Fréttablaðið - 23.04.2015, Side 41
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2015 3Meistaranám á Bifröst ●
Háskólinn á Bifröst er leiðandi í
fjarkennslu á Íslandi, sérsniðinni
að þörfum nemenda þar sem bland-
að er saman fræðilegri kennslu og
hagnýtri verkefnavinnu.
Námið fer að jafnaði fram í sjö
vikna lotum með krefjandi og raun-
hæfum verkefnum sem skipulögð
eru af úrvalsliði kennara úr há-
skólasamfélaginu og atvinnulífinu.
Í hverju námskeiði er boðið upp
á vinnuhelgar á Bifröst þar sem
unnið er með námsefnið og kafað
dýpra með kennurum og samnem-
endum. Unnið er í sameiningu með
námsefnið á hagnýtan hátt og farið
yfir mikilvægustu þættina til að
dýpka skilning og efla samstarf.
Meistaranám í forystu og stjórnun er fjöl-
breytt og krefjandi nám fyrir fólk sem vill
búa sig undir forystu- og stjórnunarstörf og
fyrir þá sem vilja styrkja sig og efla sem
stjórnendur og leiðtogar. Námið gefur nem-
endum hagnýta þekkingu og dýpkar fræði-
legan skilning á árangursríkri forystu.
Auk þess undirstrikar og styður námið
við hlutverk Háskólans á Bifröst sem er
m.a. að undirbúa fólk fyrir forystustörf í at-
vinnulífi og samfélagi og því eru fjölbreyttir
áfangar í boði sem mynda bæði fræðilegan
og hagnýtan grunn. Meðal annars er sérstök
áhersla á þjónandi forystu, margar ólíkar
kenningar innan leiðtogafræðanna, sam-
skipti og samskiptahæfni.
FORYSTA OG STJÓRNUN SLÆR Í GEGN
Meistaranám í forystu og stjórnun hóf
göngu sína síðasta haust og hefur hlotið
frábærar viðtökur og metaðsókn.
Námið er einstakt í sinni röð og hvergi
annars staðar á Íslandi er í boði meistara-
nám í leiðtogafræðum.
MS-MLM í forystu og stjórnun
Góður leiðtogi nær betri árangri
Meistaranám í forystu og stjórnun er fyrir fólk sem vill búa sig undir forystu- og stjórnunarstörf og þá sem vilja styrkja sig og efla sem stjórnendur og leiðtogar.
Elínrós Líndal,
hjá Samtökum
iðnaðarins.
Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar.
Steinþór
Pálsson,
bankastjóri
Landsbank-
ans.
Meistaranám í alþjóðaviðskipt-
um er fjölbreytt og krefjandi
nám sem ætlað er að búa nem-
endur undir ábyrgðar-, for-
ystu- og stjórnunarstörf í at-
vinnulífinu. Sérstök áhersla er
á stefnumótun og markaðssetn-
ingu nýrra viðskiptahugmynda
að erlendum mörkuðum, þjálf-
un nemenda í að meta tækifæri
með gagnrýnum hætti til úrbóta
og sóknar á meginsviðum þeirra
fyrirtækja sem þeir starfa fyrir.
„Það mikilvægasta fyrir
stjórnendur á hverjum tíma eru
upplýsingar um aðferðir og leið-
ir til að ná bættum árangri í
rekstri fyrirtækja. Meistaranám
í alþjóðaviðskiptum við Háskól-
ann á Bifröst byggist á hagnýt-
um fræðigreinum sem kenndar
eru af metnaðarfullu fagfólki og
mun efla hæfni mína og sjálfs-
traust til að takast á við krefj-
andi verkefni í alþjóðlegu við-
skiptaumhverfi.“
– Stefán Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Guðmundar Jón-
assonar
MS-MIB
í alþjóða-
viðskiptum
Tækifærin leynast víða
Stefán Gunnarsson Fjarnám með sterk
tengsl við atvinnulífið
Góðir gestir á vinnuhelgum á Bifröst
Bjarni Bjarna-
son, forstjóri
Orkuveitu
Reykjavíkur.
Námið er
skipulagt af
úrvalsliði kennara úr
háskólasamfélaginu og
atvinnulífinu.
Opið nám – þú ræður ferðinni!
Háskólinn á Bifröst býður upp á opið nám þar sem hægt er að
skrá sig í stök námskeið í fjarnámi á viðskipta- og félagsvísinda-
sviði. Opið nám er tilvalið fyrir þá sem vilja bæta og auka þekk-
ingu sína með meistaranámi á sínum eigin hraða samhliða vinnu.
Markmið okkar er að
undirbúa og efla
nemedur fyrir forystustörf í
atvinnulífi og samfélagi.
Þannig þjónum við bæði
nemendum og samfélaginu