Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.04.2015, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 23.04.2015, Qupperneq 58
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34 BÆKUR ★★★ ★★ Flekklaus Sólveig Pálsdóttir JPV-ÚTGÁFA Flekklaus er þriðja bók Sólveigar Pálsdóttur um lögguteymið Guð- geir, Særós og Andrés, sem við þekkjum úr bókunum Leikarinn og Hinir réttlátu. Hér er Guð- geir í aðalhlutverki, nýkominn úr strangri krabbameinsmeðferð og í upphafi sögu í hvíldarfríi í Smá- löndum Svíþjóðar. Það frí snýst þó upp í andhverfu sína þegar hann er dreginn inn í óleyst sakamál frá 1985, mál sem stendur honum mun nær en lesandann getur grun- að lengi framan af. Er óhætt að segja að öll tilvera lögreglumanns- ins geðþekka snúist á hvolf með ævintýralegum vendingum sem kannski eru ekki sérlega trúverð- ugar en ná þeim tilgangi sínum að halda lesandanum við efnið og fá hann til að halda áfram að fletta. Sagan er haganlega smíðuð, glæpamálið úr fortíðinni fléttast vel inn í frásögnina úr nútíðinni og hvörfin í seinni hlutanum koma gjörsamlega á óvart. Lesandinn kynnist Guðgeiri nánar en í fyrri bókum, enda fer meirihluti sög- unnar fram á hans heimavelli og inn í hana dragast eiginkona hans og börn. Það er því snjallt bragð hjá höfundinum að gera hann tor- tryggilegan og fá lesandann til að efast um heilindi hans. Það er nú einu sinni einn kröftugasti drif- kraftur glæpasagna að lesandinn „standi með“ aðallöggunni og láti sig örlög hans eða hennar varða. Upp á það skortir ekkert hér. Stærsti veikleiki sögunnar felst hins vegar í hinni aðalper sónunni, Kirsten hinni sænsku, sem getur seint talist sannfærandi persóna. Til þess er hún of einhliða og hvat- inn að framkomu hennar við Guð- geir er því miður ekki sérlega sannfærandi, sem dregur töluvert úr spennunni. Það er alltaf slæmt þegar lesandinn stendur sig að því að fnæsa háðslega yfir því hversu ótrúverðug frásögnin er. Flekklaus tekur þó á ýmsum málum sem full ástæða er til að draga fram; hinum íslenska klíkuskap sem getur jafnvel forð- að glæpamönnum frá refsingu, átökum eiginmanns við sjálfan sig eftir að hafa freistast til framhjá- halds, þeirri stefnu fjölmiðla að taka æruna af fólki í beinni útsendingu og fleira mætti nefna. Allt hið besta mál og sýnir að Sól- veigu liggur ýmislegt á hjarta sem full ástæða er til að fylgjast með. Af niðurlagi þessarar sögu er ljóst að hún hefur hvergi nærri lokið sér af með sögu Guðgeirs og það verður spennandi að sjá á hvaða slóðir hún leiðir hann næst. Það er vaxandi trend í norræn- um glæpasögum að gera glæp- inn sjálfan nánast að aukaatriði en beina kastljósinu þess í stað að afleiðingum hans á þá sem á ein- hvern hátt tengjast honum. Flekk- laus sver sig svikalaust í þá ættina og gerir það ágætlega, þótt eflaust megi um það deila hvort afleiðing- arnar sem þar er lýst séu sann- ferðugar eður ei. Hver var ann- ars að halda því fram að krimmar ættu að vera trúverðugir? Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Flekklaus er ekki flekklaus glæpasaga en innsýn í líf og forsögu löggunnar Guðgeirs gerir hana áhugaverða og heldur lesand- anum við efnið. ➜ Sagan er haganlega smíð- uð, glæpamálið úr fortíðinni fléttast vel inn í frásögn- ina úr nútíðinni og hvörfin í seinni hlutanum koma gjörsamlega á óvart. Þessi bévítans fortíð ★★ ★★★ Tectonics Upphafstónleikar Tectonics. Fram komu Sarah Kenchington og SLÁTUR. Í NORÐURLJÓSUM Í HÖRPU FIMMTUDAGINN 16. APRÍL Það er gaman að skoða hvernig menn sáu fyrir sér framtíðina í gamla daga. Flugbílar voru alger- lega gefins og vélmenni á hverju strái. Eða þá að fyrirbæri úr sam- tímanum voru ýkt út í það óendan- lega. Í framtíðarmyndinni Brazil (1985) eftir Terry Gilliam var allt morandi í pípum og slöngum. Ef það þurfti að senda skeyti á milli skrifstofa, þá var bréfi pakkað inn í lítið hylki og það sent með ofur- hraða eftir einni pípunni. Brazil kom upp í huga mér á upphafstónleikum tónlistarhátíð- arinnar Tectonics í Norðurljósum í Hörpu síðdegis á fimmtudaginn. Tectonics er helguð nútímatónlist og er núna haldin í fjórða sinn. Á tónleikunum lék Sarah Kench- ington á heimasmíðuð hljóðfæri ásamt tónlistarhópnum SLÁTUR. Það er skammstöfun fyrir Sam- tök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík. Pípur og slöngur voru aðall hljóðfæranna. Meðal annars höfðu slöngur verið festar á ýmiss konar málmblást- urshljóðfæri og tónar myndaðir með því að stíga á loftpumpur. En bíðum við. Tónar? Megnið af þeim tónum sem framkallaðir voru á tónleikunum voru miklu meira í ætt við óyndisleg búkhljóð en tóna eins og á venjulegum tón- leikum. Ég ætla ekki að ganga svo langt að kalla tónlistina prump, en fögur var hún ekki. Þetta var fyrst og fremst samansafn af óhljóð- um sem voru miður skemmtileg áheyrnar. Það sem gaf tónleikunum gildi var sjónræna hliðin. Heimasmíð- uðu hljóðfærin voru eins og vél- búnaður í gamalli framtíðarkvik- mynd. Eitt þeirra var t.d. keyrt áfram með tveimur pedölum eins og reiðhjól. Sarah Kenchington sem áður var nefnd steig pedal- ana, og mekanisminn strauk fiðlu, pumpaði lofti í lúður og barði trommu. Þetta var einn hræri- grautur af vírum og slöngum. Rétt eins og í Brazil. Ekki er hægt að neita því að tónleikarnir voru fyndnir. Eitt það skondnasta var þegar þrír náungar gengu meðfram áheyr- endabekkjunum í myrkrinu. Skórnir þeirra voru físibelgir og slöngur gengu út úr þeim. Hvert fótatak blés loftinu í lúðra sem var haldið á. Þar á meðal var risastór túba. Hljóðfæraleikararnir vou eins og stökkbreyttir óskapnaðir úr framtíðinni. Líkt og fyrirbæri sem höfðu orðið fyrir geislavirkni en neituðu að deyja. Nú er það svo að ný hljóðfæri þurfa ekki að hljóma hræðilega. Á Bíófilíu-tónleikum Bjarkar Guð- mundsdóttur voru mörg ný hljóð- færi. Eitt var risavaxin spiladós, annað var pendúll með strengj- um, það þriðja framkallaði tóna með eldingum. Hljóðfærin gáfu tónlistinni framandi yfirbragð og útkoman var heillandi. Það vant- aði svona listrænan metnað hér. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Sjónræna hliðin var áhugaverð, en sú tónræna ekki. Stökkbreyttur óskapnaður HEIMASMÍÐI Á tónleikunum lék Sarah Kenchington á heimasmíðuð hljóðfæri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Umsóknarfrestur er til 10. maí 2015. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila rafrænt á menningarsjodur@skriduklaustur.is. Menningarsjóður Gunnarsstofnunar hefur tvíþættan tilgang: að renna stoðum undir starfsemi Stofnunar Gunnars Gunnarssonar á Skriðuklaustri með árlegum framlögum; og að styðja rithöfunda, listamenn, fræðimenn og námsfólk til verka er samræmast hlutverki Gunnarsstofnunar. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að áherslan árið 2015 verði lögð á: Til úthlutunar eru kr. 1.000.000 og gerir sjóðsstjórn ráð fyrir að úthluta til að hámarki 3ja verkefna. Hægt er að nálgast úthlutunarreglur og umsóknareyðublað á www.skriduklaustur.is ásamt frekari upplýsingum um sjóðinn. Tilkynnt verður um styrkhafa á fæðingardegi Gunnars Gunnarssonar, 18. maí, á Skriðuklaustri. Stjórn Menningarsjóðs Gunnarsstofnunar Í dag kl. 17 verða tónleikar í Norðurljósasal Hörpu undir heitinu Slétt og brugðið, konur í hundrað ár. Þar syngja saman kórarnir Vox feminae, Hrynj- andi, Cantabile og Aurora. Stjórn- andi verður Margrét Pálmadótt- ir og einsöngvarar þau Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran og Maríus Sverrisson baritón. Margrét segir þær hafi vilj- að leggja áherslu á að lofsyngja formæðurnar í tilefni af hund- rað ára kosningaréttarafmæli kvenna á Íslandi. „Tilefnið er að fagna formæðrunum. Það er algjört lykilatriði og af því tilefni fóru allar þessar frábæru konur í myndaalbúmin og söfnuðu saman gríðarlegu magni mynda af íslenskum konum, lífi þeirra og sögu. Þessu verður varpað upp á tjald fyrir tónleikagesti á meðan þeir eru að koma sér fyrir í salnum. Á tónleikunum sjálfum erum við svo að syngja gamlar perlur sem ég þekki vel úr mínu upp- eldi frá síðustu öld. Við ætlum að syngja íslensku rómantíkina og Diddú ætlar að syngja Viki- vaka sem var samið fyrir hana á sínum tíma. Það gleður mig alveg sérstaklega að hún ætli að vera með okkur því við erum sömu kynslóðar og fyrir mér er þetta smá nostalgía að ylja sér við.“ Þegar kórarnir fjórir verða komnir á svið í Norðurljósasaln- um má búast við að um hundrað og þrjátíu konur verði komnar inn á svið. Margrét segist þó ekki óttast fjöldann. „Langt í frá. Ég er vön að stjórna stórum kórum og það er bráðskemmtilegt. Það koma alls konar blæbrigði í tón- listina og öðruvísi kraftur. Þetta er í raun alveg rosalegt hljóð- færi. Ég ætla að hita upp með því að stjórna Stúlknakór Reykja- víkur kl. 14 með 110 frábærum stúlkum. Kórinn er einmitt tutt- ugu ára um þessar mundir og það verður líka sumarlegt og skemmtilegt.“ magnus@frettabladid.is Hundrað og þrjátíu konur syngja inn sumarið Fjórir stórir kvennakórar koma saman á tónleikum í Hörpu í dag í tilefni af hundrað ára kosningaréttarafmæli kvenna, undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. MENNING STJÓRNANDINN Margrét Pálmadóttir ætlar að stjórna kvennakórum á tvennum tónleikum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.