Fréttablaðið - 23.04.2015, Síða 34
Sumargrill FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 20152
Grilluð Klaustursbleikja
(fyrir 4)
Keyrið á löglegum hraða út í
Hagkaup, til dæmis í kjötborðið í
verslun þeirra í Garðabæ. Kaupið
þrjú góð flök af Klausturs bleikju.
Keyrið heim á leið og aðeins
hraðar núna þar sem vaktaskipti
standa yfir hjá lögreglunni, en ekki
mjög hratt þó.
Takið grillbakka og setjið álpappír
í botninn og hliðarnar, komið
bleikjunni fyrir og kryddið hana
með til dæmis „Best á fiskinn“ og
svolítið vel af Garlic Powd er frá
McCormick. Hellið slatta af Extra
Virgin-ólífuolíu yfir flökin og látið
standa í um eina klukkustund, jafn-
vel lengur.
Labbið með bakkann út á pall eða
svalir, horfið vel niður fyrir ykkur
svo þið hrasið ekki í stiganum eða
tröppunum (algengt vandamál á
mínu heimili).
Komið bakkanum fyrir á grillinu
sem búið er að hita fyrirfram á
mesta hita og lokið því svo. Þetta
tekur um 9-11 mínútur og þá er
bleikjan tilbúin. Látið hana standa í
3-4 mínútur áður en hún er snædd
og þá gjarnan með kaldri grillsósu,
helst frá Kjötkompaníi í Hafnarfirði,
og góðu salati.
Mátulega köld flaska af Sauv ignon
Blanc-hvítvíni gerir þessa upplifun
enn betri fyrir þá sem stunda slíkt.
Tónlistarmaðurinn góðkunni Eyjólfur Kristjánsson er mikill matgæðingur og
þykir fátt skemmtilegra en að
grilla góðan mat í skemmti-
legum félagsskap. Það var þó
ekki fyrr en árið 2001 sem hann
eignaðist fyrsta grillið, eða rétt-
ara sagt helming í grilli, þegar
hann kvæntist eigin konu sinni.
„Fyrir þann tíma hafði ég aldrei
átt grill en við giftinguna má
segja að ég hafi eignast helm-
inginn í grillinu hennar. Það
var nú svo sem ekki merki-
legt, þetta fyrsta grill okkar
hjóna, en þarna hófst grill-
sagan sem stendur enn yfir
og mun vonandi standa yfir
í mörg ár.“
Hann segir ýmis grill
hafa komið og farið gegn-
um árin sem liðin eru,
bæði stór og smá, en alltaf
hafi verið mikil stemning í
kringum grilltíma fjölskyld-
unnar enda miklir matgæð-
ingar þar á ferð og unnend-
ur góðs grillmatar. Ýmiss konar
kjötmeti er vinsælast á grillinu
að sögn Eyjólfs þótt stöku
sinnum detti á það
eitthvað annað
eins og f isk-
ur og jafnvel
kjúklingur.
„Ég sló svo heldur betur í gegn
hjá fjölskyldunni fyrir einhverju
síðan þegar mér datt í hug að
grilla bleikju einn góðan veður-
dag. Sá réttur er í miklu upp-
áhaldi á heimilinu og allir
hlakka til þegar hann er á boð-
stólum. Nú standa yfir f lutn-
ingar hjá fjölskyldunni og ætli
maður noti ekki tækifærið og
festi kaup á nýju grilli enda er
grillið okkar orðið allslappt verð
ég að segja.“
Ekki tækjakall
Eyjólfur segir erfitt að lýsa þeirri
tilfinningu sem hellist yfir hann
þegar hann grillar. „Mér sýnist
þetta vera nokkurs konar drottn-
unartilfinning. Þegar svuntan er
komin yfir bumbuna og grill-
spaðinn kominn í hönd, þá fær
maður svona einræðisherra-
heilkenni! En þetta er allt-
af skemmtilegt og ekki síst
þegar vel viðrar á mann-
skapinn.“
Hann er nægjusamur
þegar kemur að grilltækj-
um og tólum. „Ég legg frek-
ar áherslu á
góðar tang-
ir, verk lega
spaða og nú
síðast vandaða
grillbursta eftir að ég
drap næstum félaga minn Stefán
Hilmarsson.
Þá var hann í grillveislu heima
hjá mér og það stóð í honum vír úr
grillburstanum sem hafði laum-
að sér í T-beinssteikina hans. Sem
betur fer komst hann á spítala við
illan leik og bjargaðist.
Ekki veit ég hver hefði átt að
syngja með mér „Nínu” ef illa hefði
farið. Því hvet ég fólk endilega að
kanna ástand vírburstanna áður
en teinar eru hreinsaðir.“
Einræðisherrann við grillið
Þótt Eyjólfi Kristjánssyni þyki gaman að grilla eignaðist hann sitt fyrsta grill seint á lífsleiðinni. Ýmiss konar kjötmeti er vinsælast hjá
fjölskyldunni en grilluð Klaustursbleikja telst þó til hátíðarrétta heimilisins. Hann er nægjusamur þegar kemur að tækjum og tólum.
„Ég legg frekar áherslu á góðar tangir, verklega spaða og nú síðast vandaða grillbursta,“
segir Eyjólfur Kristjánsson. MYND/GVA
Kjötbankinn | Flatahrauni 27 | 220 Hafnarfirði
565 2011 kjotkbankinn@kjotbankinn.is