Fréttablaðið - 30.10.2018, Blaðsíða 49
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Hauks Arnar
Birgissonar
BAKÞANKAR
2. nóvember 2018
Alþjóðlegi
samlokudagurinn
2 fyrir 1
Áður fyrr voru samskipti kynjanna einfaldari og maður hafði færri leiðir til
að tjá sig. Ef enginn svaraði í heima-
símann þá prófaði maður bara
aftur daginn eftir. Smáskilaboðin
voru skrifuð á miða, sem var svo
látinn ganga um kennslustofuna.
Ástarbréfinu var laumað ofan í
skólatöskuna og kveðjunni var svo
fylgt eftir í útvarpinu um kvöldið.
Þótt samfélagsmiðlar hafi að
mörgu leyti fært okkur nær hvert
öðru þá hafa þeir einnig kynt undir
ágreiningi og verið gróðrarstía
hatrammra orðaskipta. Ég er ekki
frá því að með tilkomu þeirra hafi
samskipti fólks hreinlega beðið
skipbrot.
Sérstakar spjallsíður eru nú
settar upp í þeim eina tilgangi að
hæðast að hinu kyninu og svívirð-
ingunum er gefinn laus taumurinn.
Af umræðunum er ekki annað að
sjá en til séu tvær tegundir fólks –
karlar og konur. Þetta eru svarnir
andstæðingar sem heyja blóðuga
baráttu á hverjum degi – allir skulu
berjast áfram þar til annað kynið
stendur eftir, sigri hrósandi. Ég
velti því fyrir mér hvort fólkinu,
sem þarna kemur saman, finnist
hegðun sín vera til eftirbreytni.
Hvort það telji sig vera fyrirmyndir
barna sinna – sem er alltaf fínn
mælikvarði á eigin hegðun.
Í minningunni voru samskipti
fólks vandaðri og ég minnist þess
ekki að fólk hafi haft sömu þörf
fyrir að koma rætinni hugsun á
framfæri. Ef maður hafði ekkert
gott að segja þá sleppti maður því
bara. Það nennti enginn að leggja
sig fram við að svívirða aðra. Ekki
veit ég hvort þessu fólki hefur
fjölgað eða hvort samfélagsmiðl-
arnir hafa kallað það fram úr
fylgsnum sínum. Hvort sem er, þá
er þetta fólk ekki að gera merkilega
hluti.
Fólk sem gerir
ómerkilega hluti