINN „Núna finnst okkur þær vera hópur vinkvenna okkar,“ segir Guðrún um konurnar fimmtán sem eru í fókus á sýningunni í Borgarnesi. Við opnun sýningar- innar Gleym þeim ei verða hátíðar- tónleikar, uppskeru- hátíð verkefnis sem Safnahús vinnur að ásamt Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Þar frumflytja nemendur skólans eigin verk og yngsta tónskáldið er einungis sex ára gamalt. Þetta er þriðja árið í röð sem þessar stofnanir vinna saman í safna- og skólastarfi. ➜ Uppskeruhátíð EIN MYNDANNA Theodóra Sveinsdóttir veitingakona í Reykholti (fremst fyrir miðju) ásamt starfsfólki sínu. „Við viljum hressa fólk með góðri blöndu af vorvítamíni eftir langan og strangan vetur,“ segir Vigdís Hafliðadóttir hress um skemmtun Hamrahlíðarkóranna sem fagna sumri með söng í hátíðasal Menntaskólans í Hamrahlíð í dag, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Fyrst klukkan 14 og aftur klukkan 16. Efnisskráin á að vekja með öllum vorhug og gleði, að sögn Vigdísar. Hún segir þar blöndu gamalla gersema og nýrra, til dæmis sumar- og ættjarðar- lög sem allir ættu að geta tekið undir. Auk söngs og hljóðfæraleiks verður gestum boðið í dans við fjörugan leik salsabands og svo verður markaður í suðrænum stíl. Einnig verður bangsa- og dúkkuspítali, vísinda- og tilrauna- stofa, skátahorn og ljósmyndastofa. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð er nýkominn úr tónleikaferð um Suður- og Suðausturland og Hamrahlíðarkórinn, kór eldri nemenda, býr sig undir þátt- töku í Europa Cantat, stærstu og viða- mestu kórahátíð Evrópu í Ungverja- landi. Á milli tónleikanna og á eftir verða seldar kaffiveitingar og ágóðinn rennur í ferðasjóð kóranna. - gun Vilja vekja vorhug og gleði gestanna Kórarnir í Hamrahlíð fagna sumarkomu í hátíðarsal MH í dag. Ókeypis er inn. ÞJÓÐLEGT Hamrahlíðar- kórinn er góður fulltrúi Íslands hvar sem hann kemur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.