Fréttablaðið - 23.04.2015, Blaðsíða 42
23. APRÍL 2015 FIMMTUDAGUR4 ● Meistaranám á Bifröst
Laganám á Bifröst veitir
sömu réttindi að loknu
meistaraprófi og laganám í
öðrum háskólum á Íslandi.
Megináhersla er lögð á nám í
kjarnagreinum lögfræðinnar
ásamt þeim greinum
viðskiptafræðinnar sem
tengjast rekstri og fjármálum.
Námið er sérsniðið að þörfum nem-
enda sem lokið hafa grunnnámi í
almennri lögfræði eða viðskipta-
lögfræði og vilja hasla sér völl á
hefðbundnum starfsvettvangi lög-
fræðinga.
Markmið ML-náms í lögfræði
er að veita nemendum trausta,
fræðilega þekkingu á sviði lög-
fræði með áherslu á þjálfun fræði-
legra og hagnýtra þátta sem snúa
að lögmannsstörfum og almennum
ráðgjafar- og lögfræðistörfum.
Möguleikar viðskiptalögfræð-
inga að loknu námi eru margvís-
legir og er námið góður undirbún-
ingur fyrir krefjandi störf í at-
vinnulífinu. Flestir kjósa að ljúka
ML-gráðu í lögfræði og uppfylla
nemendur að henni lokinni almenn
menntunarskilyrði til að gegna
störfum dómara og málflytjenda.
LÖGFRÆÐINÁMIÐ Á BIFRÖST
HEFUR NÝST MÉR TIL FULLS
Ingvar Christiansen er útskrifað-
ur lögfræðingur frá Háskólanum á
Bifröst en starfar núna hjá Lands-
virkjun. „Lögfræðinámið á Bifröst
hefur nýst til fulls og reynst mér
mjög hagnýtt og gagnlegt í störf-
um mínum. Hvort sem um er að
ræða þá fræðilegu þekkingu sem
nemendur öðlast eða færni við að
leysa krefjandi verkefni eða fram-
komuþjálfun og mikil mannleg
samskipti, þá eru þetta allt þætt-
ir sem gagnast Bifrestingum í at-
vinnulífinu.“
Ingvar starfar sem lögmaður og
lögfræðilegur ráðgjafi hjá Lands-
virkjun og segir að starfsnám hafi
verið lykillinn að því starfi. „Hluta
af ML-náminu á Bifröst var hægt
að taka sem starfsnám. Ég valdist í
það verkefni að vera starfsnemi hjá
Landsvirkjun. Í kjölfarið var mér
boðið sumarstarf hjá fyrir tækinu
og svo koll af kolli. Ég er ekkert
einsdæmi þegar kemur að því að Bi-
frestingar fái framtíðarstörf í kjöl-
far starfsnáms og því vil ég hvetja
alla Bifrestinga sem hafa tök á því
að nýta sér starfsnám þar sem það
er í boði.“
TÍMAMÓT Í ÍSLENSKRI RÉTTARSÖGU
Guðfinnur Stefánsson útskrifað-
ist frá Háskólanum á Bifröst með
ML-gráðu í lögfræði og var nýlega
settur til að gegna embætti héraðs-
dómara við Héraðsdóm Reykja-
víkur. Guðfinnur er fyrsti dómar-
inn við íslenskan dómstól sem ekki
er útskrifaður frá Háskóla Íslands.
„Það er mikið ánægjuefni að lög-
fræðingur frá Háskólanum á Bif-
röst skuli ná þessum áfanga. Það
var einmitt Háskólinn á Bifröst
sem reið á vaðið og hóf að veita HÍ
öfluga samkeppni í laganámi árið
2001. Við lítum á þessi tímamót sem
staðfestingu á gæðum námsins sem
hér er boðið upp á og vitnis burð um
það öfluga starf sem unnið er á lög-
fræðisviði Háskólans,“ segir Helga
Kristín Auðunsdóttir, sviðsstjóri
lögfræðisviðs Háskólans á Bifröst.
LAW WITHOUT WALLS
Lögfræðisvið Háskólans á Bif-
röst er með í alþjóðlegu samstarfi
bestu lagadeilda í heimi sem geng-
ur undir nafninu Law Without
Walls. Markmið þess er að bregð-
ast við breyttri stöðu lögfræðinga á
atvinnumarkaði og umbylta þekkt-
um aðferðum við lögfræðikennslu.
Verkefnið miðar að því að nemend-
ur fái víðari sýn á fræðin og nýti
menntun sína í auknum mæli til ný-
sköpunar.
Auk Háskólans á Bifröst taka
meðal annars þátt virtir skólar á
borð við Harvard og Stanford og á
hverju ári tilnefnir Bifröst nokkra
nemendur til þátttöku í verkefninu.
ML í lögfræði – Lögfræðingar með nýja sýn
Ingvar
Christiansen
Guðfinnur
Stefánsson
Lögfræðisvið
Háskólans á Bifröst
á í alþjóðlegu
samstarfi bestu
lagadeilda í heimi
sem gengur undir
nafninu Law With-
out Walls. Markmið
þess er að bregðast
við breyttri stöðu
lögfræðinga á
atvinnumarkaði og
umbylta þekktum
aðferðum við lög-
fræðikennslu.
Kynning á meistaranámi
Háskólans á Bifröst
Dagskrá:
Kl. 16.00 Menningarstjórnun MA
Kl. 16.15 Alþjóðleg stjórnmálahagfræði MA
Kl. 16.30 Forysta og stjórnun MS / MLM
Kl. 16.45 Alþjóðaviðskipti MS / MIB
Kl. 17.00 Lögfræði ML
- hvar sem þú ert og hvert sem þú stefnir
Föstudaginn 24. apríl kl. 16 að Hverfisgötu 4-6.
Umsóknarfrestur er til 15. maí
Til viðbótar við
kjarnagreinar í
lögfræði læra útskrifaðir
nemendur frá Bifröst
ýmislegt annað sem er
ekki kennt annarsstaðar,
t.d. að geta lesið
ársreikninga og þekkt
ýmis lykilhugtök í
rekstri fyrirtækja