Fréttablaðið - 23.04.2015, Page 44

Fréttablaðið - 23.04.2015, Page 44
KYNNING − AUGLÝSINGSumargrill FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 20158 Fyrir árið 1985 var Weber lítið fyrirtæki í Norður-Ameríku sem var þekkt fyrir fram- leiðslu á kolagrillum. „Weber var þekkt fyrir kolagrillin sín frá því að stofnandinn, George Steph- en, fann upp og hannaði fyrsta kúlu kolagrillið árið 1952 sem þótti mikil bylting á þeim tíma,“ segir Sævar Þ. Guðmundsson, starfsmaður Járns og glers, um- boðsaðila Weber á Íslandi. Hann segir Weber hafa viljað gera betur með sitt fyrsta gasgrill en aðrir á markaðnum. „Öll gasgrill á þess- um tíma höfðu steina eða hraun- mola til að dreifa hitanum og til að reyna að ná því bragði sem kola- grill gefur en þeir höfðu þann galla að drekka í sig alla fitu sem svo kviknaði í og brenndi það sem verið var að grilla. Þetta vildu hugmyndasmiðir Weber leysa og koma með eitthvað nýtt.“ Lausnin fundin Eftir mikla hugmyndavinnu, próf- anir og margar feitar steikur grill- aðar töldu þeir sig vera komna með lausnina; V-laga járn með nákvæmlega réttum halla til að taka við fitunni sem rann síðan niður framhjá brennurunum og niður í bakka sem safnaði saman allri fitu. Þegar fitan lenti á heitum járnunum þá myndaðist reykur sem gaf bragð í það sem verið var að grilla. „Einn daginn var borin fram steik fyrir George Steph- en, grilluð á þessu nýja gasgrilli sem var í hönnun og þegar hann sagði: „Þetta er það sem ég kalla alvöru kolagrillaða steik!“ þá voru þeir fullvissir um að rétta lausn- in var fundin,“ útskýrir Sævar. Á þessum þrjátíu árum hefur Gen- esis-grillið tekið ýmsum út- litsbreytingum, en það sem þótti mesta byltingin með þessu nýja grilli, bragðburst- irnar, fitusöfnunarbúnaðurinn og aðrir hlutir sem þóttu nýj- ungar á þeim tíma eru enn óbreyttir. Þrjátíu ár á markaði Í ár eru liðin þrjátíu ár síðan Genesis-grillið frá Weber kom fyrst á markað. Segja má að grillið hafi markað upphafið að því stórfyrirtæki sem Weber er orðið í dag. Fyrsta Genesis-grillið frá Weber frá árinu 1985. Sævar Þ. Guðmundsson hjá Járni og gleri við nýtt Weber-grill. MYND/ERNIR Grænmeti á grillið Margt grænmeti bragðast einstaklega vel grillað og passar vel við flest allt kjöt- og fiskmeti. Grillmeistarar landsins ættu því endi- lega að prufa sig áfram í vor og sumar með sem fjölbreyttustum tegundum sem í boði eru hérlendis. Grillaður kúrbítur er til dæmis frábært meðlæti en hann er skorinn þversum í nokkrar tæplega 0,5 cm þykkar sneiðar. Þær eru penslaður með olíu og kryddaður með salti og pipar eða öðru kryddi. Hentar vel með flestu kjöti og fiski. Grillaðar gulrætur gætu virst framandi en þær bragðast vel með flestum grillmat. Þá er gott að nota stærri gulrætur og sneiða þær þversum í nokkrar sneiðar. Þær eru fyrst settar í sjóðandi vatn í 1-2 mínútur, kældar og því næst penslaðar með olíu og kryddaðar að smekk áður en þær eru settar á grillið. Grillaðir ferskir maísstönglar eru frábært meðlæti með kjöti og sem aðalréttur. Ysta lagið er hreinsað af og þeir lagðir í bleyti í 10 mínútur. Næst eru þeir penslaðir með olíu og kryddaðir eftir smekk en salt og pipar er klassísk blanda. Stönglarnir eru grill- aði í 10-15 mínútur og passa þarf að snúa þeim reglulega svo allar hliðar grillist. Venjulegt smjör eða gott kryddsmjör fullkomn- ar svo eldamennskuna. Ef ferskir stönglar fást ekki má bjarga sér með frosnum. Ferskur aspas er sérstaklega ljúffengur með flestu kjöti. Honum er velt upp úr olíu, kryddaður með salti og pipar og grillaður skamma stund á vel heitu grilli. Hreggviður Ársælsson, graf-ískur hönnuður og grillari með meiru, grillar allan ársins hring og segist gera það svo lengi sem það sé ekki sunnan þrjá- tíu stormur. „Ég ólst upp við það að það var mikið grillað á heim- ilinu. Þó það væri snjór langt upp í mitti á Akureyri þar sem ég bjó þá var snjórinn bara mokaður frá og grillið notað.“ Hreggviður segir grillmat ein- faldlega vera besta matinn enda grillar hann alla vega tíu sinnum í mánuði. Hann segir að það sé allt- af hægt að grilla, ef veðrið er brjál- að þá klæðir hann sig bara betur. „Ég grilla um það bil alltaf þegar mig langar til, það er engin regla á því. Fólki fannst merkilegt að ég væri meira að segja farinn að grilla ostaslaufur, en þetta er bara eins einfalt og hægt er. Ég stekk bara út á pall og grilla þær þannig að það kemur meiri stemning í þær og þær verða betri við morgunverð- arborðið,“ segir hann og brosir. Ostaslaufur eru ekki það eina sérstaka sem Hreggviður hefur grillað því í fyrrasumar datt honum í hug að skella snjókrabba á grillið. Krabbinn var að vísu for- soðinn en Hreggviður segir það hafa skapað ákveðna stemningu að hita hann á grillinu. „Fólk ætti endilega að hugsa út fyrir kassann og prófa sig áfram, ekki alltaf grilla bara það sama. Það besta sem ég fæ til dæmis er grilluð hrossalund, jafnvel beikonvafin. Það gleymist hins vegar oft í grillheiminum að einföldustu mínútusteikur sem kosta varla neitt geta verið hinn besti matur ef þær eru matreidd- ar og grillaðar rétt. Ef til dæmis nautamínútusteikum eða svína- snitseli er leyft að liggja í góðum legi þá brotnar það niður og verð- ur mjög skemmtilegt, meyrt undir tönn og bragðgott.“ Hreggviður á erfitt með að gefa uppskrift að góðri steik því upp- skriftirnar eru aðeins í höfðinu á honum sjálfum og í þeim eru hlutföll óljós og aðallega „dass- að“. „Ég á mikið af uppskriftabók- um sem ég styðst við en mér finnst skemmtilegra að brjóta allar upp- skriftir upp. Mér finnst gaman að sjá í uppskriftum að það sé hægt að fara aðrar leiðir sem mér finnst alltaf skemmtilegra að fara. Þegar ég grilla rautt kjöt þá er það ein- falt, bara salt og pipar og ekkert meira með því. Þegar ég er með svínakjöt eða kjúkling þá leik ég mér meira með olíur, edik, rauð- víns- eða bjórblöndur.“ Grillar meira að segja ostaslaufur Grillið og verið glöð er hálfgert mottó hjá Hreggviði Ársælssyni enda grillar hann allan ársins hring. Honum finnst grillmatur vera bestur og hefur gaman af því að bjóða vinum heim til sín til að njóta góðra stunda og matar. Pepperoni-pitsa Lambahryggur Teriyaki-spjót og uppáhaldsbjór Hregg- viðs sem honum finnst gott að drekka á meðan hann grillar. Kofta kebab. Hreggviður er duglegur að taka myndir af matnum og setja þær á Instagram. Hreggviður er hrifinn af kolagrillinu en segir gasgrillið vera hentugra á heimilinu. Hann notar kolagrill þegar hann er á ferðalögum og hefur tíma en væri til í að eiga hvort tveggja heima hjá sér.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.