Fréttablaðið - 28.11.2017, Síða 12

Fréttablaðið - 28.11.2017, Síða 12
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Líklega hefur ekkert haft jafn mikil áhrif á líf mannanna og tölvur, snjallsímar, internetið og samfélags- miðlar. Á dögunum fengum við þær fréttir að átak um læsi í grunnskólum Reykjavíkur hefði engu skilað. Enn og aftur voru það skólarnir sem sátu uppi með Svarta-Pétur. Satt best að segja finnst mér þessi umræða orðin heldur hvimleið. Skólarnir geta ekki séð einir um lestrarkennsluna, foreldrar þurfa að vera fyrirmyndir og sýna bókmenningu og lestri áhuga til að árangur náist. Mér segir svo hugur að lestrarfærni okkar foreldr- anna hnigni stöðugt og að þar liggi vandinn ekki síst. Margir kaupa ekki bækur og lesa lítið sem ekkert. Það er alkunna að ríkuleg bókmenning á heimili hvetur unga sem aldna við lesturinn. Sú stefna nútímans að fleygja bókum, þannig að bækur eru gerðar útlægar af heimil- um, er ekki góð. Í allmörg ár hafa margir sjónvarpsþættir um tísku og hönnun sýnt ótalin glæsiheimili á Íslandi án bóka enda minna þau mörg hver frekar á dauðhreins- aða tannlæknastofu en hlýlegt heimili. Hættum að kenna skólunum um hnignandi læsi, hefjum lestrarátak á vinnustöðum og í samfélaginu. Lestur er samstarfsverkefni heimilis og skóla og hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á heimanámi þá þarf reglulegur lestur að vera hluti af daglegum venjum okkar. Hér er umfram allt um að ræða samstarfsverk- efni heimilis og skóla. Verkefnið er svo umfangsmikið að skólinn getur aldrei einn og óstuddur leyst það sómasamlega af hendi. Lesturinn þarf því að byggjast á samstarfi kynslóðanna. Kannski mætti hugsa sér að Samtök atvinnulífsins stæðu fyrir gæðastundum og stuðluðu þannig að öflugri símenntun þar sem starfsmenn fengju tækifæri til að ræða bóklestur og bókmenningu í vinnutím- anum. Áðurnefnd samtök hafa oft sterkar skoðanir á skólamálum. Með átaki um læsi á vinnustöðum gætu þau sýnt hug sinn í verki. Að endingu legg ég til að foreldrafélög grunnskól- anna standi fyrir lestrarátaki fyrir foreldra samhliða því sem börnin eru hvött áfram við lesturinn. Torlæsi þjóðar – á ábyrgð margra Verkefnið er svo umfangs- mikið að skólinn getur aldrei einn og óstuddur leyst það sómasamlega af hendi. Lesturinn þarf því að byggjast á samstarfi kynslóð- anna. Guðjón Ragnar Jónasson kennari 01 Smærri viðgerðir Hraðþjónusta HEKLU. Hringdu í 590 50 30 eða renndu við. Hekla.is Í ein fimmtíu ár hafa Íslendingar kvartað yfir klukkunni. Tímareikningi var breytt árið 1968 eftir háværar kröfur um að öllu hringli með klukkuna skyldi hætt fyrir fullt og allt og komið var á föstum tíma árið um kring. Þannig var klukkunni flýtt um eina klukkustund og Íslendingar stilla nú úrin, eða snjallsímana öllu frekar, eftir alheimstíma. Á síðustu tuttugu árum hafa þingmenn lagt fram þrjú lagafrumvörp og fimm tillögur til þingsálykt- unar sem miða að því að færa tímareikning til betra horfs. Sumir vilja flýta klukkunni enn frekar, aðrir vilja seinka henni aftur. Heilbrigðisráðherra hefur nú skipað starfshóp til að kanna ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan lands- manna af því að leiðrétta klukkuna til samræmis við gang Sólar. Samkvæmt upplýsingum Landlæknis sofa 44,2 prósent Íslendinga skemur en sjö klukkustundir að jafnaði og 18,9 prósent sofa skemur en sex klukku- stundir. Að sofa ítrekað skemur en átta klukkustund- ir dregur úr árvekni, viðbragðstíma og framleiðni. Svefnskortur hefur verið tengdur við offitu, sykur- sýki, hjartasjúkdóma og háþrýsting. Íslendingar eru ekkert einsdæmi í þessum efnum. Skortur á svefni er viðvarandi vandamál í flestum vestrænum ríkjum. Bjartari morgnar fylgja seinkun klukkunnar, en um leið dimmir fyrr síðdegis. Þetta hefur ýmsa augljósa kosti í för með sér, en hvort breytingin komi til með að hafa mikil áhrif á svefnvenjur er með öllu óljóst. Þetta gamla deilumál er í engum tengslum við veruleikann og þau miklu vandamál sem fylgja minni svefni. Er ekki líklegra að ein umfangsmesta breyting á samfélagsgerð mannanna frá upphafi hafi eitthvað að gera með þetta vandamál? Líklega hefur ekkert haft jafn mikil áhrif á líf mannanna og tölvur, snjallsímar, internetið og samfélagsmiðlar. Blá birta frá tölvu- og snjalltækjaskjáum hægir á framleiðslu melatóníns sem fínstillir lífsklukku okkar. Að halda því fram að sólarljós ráði fyrst og fremst líkamsklukku nútímamannsins er einfaldlega ekki rétt. Það hvernig við stillum klukkuna hefur lítið með vandamálið að gera. Hins vegar má færa sannfærandi rök fyrir því að lífsstíll hafi meiriháttar áhrif á svefn- venjur okkar. Talsmenn þess að seinka klukkunni hafa vísað til Nóbelsverðlauna í lífeðlis- og læknisfræði á þessu ári en þau hlutu þrír vísindamenn fyrir einstakar rannsóknir sínar á dægurklukkunni. Þessar mikil- vægu grunnrannsóknir undirstrika það hvernig allar lífverur eru þrælar Sólarinnar og hversu mikilvægt það er að samþætta innri og ytri klukku. Að halda því fram að þetta flókna samband megi bæta ein- faldlega með því að breyta tímareikningi er mikill misskilningur. Klukkustund til eða frá Stuðningur við Katrínu Stuðningsmenn Katrínar Jakobsdóttur létu rannsóknar- fyrirtækið Zenter gera skoðana- könnun á vinsældum hennar og vilja fólks til að fá hana sem næsta forsætisráðherra. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að Katrín mælist með yfir- burða stuðning í það embætti. Óljóst er hins vegar hvers vegna stuðningsmennirnir létu gera könnunina. Nærtækasta skýr- ingin er kannski sú að stuðn- ingsmennirnir hafi verið að fá Katrínu vopn í hendur þegar kæmi endanlega að skiptingu ráðuneyta á flokkana í stjórnar- myndunarviðræðunum. Snýst ekki um kyn Rithöfundurinn Auður Jóns- dóttir skrifar að Katrín Jakobs- dóttir sé eldklár og hún muni hafa roð við hvaða karli sem er. Augljóst er að rithöfundinum þykir sú gagnrýni sem Katrín hefur fengið vegna stjórnar- myndunarviðræðnanna við Framsóknarflokkinn og Sjálf- stæðisflokkinn ómakleg. Það er líklegast rétt. Gagnrýnin hefur hins vegar ekkert með kyn Katrínar að gera. Málið snýst miklu frekar um það að Katrín skynjar ábyrgð stjórnmála- manna á því að mynda þarf sterkan meirihluta eftir hverjar kosningar, á meðan gagn- rýnendur hennar hafa ekki tilfinningu fyrir þeirri ábyrgð. jonhakon@frettabladid.is 2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r12 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.