Fréttablaðið - 23.04.2015, Blaðsíða 30
FÓLK|
Demeulemeester og Rick
Owens.
Bestu kaupin? Mér finnst
græni pelsinn virkilega góð
kaup.
Verstu kaupin? Það er ekkert
sem mér dettur í hug sem verstu
kaupin. En ég er nokkuð viss
um að eftir nokkur ár á ég eftir
að líta til baka og hugsa: „Hvað
í fjandanum var ég að kaupa
þennan græna pels?“ og kannski
verður hann þá verstu kaupin.
Hverju verður bætt við
fataskápinn fyrir sumarið? Hef
ekki hugmynd um hverju verður
bætt við í fataskápinn í sumar en
ég á pottþétt eftir að næla mér í
nokkur sólgleraugu og helling af
sólarvörn. Reyndar langar mig í
sundföt frá lonely!
Hvers konar fylgihluti not-
arðu? Ég nota yfirleitt lítið af
skarti, er oft með nælu í eyranu
en annars verða sólgleraugu og
hattar oftast fyrir valinu.
Áttu þér tískufyrirmynd? Ég
á alveg nokkrar tískufyrirmyndir,
langamma mín er mjög flott en
svo lít ég meðal annars upp til
Karls Templer, Kalla L, Tims Wal-
ker, Sally Man og Stevens Klein.
Alexander McQueen var ástin í lífi
mínu, en núna er það Kanye West.
Kjóll, pils eða buxur? Buxur.
Stutt eða sítt? Misjafnt.
Háir hælar eða flatbotna?
Flatir.
Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla
Íslands fer fram í dag klukkan 17 í
Hörpu, Flóa. Þetta er í fyrsta sinn
sem tískusýningin fer þar fram. Und-
anfarna daga og vikur hafa nemend-
ur fatahönnunardeildarinnar lagt
allt kapp á að klára og lítið hefur
verið um svefn.
„Það hefur verið stutt milli hlát-
urs og gráts, allar tilfinningar ýktar
og við erum bara orðin eins og litlir
krakkar aftur. Það fyrsta sem ég geri
eftir helgina, verður að sofa,“ segir
Birkir Sveinbjörnsson, einn þeirra
sem útskrifast úr fatahönnun.
„Þetta er nefnilega ekki búið í
kvöld þegar tískusýningunni lýkur
því á morgun verður yfirferð með
prófdómurum og svo setjum við
fötin upp á sýningunni niðri í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, á
Laugardag þegar útskriftarsýning
Listaháskólans verður opnuð. Þar
verður hægt að skoða fötin og horfa
á myndbönd sem sýna vinnslu verk-
anna og myndbönd frá tískusýning-
unni sjálfri,“ útskýrir Birkir.
Alls útskrifast níu nemendur úr
fatahönnun og hafa þeir notað síð-
asta ár til að vinna lokaverkefnið.
„Öll þessi önn hefur snúist að
mestu leyti um lokaverkefnið en
við vorum byrjuð að hugsa þetta
allt saman á síðustu önn líka. Finna
„mood“ til að vinna með og leita að
textíl til að vinna úr. Hópurinn fór
meðal annars á hússtjórnarskólann
á Blönduósi og lærði að vefa og
ýmis legt fleira,“ segir Birkir.
Þau sem útskrifast úr fatahönnun
auk Birkis eru Andrés Pelaez, Andri
Hrafn Unnarson, Ásrún Ágústs-
dóttir, Elsa Vestmann Kjartans-
dóttir, Halldóra Sif Guðlaugsdóttir,
Helga Lára Halldórsdóttir, Ingibjörg
Íris Ásgeirsdóttir og Kristín Sunna
Sveinsdóttir.
Tískusýningin er opin öllum og
er aðgangur ókeypis. Herlegheitin
hefjast kukkan 17.
SEFUR EFTIR HELGI
ÚTSKRIFTARSÝNING LHÍ Níu nemendur útskrifast úr fatahönnun frá Lista-
háskóla Íslands í ár. Þeir sýna afrakstur vinnu sinnar í Hörpu í dag.
TILFINNINGASVEIFLUR Stemningin hefur að sögn Birkis verið rafmögnuð á lokametr-
unum og stutt milli hláturs og gráts. MYND/VALLI
UPPSKERUHÁTÍÐ Nemendur hafa undirbúið lokaverkefnið síðustu vikur og mánuði. Afraksturinn má sjá í Hörpu klukkan 17.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Gleðilegt sumar
Flott föt, fyrir flottar konur
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Lokað í dag,
Sumardaginn fyrs
ta
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-16
Nýtt kortatímabil
TÍSKAFÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur
og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429