Fréttablaðið - 30.10.2018, Blaðsíða 5
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI ÞVERHOLT 6 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS ISBAND@ISBAND.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500 - HÖRKUTÓL SEM ENDIST
ramisland.is
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM 3500 SLT, LARAMIE EÐA LIMITED.
RAM 3500 VERÐ FRÁ KR. 6.260.000 ÁN VSK.
KR. 7.762.400 MEÐ VSK.
RAM 3500 LIMITED 40” BREYTTUR
SAMGÖNGUMÁL „Ég get vel skilið
óþolinmæði allra. Því miður getum
við ekki fullyrt hvar næsta hörmu-
lega banaslys verður. Við verðum
að vinna þetta heildstætt og ekki
hlaupa til með tæki og fjármagn
eftir því hvar slysin verða. Við
verðum að reyna að koma í veg
fyrir þau og reyna að byggja upp
vegakerfi sem gerir þau ólíklegri,
en því miður gerast þau nú alltaf,“
segir Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra.
Banaslys á Reykjanesbraut á
alræmdum kafla í Hafnarfirði um
helgina hefur á ný vakið hörð við-
brögð hjá þeim sem barist hafa lengi
fyrir því að lokið verði við tvöföldun
brautarinnar.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, formaður Viðreisnar, segir
í grein í Fréttablaðinu í dag að það
sé óásættanlegt að bíða þurfi með
að fullklára þennan veg til ársins
2033 eins og segi í samgönguáætlun.
Tvöföldunin hafi mjakast áfram á
hraða snigilsins.
Sigurður Ingi segir hins vegar
kaflann í gegnum Hafnarfjörð í sér-
stökum forgangi, bæði að tvöfalda
og aðskilja akstursstefnur. „Sem
og að aðskilja leiðina fyrir sunnan
álverið og að Hvassahrauni, þó að
tvöföldunin verði síðast þá verða
aðskildar akstursstefnur, einmitt
í þeim tilgangi að koma í veg fyrir
þessi slys,“ segir Sigurður Ingi.
Bendir hann einnig á að nú sé starfs-
hópur að störfum sem skoði breytta
gjaldtöku á vegunum.
„Meðal annars út af orkuskipt-
unum. Eftir 2030 verða ekki 18
milljarðar sem koma inn af dísil
og bensíni, heldur eitthvað nær
sjö. Við þurfum að breyta um takt.
Einn liður sem við erum að skoða
er Hvalfjarðargangamódelið, með
einhvers konar veggjöldum. Ef breið
samstaða yrði um það þá er ég með
á þingmálaskránni í mars að leggja
fram slík frumvörp, félög sem gætu
farið í framkvæmdir og þá væri
hægt að búa til meira fé og flýta ein-
hverjum þeim framkvæmdum sem
við teljum mikilvægt að fara hraðar
í.“ – smj
Ráðherra skilur óþolinmæði en eltir ekki banaslys með fjármagni
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu-
ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
UMHVERFISMÁL Nærri tveir af
hverjum þremur Íslendingum eru
hlynntir banni á einnota plastpok-
um í verslunum samkvæmt niður-
stöðum könnunar MMR sem fram
fór í ágúst.
Alls kvaðst 61 prósent svarenda
hlynnt banni á einnota plastpokum
í verslunum en tæpt 41 prósent
kvaðst mjög hlynnt og tæpt 21 pró-
sent frekar hlynnt. Kvaðst 21 pró-
sent svarenda vera á móti banni á
einnota plastpokum í verslunum en
níu prósent kváðust mjög andvíg.
Greint var frá því um helgina
að verslanir Bónuss væru hættar
með plastpoka en bjóða þess í stað
niðurbrjótanlega burðarpoka og
fjölnota poka. – smj
Íslendingar
vilja banna
plastpoka
Bónus hefur hætt sölu burðarpoka
úr plasti. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
DÓMSMÁL Verjandi Thomasar
Møller Olsen lagði höfuðáherslu
á að draga fram vafaatriði um sekt
ákærða og byggja undir framburð
hans um að skipsfélagi hans hafi
verið einn í bílnum með Birnu
Brjánsdóttir nóttina sem hún lést,
við aðalmeðferð málsins í Landsrétti
í gær. Møller Olsen var dæmdur í 19
ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness
í fyrra fyrir morðið á Birnu Brjáns-
dóttur og fyrir fíkniefnasmygl.
„Það er í besta falli mjög ólíklegt
að atvik hafi verið með þeim hætti
sem ákæruvaldið heldur fram,“ sagði
Björgvin Jónsson við upphaf ræðu
sinnar. Hann rökstuddi þá fullyrð-
ingu meðal annars með því að ekkert
blóð hefði fundist á stýri og gírstöng
bílaleigubílsins sem ákærði hafði á
leigu en mikið blóð hefði fundist í
aftursæti hans. Hélt verjandinn því
fram að ákærði gæti ekki hafa ráðist
fyrst á brotaþola í aftursætinu og
ekið bílnum svo strax í kjölfarið.
Verjandi dvaldi við þrívíddar-
myndband sem unnið var upp úr
myndskeiði öryggismyndavélar
við golfvöll Kópavogs. Markmið
myndbandsins var að sýna fram á
að sá ökumaður sem var undir stýri
rauðu Kio Rio bifreiðarinnar á þeim
tíma væri mun lágvaxnari en ákærði
og að sama skapi hefði farþegasæti
bifreiðarinnar verið autt í umrætt
sinn. Sjálfur hélt ákærði því fram við
skýrslutöku að á þessum stað hefði
Nikolaj Olsen, sem var með ákærða
í för, tekið við akstri bílsins en sjálfur
hefði hann farið úr bifreiðinni til að
pissa og verið skilinn þar eftir þar til
Nikolaj hafi sótt sig síðar á sama stað.
Verjandinn benti á að á þessum sama
tímapunkti hefði slokknað á síma
brotaþola.
Á umræddu myndskeiði er ekki
að sjá að neinn sitji í framsæti bíls-
ins. Skýring ákæruvaldsins á því er
að sætinu hafi verið hallað aftur og
Nikolaj gæti hafa legið alveg út af.
Var töluvert um þetta deilt í réttinum
í gær.
Verjandinn dvaldi einnig við
ósamræmi í framburði Nikolajs og
áverka á hnúum vinstri handar.
Þá var sýnt frá mátun úlpu sem á
hafði fundist blóð úr Birnu. Mark-
mið mátunarinnar var að sýna fram
á að úlpan væri of lítil á ákærða en
við skýrslutöku neitaði ákærði því
að úlpan væri hans. Úlpan hans væri
grá og í stærðinni XL en hin mátaða
úlpa var í miðstærð. Á myndbandinu
mátti sá ákærða klæða sig í úlpuna
og renna henni upp. Ermarnar voru
mjög í styttri kantinum og úlpan
ekki sérlega klæðileg.
Að lokum vék verjandi að óút-
skýrðum kílómetrafjölda sem bíla-
leigubílnum var ekið. Við máls-
meðferð í héraði var miðað við að
óútskýrður kílómetrafjöldi sem
ákærði hafði ekið væri nálægt 130.
Vildi verjandi sýna fram á að það
væri of knappt til að hann hefði
getað keyrt alla leið að Óseyrarbrú
og til baka til Hafnarfjarðar en sam-
kvæmt dómkvöddum matsmanni er
líklegast að líkami Birnu hafi verið
settur í Ölfusá við Óseyrarbrú. Lög-
reglumaður sem var vitni í gær gerði
grein fyrir nýrri athugun í þessu efni
sem sýndi að kílómetrafjöldinn væri
nær 190 kílómetrum og því nægt
svigrúm til að aka að Óseyrarbrú.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissak-
sóknari flutti málið af hálfu ákæru-
valdsins. Í málflutningi sínum leitað-
ist hún við að hrekja þann framburð
Thomasar að Nikolaj hefði ekið burt
á bílaleigubílnum með Birnu. Og
hvernig Nikolaj hefði átt að takast að
veitast þannig að henni í bílnum að
mikið af blóði væri að finna í bílnum
án þess þó að neitt blóð fyndist á
fötum hans. Enn fremur taldi sak-
sóknari það ótrúverðuga frásögn
að Nikolaj hefði farið inn í káetu
Thomasar og komið fingrafari hins
síðarnefnda á ökuskírteini Birnu
áður en hann fleygði því í ruslafötu
á þilfari skipsins.
Hún lýsti alþrifum Thomasar á
bílnum en á myndskeiði sem sýnt
var í réttinum voru þrifin sýnd. Þetta
taldi hún ekki trúverðug viðbrögð
við litlum ælubletti en Thomas hélt
því fram að hann hefði verið að þrífa
ælublett í aftursæti bílsins.
Saksóknari lét þess getið að sak-
borningur hafi gengið mjög langt við
að hylja slóð sína eftir verknaðinn og
meta bæri framferði hans eftir verkn-
aðinn honum til refsiþyngingar, ekki
síst þá háttsemi hans að bera sakir á
saklausan skipsfélaga sinn.
adalheidur@frettabladid.is
Telur mikinn vafa leika á sekt
Aðalmeðferð í máli Thomasar Møller Olsen lauk í Landsrétti um níu í gærkvöldi og hafði þá staðið í 12
tíma. Allur málflutningur verjanda miðaði að því að sýna fram á vafa um sekt Thomasar Møller Olsen.
Thomas Møller Olsen hefur hulið andlit sitt við þinghöld hingað til og ýmis-
legt var gert til að forða honum frá myndatöku í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það er í besta lagi
mjög ólíklegt að
atvik hafi verið með þeim
hætti sem ákæruvaldið
heldur fram.
Björgvin Jónsson, verjandi ákærða
3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð