Fréttablaðið - 30.10.2018, Blaðsíða 42
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
30. OKTÓBER 2018
Tónlist
Hvað? Haukur Gröndal Kvartett á Kexi
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex hostel, Skúlagötu
Á djasskvöldi Kex hostels í kvöld,
30. október, kemur fram kvartett
saxófónleikarans Hauks Gröndal.
Auk hans skipa hljómsveitina þeir
Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Sigmar
Þór Matthíasson á kontrabassa
og Erik Qvick á trommur. Á efnis-
skránni eru vel valdir djassslagarar
úr amerísku söngbókinni með sér-
staka áherslu á sveiflu og almennan
hressleika. Tónlistin hefst kl. 20.30
og er aðgangur ókeypis. Kex hostel
er á Skúlagötu 28.
Viðburðir
Hvað? The Dawn Wall – Kvikmynda-
sýning
Hvenær? 20.00
Hvar? Bíó Paradís, Hverfisgötu
The Dawn Wall er mynd sem klif-
urheimurinn hefur beðið spenntur
eftir í yfir þrjú ár, en hún fjallar
um eitt af stærri afrekum klifur-
heimsins, þegar þeir Tommy Cald-
well og Kevin Jorgeson frí klifruðu
Dawn Wall vegginn á El Capitan
í Yosemite, klifur sem áður þótti
óhugsandi. Þeir Tommy og Kevin
toppuðu vegginn í janúar 2015, en
aðdragandi áfangans var áralangur
ásetningur, vinna og þrautseigja í
bland við hina ýmsu tilfinninga-
legu tálma í einkalífi Tommys, sem
að lokum reyndust á sinn hátt hvati
til þess að fríklifra Dawn Wall.
Hvað? Eru konur auðveldara skot-
mark?
Hvenær? 20.00
Hvar? Arion banki, Borgartúni
Eru konur auðveldara skotmark?
Í kvöld, 30. október, veltum við
þeirri spurningu upp og ræðum
meðal annars af hverju konur
virðast oft fá harðari og öðruvísi
umfjöllun í fjölmiðlum en karlar, af
hverju það er erfiðara að fá konur í
viðtöl og hvers vegna það er vegið
öðruvísi og oft á persónulegri hátt
að konum en körlum.
Hvað? Fræðslufundur um útgreiðslur
úr lífeyrissparnaði – Arion banki
Hvenær? 16.30
Hvar? Arion banki, Borgartúni
Að mörgu er að hyggja þegar kemur
að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og
af því tilefni bjóðum við til opins
fræðslufundar í höfuðstöðvum
bankans í Borgartúni 19.
Hvað? Garðabær árið 1918
Hvenær? 18.00
Hvar? Bókasafn Garðabæjar
Ísland á 100 ára fullveldisafmæli
í ár. Af því tilefni langar okkur að
bjóða upp á erindi um hvernig
Garðabær var árið 1918. Hvað var
að gerast hér á því herrans ári?
Steinar J. Lúðvíksson, sem m. a. tók
saman bókina Saga Garðabæjar: frá
landnámi til 2010, ætlar að fræða
gesti.
Hvað? Unglingurinn minn og ég
Hvenær? 20.00
Hvar? Seljakirkja
Fræðsluerindi fyrir alla foreldra.
Fjallað verður um hvernig efla má
tilfinningastjórnun í samskiptum
foreldra og unglinga meðal annars
út frá jákvæðri sálfræði. Auk þess
verða leiðir til aukinnar félagsfærni
unglinga skoðaðar sem liður í for-
vörnum. Fyrirlesari er Elín Elísa-
bet Jóhannsdóttir, markþjálfi og
meistaranemi í jákvæðri sálfræði og
fjölskyldumeðferð. Fyrirlesturinn
er öllum opinn og enginn aðgangs-
eyrir.
Hvað? Krúttasálmar
Hvenær? 16.30
Hvar? Háteigskirkja
Krúttasálmar eru skemmtilegar
söng- og tónlistarstundir fyrir börn
á aldrinum 1-3 ára og foreldra.
Sungnir eru sálmar og lög kirkjunn-
ar, þekkt barnalög, íslensk þjóðlög
og kvæði. Leitast er við að búa
til notalegar stundir þar sem við
syngjum, dönsum, hlustum á tón-
list, förum í leiki og vekjum söng-
gleði. Krúttasálmar eru alla þriðju-
daga yfir vetrartímann kl. 16.30 í
Setrinu, safnaðarsal Háteigskirkju,
og eru þátttakendum að kostnaðar-
lausu. Umsjón hefur Guðný Einars-
dóttir, organisti Háteigskirkju.
Sýningar
Hvað? Litur: Skissa II
Hvenær? 10.00
Hvar? Hafnarhús
Litur kemur við sögu í öllum verk-
um þessarar sýningar, bæði sem
náttúrulegt fyrirbæri en ekki síður
menningarlegt. Listamennirnir
vísa í ólíkar áttir, í sögu málara-
listar, efnafræði, táknkerfi, skynjun
og jafnvel húsamálun. Sýningin
er ein nokkurra skissa sem lista-
safnið setur fram til að endurspegla
afmarkað samhengi innan íslenskr-
ar samtímalistar. Á síðasta ári var
áherslan á verk þar sem listamenn
vinna með eiginleika efnis og nátt-
úrulega ferla, að þessu sinni endur-
spegla verkin vangaveltur um lit.
Hvað? Tengingar – Sigurjón Ólafsson
og nokkrir samferðamenn hans
Hvenær? 10.00
Hvar? Listasafn Íslands
Í tilefni þess að þann 21. október
2018 eru liðin 30 ár frá því að
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar var
opnað almenningi, er efnt til sýn-
ingar þar sem fjórtán myndlistar-
menn, sem allir tengdust Sigurjóni
og list hans með einum eða öðrum
hætti, eiga samtal við verk Sigur-
jóns í fyrrum vinnustofu hans.
Hvað? Véfréttir – Karl Einarsson
Dunganon
Hvenær? 10.00
Hvar? Listasafn Íslands
Listasafn Íslands efnir til sýningar
á úrvali verka Karls Einarssonar
Dunganons sem er ætlað að varpa
ljósi á líf og list þessa einstaka lista-
manns sem hafði alla tíð sterkar
taugar til Íslands og arfleiddi
íslensku þjóðina að verkum sínum.
Varðveitir Listasafn Íslands rúm-
lega tvö hundruð myndverk, en
ljóð hans, úrklippubækur og önnur
gögn eru geymd í Þjóðskjalasafni
Íslands.
Hvað? Haraldur Jónsson: Róf
Hvenær? 10.00
Hvar? Kjarvalsstaðir
Yfirlitssýning á verkum Haraldar
Jónssonar, Róf, dregur fram sér-
stöðu listamannsins í íslensku lista-
lífi. Ferill hans er fjölbreyttur og
miðlarnir ólíkir en rauði þráðurinn
er tilraun til þess að eima tilveruna.
Í þrjá áratugi hefur Haraldur skoð-
að hvernig við greinum umhverfi
okkar, vinnum úr upplifun, tjáum
okkur og eigum í samskiptum hvert
við annað. Hver eru tengsl manns
og rýmis, vitundar og umhverfis?
Yfirlitssýning á verkum Haraldar Jónssonar stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum.
Ferill hans er fjölbreyttur og miðlarnir ólíkir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25Þ R I Ð J U D A G U R 3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 8
Kler // Clergy (ENG SUB) ...................... 17:30
Mæri // Border (ICE SUB) ..................... 17:50
Hinn seki // Den skyldige (ICE SUB) 18:00
Mandy (ENGLISH-NO SUBTITLES) ............. 20:00
The Dawn Wall (ÍSALP sérsýning) .....20:00
National Theatre Live - Breska Þjóðleikhúsið
Frankenstein-BC as beast (NO SUB) 20:00
Hinn seki // The Guilty (ENG SUB) ... 22:00
Mæri // Border (ENG SUB) ................... 22:20
Útey 22. júlí (ICE SUB) .......................... 22:20
BY NICK DEAR, BASED ON THE NOVEL BY MARY SHELLEY
DANNY BOYLE’S SMASH-HIT PRODUCTION
BENEDICT
CUMBERBATCH
JONNY
LEE MILLER
A production from
P
ho
to
g
ra
p
hy
(B
en
ed
ic
t
C
um
b
er
b
at
ch
a
nd
J
o
nn
y
Le
e
M
ill
er
) b
y
C
la
ire
N
ic
ho
ls
o
n
In cinemas from
October 22
★★★★★
‘a hell of a
production’
The Times
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Intersteel rennihurðabraut
svört (Barnyard)
Fyrir rennihurð allt að 100 kg.
Stílhrein og auðveld í uppsetningu.
Braut fest á vegg.
Fyrir hurðarbreidd allt að 1000mm.
Hægt er að fá framlengingar
í 45 cm og 90cm.
Verð :
22.200 m/vsk.
HÁGÆÐA IÐNAÐARHURÐIR
Járnháls 2-4 | 414-8600 | velaborg@velaborg.is
Verkfæralagerinn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæri
KS216
Verðmætaskápar
2.25t 52cm.
16.995
frá 4.995
17.995